Hér er dómurinn af domurinn.is
Myndir teknar af http://philip.greenspun.com/images
![]() |
3 ára fangelsi fyrir nauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Laugardagur, 14. júní 2008 (breytt kl. 02:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Enn einn dómur sem er einkennilega ósamræmi við nánast sama brot. Eða er ég svona vitlaus að sjá ekki að það er ekki svo alvarlegt að berja og sparka í konu liggjandi í gólfinu, og það í höfuðið. Sem mér finnst reyndar vera jafn alvarlegt og lemja mann með glerflösku.
Fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun
Hæstiréttur hefur dæmt pólskan karlmann, Robert Olaf Rihter, karlmann í 5 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps en maðurinn sló annan mann ítrekað með glerflösku í höfuð, háls og víðar í líkamann. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða þeim, sem hann réðist á, 790 þúsund krónur í bætur.
Árásin var gerð á heimili Rihters í Keflavík í nóvember sl. Sá sem fyrir árásinni varð fékk djúp sár í gegnum hálsvöðva, marðist í andliti og fékk áverka á brjóstkassa, öxl og upphandlegg. Að mati lækna var atlagan lífshættuleg og réði hending því að ekki hlaust bani af.
Hæstiréttur segir að óljóst sé hvað manninum gekk til verksins en honum hlyti að hafa verið ljóst að mannsbani gæti hlotist af árásinni.
Réðist á sambýliskonu sína
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fyrir að ráðast á þáverandi sambýliskonu sína á heimili þeirra. Þetta gerðist í desember á síðasta ári en maðurinn barði konuna m.a. í höfuðið og sparkaði síðan í hana liggjandi.
Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 615 þúsund krónur í bætur auk sakarkostnaðar.
Fram kemur í dómnum að maðurinn sagðist ekki muna neitt eftir atburðum næturinnar. Hann hafði verið einn úti að skemmta sér og um nóttina óku lögreglumenn fram á hann á gangi á Glerárgötu á Akureyri og óku honum heim. Sögðu þeir manninn hafa verið mjög ölvaðan og erfiðan í samskiptum.
Í dómnum er haft eftir konunni, að hún hafi verið mjög miður sín eftir þetta og ekki treyst sér til vinnu. Hún hafi fengið kvíða- og grátköst og átt erfitt með svefn. Hún hafi fengið aðstoð félagsráðgjafa, sem hafi vísað sér til sálfræðings en líðan sín sé misjöfn. Hún hugsi enn um þetta atvik og líði illa yfir því.
Maðurinn sagðist hafa verið niðurbrotinn eftir þetta. Hann hafi farið í áfengismeðferð og haldið bindindi eftir það. Hann sagðist oft hafa reynt að hafa samband við konuna, símleiðis og bréflega, en það hafi ekki tekist og samband þeirra sé óuppgert, tilfinningalega og fjárhagslega.
![]() |
Réðist á sambýliskonu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 13. júní 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
.......samt erum við Stórhöfðafeðgar ekki alveg fullkomlega sáttir við ýmislegt við vefsíðuna vedur.is.
Svo er ég með ansi margar hugmyndir um bætingu á þessum vef. Einsog tildæmis svæðisbudnar viðbótasíður. Enn þá væri til dæmis allt tengt veður á einum tiltekinn stað á einni hliðarsíðu á vedur.is. Svona svipað og ég er að gera á 123.is/DJ_Storhofdi. Enn þar hef ég verið að setja veðurtölur frá Stórhöfða af vedur.is, og líka allt sem er veðurtengt frá Vestmannaeyjum, tildæmis í fjölmiðlum.
Þeir hjá vedur.is birta ljósmynd frá mér í annað sinn á þessu ári. Ætti kannski að fara senda þeim vænan pakka af ljósmyndum síðustu ára. Enn þær telja þúsundir myndir sem tengjast veður.
2008
Veðurstofa Íslands hátt skrifuð meðal þjóðarinnar
Dagana 5.-13. maí sl. gerði Capacent Gallup könnun á afstöðu þjóðarinnar til átján opinberra stofnana sem eiga í miklum samskiptum eða þjónustu við almenning.
Í átta spurningum könnunarinnar var spurt um ánægju með þjónustu, traust, ímynd og trúverðugleika, viðmót starfsmanna og framsækni stofnunar. Í svörum tæplega 2400 landsmanna kom fram að Veðurstofa Íslands fékk í sjö spurninganna hæstu einkunn þessara átján stofnana og var í öðru sæti í einni þeirra.
