Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Mér finnst .....

.............alltaf betra að fara í bað enn sturtu.

sturta bað


mbl.is Fólk þarf ekki að hætta að fara í sturtu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur skoðunarkönnun......

......Morgunblaðsins verið traustvekjandi?

Sjálfstæðisflokkurinn hefur þarna mann til að stjórna blaðinu með jákvæðu efni fyrir flokkinn.


mbl.is Flestir vilja Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindhraðamet á Stórhöfða kl. 0:27 í nótt.

Þegar 10 mín. meðalvindhraði fór í 0,27277 m/s. Sem þýðir lægsti 10 mín. meðalvindhraði á Stórhöfða síðan sjálfvirki vindmælirinn var þar settur árið 2004.

7.5.2010

Vindhraðamet á Stórhöfða: Minnsti 10 mín. meðalvindur síðan 2004 0,27277 m/s

Skrifað 27.5.2010 kl. 0:50 af Pálma Frey

Bein slóð á færslu

 Enn í gær var hvasst á höfðanum, 13-19 m/s. í 10 mín. meðalvind og vindhviðu upp í 26 m/s. Og áttin var norðlægur, og það þýddi að við Vestmannaeyingar fáum heldur betur öskumistur yfir okkur. Og fór skyggni niður í 0,8 km.

27.5.2010

Öskurykmistur í Vestmannaeyjum 26. maí 2010

Skrifað 27.5.2010 kl. 6:43 af Pálma Frey

Bein slóð á færslu

 


mbl.is Hægari vindur er líður á daginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstu hitagildi á Íslandi í dag 24. maí 2010

Listi keyrður út kl. 18:50 þann 24.05.2010                  
Gildir fyrir 2010-05-24 kl. 18
-------------------------------------------------------------------------------
Mestur hiti í Reykjavík í dag var 16.3 stig.
Engin úrkoma mældist í Reykjavík í dag


Mestur hiti (minnst frost) á landinu í dag:
Láglendi: Fjöll:
18.9 °C Þingvellir 14.5 °C Hellisskarð
18.4 °C Árnes 12.5 °C Botnsheiði
18.1 °C Mörk á Landi 12.3 °C Bláfjöll
18.0 °C Hæll 12.2 °C Bláfjallaskáli
18.0 °C Þyrill 12.2 °C Skarðsmýrarfjall
17.0 °C Hjarðarland sjálfvirk st 11.9 °C Laufbali
Heimild: V.Í. 

mbl.is Tæp 19 stig á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að.......

.....velta fyrir mér hvort það sé ekki best að fara að hætta útgáfu á símaskránni.

Ég t.d. hef ekki notað símaskrá í mörg ár. Heldur hef ég nota ja.is, því þar er oftast hægt að treysta á að símanúmerið sé rétt.


mbl.is Símaskráin kemur út í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk ........

.......kærlega fyrir að lækka bensínið í EINN DAG. Og ég með fullan tank og get þess vegna ekki nýtt mér þessa lækkun.

 

Enn annars er þetta bara enn eitt bragið til að þagga í neytendur.

 

Ég spái að bensínið sé að fara yfir 210 kr. næstu dagana.


mbl.is Ódýrara bensín í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar fréttir ......

........frá V.Í.

Eldfjallagas - skráð 21.05.2010 kl. 14:45

Tilkynning barst úr Hlíðarendakoti um hádegi 21. maí 2010: Bláleitar gufur koma í einskonar skýjum út með Fljótshlíðinni, í vesturátt. Þeim fylgir rotnunarfýla og þau valda hausverk ef þau eru dimm. Innsti bær er Fjótsdalur við Þórólfsfell en næst-innstu bæir eru Neðri-Þverá, Smáratún og Eyvindarmúli. Bændur á Neðri-Þverá sjá þetta sama koma inn í fjósið með viftunum. Veðurstofan þiggur fleiri tilkynningar um þetta fyrirbæri.

http://vedur.is/skjalftar-og-eldgos/frodleikur/greinar/nr/1863  

 


mbl.is Askan seld til 65 landa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Váááá..............................

...........eru kosningar í nánd?

 

Það hrúgast fullt af fréttum í boði Sjálfstæðisflokksins í Eyjum í Eyjafjölmiðla þessa dagana. Enn hafa varla sést hvað þessi flokkur hefur gert í 3 ár og 11 mánuði.