Um 90% landsmanna telja stofnunina veita góða eða mjög góða þjónustu og um 75% bera mikið traust til stofnunarinnar en um 3% lítið. Að meðaltali fékk stofnunin 4,1 í einkunn af 5 mögulegum.
Þá kom í ljós að vefur Veðurstofunnar, www.vedur.is, er orðinn helsti upplýsingamiðill hennar en meira en 60% þjóðarinnar nefnir hann sem fyrsta kost þegar hún vill afla sér upplýsinga frá stofnuninni. Hefur engin íslensk stofnun náð viðlíka árangri með miðlun upplýsinga á vefnum en vefur Veðurstofunnar var valinn besti vefur í almannaþjónustu árið 2007.
Þær stofnanir sem Capacent Gallup valdi til að spyrja um afstöðu til í þessari könnun voru eftirfarandi, auk Veðurstofunnar: Byggðastofnun, Fasteignamat ríkisins, Fjármálaeftirlitið, Hagstofa Íslands, Heilsugæslan, Landspítali Háskólasjúkrahús, Íbúðalánasjóður, Lögreglan, Neytendastofa, Ríkisskattstjóri, Tollstjórinn í Reykjavík, Tryggingastofnun, Umferðarstofa, Umhverfisstofnun, Útlendingastofnun, Vegagerðin og Vinnumálastofnun.
http://vedur.is/um-vi/frettir/2008/nr/1324
![]() |
Landinn ánægður með Veðurstofuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 13. júní 2008 (breytt kl. 02:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
.................Ekki.
![]() |
Dæmdur fyrir að áreita stúlkur í sundlaug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 12. júní 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þetta er meiriháttar einkennileg fyrirkomulag í byggingu fjölbýlishús og akbrautar.
![]() |
Kópavogur bregst við óánægju íbúa við Lundarbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 12. júní 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
.......ég skil ekki.
Það er alvarlega að lemja mann með GLERFLÖSKU enn að nauðga, eða keyra á margföldum löglegum hraða á ökutæki.
Og það heil 5 ár fyrir að lemja mann með GLERflösku, er miklu harðari dómur enn margt annað, einsog nauðgun.
![]() |
Fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 12. júní 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
........að fara háma og dæla í þig hassi, kókaíni, maríjúna o.s.f. Og eiga auk þess hættu á að deyja með hverju neysluskammti.
Enn ég kýs frekar að lýta vel út og vera hraustur. Og segji þess vegna NEI við fíkniefnadjöfullinn.
![]() |
Maríjúana og kókaín einnig í húsbíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 12. júní 2008 (breytt kl. 20:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
..........og rannsökum líka ólöglegt dráp á Hvítabirni við Þverársfjalli. Enn það allveg skýrt að það er bannað að drepa/skjóta dýr í útrýmingahættu á Íslandi, nema að dýrið ógni fólki. Enn mér virðist Hvítabjörnin ekki vera að ógna fólki þarna viljandi. Heldur virðist það forvitnir íslendingar sem voru að ógna sínu lífi, og jafnframt lífi bjarnarins.
![]() |
Hvítabjörninn rannsakaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 12. júní 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...........langt framúr kostnaði einsog vanin er hjá íslendingum. Gott dæmi er Grímseyjarferjan, sem fór verulega langt framúr kostnaðaráætlun. Enn enginn bar ábyrgð á því.......
Nú segir orðið á götunni að nýji Herjólfur minnki og minnki..........
Og það kallast víst hjá sumum aukið samgöngubót milli lands og eyja.
Tengdar fréttir - Landeyjahöfn
Þorlákshöfn ekki varahöfn fyrir nýjan Herjólf
Frummatsskýrsla lögð fram og kynnt
Mælt fyrir frumvarpi um Landeyjahöfn
Fjármagnskostnaður vegur þungt
Afhentu ráðherra undirskriftalista
Tilboð upp á tólf til sextán milljarða
Þrjú þúsund skrifuðu undir gegn Landeyjahöfn
Tilfinningahiti í Eyjum
Nýr Herjólfur mun betri kostur en Bakkafjöruhöfn
Ferðir falla niður í 5-9 daga á ári
![]() |
Tilboð í Landeyjahöfn undir kostnaðaráætlun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 12. júní 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Lengi tekist á við húmorsleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 6. júní 2008 (breytt 7.6.2008 kl. 20:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
....................................hlé vegna of mikila vinsælda
Dægurmál | Miðvikudagur, 4. júní 2008 (breytt kl. 00:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
.......formaður Nattúrusamtaka Ísland (eða eigum við kalla þessi samtök hans Hvalavinasamtök Árna Finnssonar) þegar alvörumál eru gangi annað enn hvali sem eru ekki í útrýmingahættu einsog Hvítabjörnin??????????????
Og ekki má gleyma formanni dýraverndarsamtaka Íslands, henni Sigríði.
Hvar eru þau þegar á þeim þarf að halda???
Enn hann Árni virðist aldrei hafa skoðarnir þegar íslendingar fara illa með náttúru Íslands, einsog ofveiði á fiski einsog loðnu og þorski, eða fugla einsog lunda, eða þá eggjahreinsarnir sem standa nú yfir í Vestmannaeyjum í vor. Svo eru það útrýmingarherferð á trjáskógum landsins. Virkjunarstefna Íslendinga hafa verið settar upp án þess að virðing sé borið fyrir nátturu landsins.
Svo er enginn dómur fyrir að níðast á dýrum, einsog gott dæmi um kompásshestaníðinginn sem slapp frekar vel.
Svo vilja örfáir setja upp olíuhreinsistöð. Vitandi það að veðrið og sjólagið við Ísland er það versta fyrir olíuskip.
Ásamt fjölmörgu örðu...............
Gvuðuna bænum förum nú að vernda dýrin á Íslandi. Og fordæmum illa meðferð á nátturu Íslands.
Þetta með Hvítabjörnin er mjög alvarleg mistök að taka hann af lífi vegna þess að hann er í útrýmingarhættu. Og ekki virðist hann hafa verið að ógna lífi fólks. Heldur virðist forvitnir íslendingar hafa ógnað lífi sínu með háttsemi sínu.
Svo voru "rök" lögreglumanns að Hvítabjörnin gæti horfið í þoku. Og hvað? Er hann ekki hvítur á lit í dökku landi Íslands, og bjart allan sólarhringinn. Þannig að fólk ætti nú að geta sé hann nógu fljótt til að geta forða sér frá honum. Ég efast um að hann sé svo snöggur að elta mannin.
Hvítabjörn er hvítur til að geta falið sig í heimskautasvæðinu. Og gerir þar hann stórhættulegan. Enn á Íslandi á sumri til er hann ekki eins hættulegur vegna þess að hann fellur ekki að sumarlandslaginu á íslandi. Svo hver þess stórhætta að hafa hann lifandi tímabundið meðan það hefur verið gert einhverjar ráðstafarnir til að koma honum lifandi heim til sín?
Vonandi tökum við betur við svona sjaldséðum gestum í framtíðinni?
E.s. Hvað er ólíkt með Hvítabjörn og glæpamönnum frá Evrópu ("Litháen eða Póllandi")?? Hvítabjörnin villist til Íslands óvart og er skotin af lögreglu fyrir engar sakir meðan glæpahýski frá Evrópu leikur lausum hala einsog ekkert sé. Vegna þess að íslendingar fá ekki að grisja þá góðu frá vondu.
![]() |
Skýrist á næstu dögum hvað verður um ísbjörninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Þriðjudagur, 3. júní 2008 (breytt kl. 21:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Dægurmál | Mánudagur, 2. júní 2008 (breytt 3.6.2008 kl. 00:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimurin logar allur vegna vegna hækkandi bensínverð. Og við íslendingar (vöruflutningabílstjórar) eigum þann heiður að vera fyrstir til þess að mótmæla þessu.
Reyndar skammarlegt hvað almenningur hefur lítið hjálpa bílstjórunum í þessum mótmælum.
http://www.youtube.com/watch?v=6qsKSh4Yp1E
http://www.youtube.com/watch?v=p2juMVfsn_4
http://www.youtube.com/watch?v=qLANboXH28Y
![]() |
Mótmæli vegna hækkandi eldsneytisverðs víða í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Laugardagur, 31. maí 2008 (breytt kl. 07:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Haha..........viðtal við konu sem heitir "Mapel Músadóttir". Svo er grjóthrunið í Blátindi í Vestmannaeyjum orðið vinsælasta sjónvarpsefnið af þessum skjálfta.
![]() |
Ráðherrar á fundi með heimamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 30. maí 2008 (breytt kl. 15:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
CNN: http://youtube.com/watch?v=bR8peIJE5L4
![]() |
Stöðugir eftirskjálftar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 30. maí 2008 (breytt kl. 15:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Dægurmál | Föstudagur, 30. maí 2008 (breytt kl. 07:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)