Enn þetta er hefðbundinn aðferð hjá þessum flokki.

 

Samgöngur hafa verið í þvílíkum ólestri hingað til. Og sýnist mér það ekki breytast í framtíðinni með Bakkafjöruhöfn 


mbl.is Samið um fjórar Herjólfsferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grein úr Eyjafréttum..........

Miðvikudaginn 19. maí kl. 17.11

Skaðleg heilsu fólks

Skaðleg heilsu
 fólks Öskufall er ekki bara óþægilegt held­ur getur það verið skaðlegt  heilsu fólks. Elvar Daníelsson, heilsu­­gæslulæknir á Heilbrigðis­stofnun Vestmannaeyja, sagði ekki mikið um að bæjarbúar leituðu til heilsugæslunnar vegna öskufallsins og helst þeir sem eru með astma eða öndunarsjúkdóma. 
"Hluti svifryks er undir 10 míkró­metrum og getur valdið mikl­um skaða. Rykið þyrlast upp ef bílar keyra um götur og ef það hreyfir vind. Það er hættulegt því minnstu agnirnar geta borist djúpt ofan í lungu. Flúor skolast frekar fljótt úr öskunni  ef það rignir en er hættu­legt skepnum sem eru grasbítar," sagði Elvar þegar hann var spurður um hættu af svifryki í andrúmslofti.
  "Við hvetjum börn og fullorðna  til að vera með grímur þar sem hætt er við svifryksmengun. Það er ennþá mjög fínt ryk í loftinu sem þyrlast upp og getur líka valdið kláða og óþægindum í augum. Þess vegna  er gott að vera með hlífðargleraugu, sérstaklega í öskufalli. Þeir sem eru með linsur eru hvattir til að vera ekki með þær úti því ryk getur farið inn undir linsur og rispað horn­himnuna, " sagði Elvar og telur mikilvægt að útskýra fyrir börnum hvers vegna þörf er á að nota grímur þegar svifryksmengun er mikil. "Astmaveikum stafar mesta hættan af svifryki og t.d. er mikilvægt að gæta að astmalyfjum þeirra sem sjaldan þurfa að nota lyf. Hvort þau eru útrunnin og til taks ef á þarf að halda, " sagði Elvar og telur eitthvað þyngra í fólki þessa dagana  en ­flesta taka stöðunni með stakískri ró.
  Áslaug Rut Áslaugdóttir, heilbrigðisfulltrúi Suðurlands í Vest­mannaeyjum sagði ekki gott að segja til um umfang svifryksmeng­unar þar sem enginn tækjabúnaður til mælinga er fyrir hendi í Eyjum. Mengunin er mæld með sérstökum vögnum þar sem ryk er talið í ­miklum mæli í andrúmslofti
.  
  Samkvæmt mælingum Óskars Sig­urðssonar í Stórhöfða var öskufallið á föstudag og laugardag 148 grömm á disk sem er 22 x 35 sm. "Aðra daga hefur það ekki verið teljandi. Út frá þessu má reikna út heildarmagnið sem fallið hefur á Heimaey en mér finnst þó að öskufall hafi verið minna hér í Stórhöfða en niðri í bæ," sagði Óskar.
  Hann er sá síðasti sem safnar neyslu­vatni af þakinu í brunn. Það urðu Eyjamenn að sætta sig við fram til ársins 1968 að vatnsleiðsla var lögð til Vestmannaeyjar.
  "Það er ekki hægt að safna vatni eins og er og tók ég því rennurnar úr sambandi," sagði Óskar sem ennþá á nóg vatn í brunn­inum.   Vikublaðið Fréttir greindi frá
.
http://www.eyjafrettir.is/frettir/2010/05/19/skadleg_heilsu_folks



Mynd tekinn 15 maí 2010 kl. 3:30 af öskusöfnunarbakka V.Í. á Stórhöfða.
Ætlaðii að setja aðra mynd hér, enn einu sinni er snúra horfinn......

Mynd: Tekinn 19. maí 2010 af 4 pokum af öskusýni sem hefur komið hefur á komið í öskusýnisbakka V.Í. á Stórhöfða 10. - 17. maí 2010.

Skrifað 19.5.2010 kl. 22:03 af Pálma Frey

Bein slóð á færslu


mbl.is Verulega dregið úr kvikuflæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband