......í gær 01.11.2012. í Hamarsfirði.
Nú bíður maður eftir að yfirdómari Veðurstofurnar smaþykki þessar tölur frá veðurstöð Vegagerðarirnnar, enn þær stöðvar búa örðum lögmálum........
Enn annars lítur þetta svona í Vestmannaeyjum.........
Mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestmannaeyjum 02.11.2012:
Stórhöfði 30,5 m/s. kl.04. (N-átt).
Vestm.bær 9,7 m/s. kl.04. (N-átt).
Surtsey 21,3 m/s. kl.04. (NNA-átt).
Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum 02.11.21012:
Stórhöfði 38,7 m/s. kl.04.(N-átt).
Vestm.bær 27,3 m/s. kl.02. (NNA-átt)
Surtsey 30,8 m/s. kl.04. (NNA-átt).
Mesti 10 mín meðalvindhraði á Íslandi 02.11.2012:
Hraunsmúli 34,9 m/s.
Jökulheimar 34,5 m/s.
Bláfeldur 34,1 n/s.
Kjalarnes 32,0 m/s.
Mesta vindhviða á Íslandi 01.11.2012:
Uppfært 02.11.2012. kl.04:45.
Mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestmannaeyjum 01.11.2012:
Stórhöfði 25,8 m/s. kl.20. (NNA-átt).
Vestm.bær 13,6 m/s. kl.20.
Surtsey 21,8 m/s. kl.12.
Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum 01.11.21012:
Stórhöfði 36,0 m/s. k.20.
Vestm.bær 33,8 m/s. kl.09.
Surtsey 28,9 m/s. kl.12.
Mesti 10 mín meðalvindhraði á Íslandi 01.11.2012:
Gagnheiði 37,0 m/s.
Jökulheimar 31,1
Bjarnarey 28,9
Mesta vindhviða á Íslandi 01.11.2012:
Hamarsfjörður 70? m/s.
Uppfært 01.11.2012. kl.20:45.
![]() |
Ófært víða á Norðausturlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 2. nóvember 2012 (breytt 3.11.2012 kl. 08:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
.....Surtsey kl.05:58.
Myndir: Veður.is
![]() |
Óvissustig enn í gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 26. október 2012 (breytt kl. 09:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
......hingað og gefðu skýrslu:
http://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgos/jardva-skraning/
![]() |
Ekki sést lengi á þessu svæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Sunnudagur, 21. október 2012 (breytt kl. 02:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dægurmál | Laugardagur, 20. október 2012 (breytt 21.10.2012 kl. 02:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
............enn ekki 3,5. Þeir hjá mbl.is gleyma oft að taka það fram að fyrstu tölur séu óyfirfarnar eða óstaðfestar.
Mynd: Skjáskot af Veður.is.
Minna á að gefa skýrslu ef þú fannst fyrir skjálftanum hér: http://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgos/jardva-skraning/
![]() |
Jarðskjálftar við Bláfjöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Föstudagur, 5. október 2012 (breytt kl. 20:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppfært 02.10.2012 kl.21:00.
Meðaltalshiti: 7,3°C
(88 "hæsti"-meðaltalshiti í Ve. af 135 árum).
Hæsti sept.-meðaltalshiti á Stórhöfða 1949-2012:
1. 10,0°C (2006),
Lægsti sept-meðalhiti á Stórhöfða 1949-2012:
1. 6,0°C (1979).
Hæsti lofthiti: 12,2°C (þ. 1).
Hæsti sept.-hiti á Stórhöfða 1949-2012:
1. 15,4°C (1958).
Meðaltal hámarkshita: 9,1°C
Hæsti sept.-meðaltal hámarkshita á Stórhöfða 1949-2012:
1. 11,8°C (1958).
Lægsti sept..-meðaltal hámarkshita á Stórhöfða 1949-2012:
1. 10,5°C (1982).
Lægsti lofthiti: 1,9°C (þ. 29). (V.Í. segir 2,1°C)
Lægsti sept.-hiti á Stórhöfða 1949-2012:
1. -2,6°C (1954).
Meðaltal lágmarkshita: 5,9°C
Lægsti sept.-meðaltal lágmarkshita á Stórhöfða 1949-2012:
1. 4,4°C (1982).
Hæsti sept.-meðaltal lágmarkshita á Stórhöfða 1949-2012:
1. 9,7°C (1958).
Meðaltalsrakastig: 83%
(100% er hæsta gildi raka).
Hæsta sept.-meðaltalsrakastig á Stórhöfða 1949-2012:
1. 93%
Lægsta sept.-meðaltalsrakastig á Stórhöfða 1949-2012:
1. 75%
Meðaltalsskýjahula: 5,3
(Heiðskýrt er 0, hálfskýjað er 4 og alskýjað er 8)
Mest:
1. .7,0
Minnst:
1. .4,6
Meðaltalsloftþrýstingur: 999,8 hpa.
Hæsti meðaltalsloftþr. í sept. á Stórhöfða 1949-2011:
1. 1017,1 hpa.(1976).
Minnsti meðaltalsloftþr. í sept. á Stórhöfða 1949-2011:
1. 994,2 hpa (2011).
Hæsti loftþrýstingur: 1024,3 hpa. (þ. 25).
Hæsti sept.-loftþr. á Stórhöfða 1949-2012:
1.
Lægsti loftþrýstingur: 968,6 hpa. (þ. 13).
Lægsti sept.loftþr. á Stórhöfða 1949-2012:
1.
Meðaltalsvindhraði: 12,1 m/s.
Mesti meðalt.vindhr. í sept. á Stórhöfða 1949-2012:
1. 13,2 m/s.
Minnsti meðalt.vindhr. í sept. á Stórhöfða 1949-2012:
1. 6,7 m/s.
Mesti 10 mín. meðalvindhraði: 36,4 m/s. (þ. 9).
Topp 4 dagar í sept. 2012 á Stórhöfða:
1. 36,4 m/s. þann 9.
2. 28.2 m/s. þann 11.og 30.
4. 27,8 m/s. þann 29.
Mesti 10 mín. meðalvindhraðiá Stórhöfða 1950?-2012:
Mesta vindhviða: 42,1 m/s.(þ. 10).
Topp 4 dagar í sept. 2012 á Stórhöfða:
1. 42,1 m/s. þann10.
2. 35,5 m/s. þann 11.
3. 35,3 m/s. þann 30.
4. 34,8 m/s. þann 29.
Mesta vindhviða í sept. á Stórhöfða 1950?-2012:
1.
Minnsti 10 mín.meðalvindhraði: 0,7 m/s. eða minna þann 26.
Mánaðarúrkoma: 185,7 mm. (minn útreikningur er 186,7 mm. Eftir að endurreikna minn útr.)
Mesta sept.-úrkoma á Stórhöfða 1924-2012:
1. 334,2 mm. 2007.
Minnsta sept.-úrkoma á Stórhöfða 1924-2012:
1.
Mesta sólarhringsúrkoma: 44,0 mm.(þ. 4).
Mesta sólarhringúrk.í sept. á Stórhöfða 1924-2012:
1. 85,8 mm. þann 30. 1969.
Mesta sjólagið við Surtsey:
Mesta sjólagið við Bakkafjöru:
Athugið að allar tölur eru birtar án ábyrgðar um réttar tölur..
Skrifað af Pálma FreyTengill á færslu
![]() |
Verður minnst fyrir norðanáhlaupið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Mánudagur, 1. október 2012 (breytt 3.10.2012 kl. 17:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nei án gríns ætla ég ekki láta Árna Matt loka síðunni aftur. Enn geti prófað að gúgla icelandichustler.
![]() |
Íslendingar stærstir í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Mánudagur, 1. október 2012 (breytt kl. 07:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nei annars án gríns, þá hef sem betur fer ekki myndast þarna. Annars er afar einkennilegt hvað þetta er óskýr mynd. Sýnist að þetta sé tekið af eftirlitsmyndavél.
Hvernig er það, var notað lélegar eftirlitsmyndavélar?
Enn vonandi finnst þessi "óheppni" maður.
Innlent | mbl | 18.9.2012 | 17:53 | Uppfært 18:39
Þekkir þú manninn á myndinni?


Þessi mynd var tekin í Herjólfsdal kl. 05.35 mánudaginn 6. ágúst. Óskað er upplýsinga um manninn í bláu yfirhöfninni. Af vef lögreglunnar
Lögreglan á Selfossi biður mann þann sem sést á meðfylgandi mynd, klæddur blárri yfirhöfn og dökkum buxum, í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum mánudaginn 6. ágúst síðastliðinn kl. 05.35, að hafa samband í síma 480 1010. Einnig leitar lögreglan til almennings og biður þá sem telja sig geta upplýst hver þessi maður er að koma þeim upplýsingum til lögreglu.
Maður þessi er talinn búa yfir upplýsingum sem gagnast gætu við rannsókn máls, segir í frétt á vef lögreglunnar.
Myndin var tekin um verslunarmannahelgina en lögreglan á Selfossi rannsakar nú m.a. nauðgunarmál sem kom upp á hátíðinni.
© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Þekkir þú manninn á myndinni? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Þriðjudagur, 18. september 2012 (breytt kl. 19:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
..........mikið bál í suðurhluta Heimaeyjar. Nánar tiltekið við Breiðabakka uppúr kl.6 í morgun.
Afsakið léleg myndgæði. Enn vegna myrkurs og veðurs tók ég þessar myndir gegnum gluggan.
Innlent | mbl | 15.9.2012 | 8:10 | Uppfært 9:37 Upplestur á frétt
Kviknaði í íbúðarhúsi í Eyjum


mbl.is/Ernir Eyjólfsson
Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Vestmannabraut í Vestmannaeyjum um klukkan hálf sjö í morgun. Um er að ræða íbúðarhús sem er sambyggt verslun. Eldurinn hefur að öllum líkindum komið upp í stofu íbúðarinnar, að sögn lögreglu, en þar var eldurinn mestur.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en að sögn lögreglunnar var eldurinn í raun ekki mjög mikill en miklar skemmdir urðu hins vegar vegna hita og reyks.
Málið er í rannsókn en enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp.
© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Kviknaði í íbúðarhúsi í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Laugardagur, 15. september 2012 (breytt kl. 16:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
...........leitarhunda? Allavega virðist tófur geta þefa kindurnar uppi. Og svo hvernig gengur landhelgisgæslunni að nota hitamyndavélina í Sif-þyrlunni?
Innlent | mbl | 13.9.2012 | 14:47 | Uppfært 15:11 Upplestur á frétt
Fjárleit gengur samkvæmt áætlun
Leitin gengur samkvæmt áætlun. Mestallt féð sem við höfum fundið hefur verið lifandi, en reyndar fannst nokkuð af bæði lifandi og dauðu fé í Mývatnssveit í dag, það hafði fennt yfir það og þess hafði verið saknað síðan fyrir helgi," segir Sigurður Brynjólfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík.
Hann segir erfitt að nefna nákvæmar tölur um fjölda þess fjár sem fundist hefur og þess sem enn er saknað.
Að sögn Sigurðar eru um 200 björgunarsveitarmenn af svæðinu við leit, auk íbúa á svæðinu og um 70 björgunarsveitarmanna af höfuðborgarsvæðinu. Sexhjól valt yfir einn leitarmannanna í morgun, en honum varð ekki meint af.

Þessi almannavarnaaðgerð heldur áfram í dag og við metum síðan stöðuna í kvöld. En það er ljóst að leitin á Þeistareykjasvæðinu mun taka lengri tíma, þetta er svo stórt svæði," segir Sigurður.
Tengdar fréttir - Óveður í september
Skiptir máli að hvíla féð


- Hafa fundið þúsund kindur á lífi
- 300 björgunarsveitarmenn við leitir
- Heppinn að vera á lífi
- Rafmagnsskömmtun hætt á NA-landi

![]() |
Leit samkvæmt áætlun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 13. september 2012 (breytt kl. 16:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
xxxxx
Mesti10.mín.meðalvindhraði í Vestmannnaeyjum 10.09.2012:
Stórhöfði 36,444 m/s. kl.17
Vestm.bær 12,0 m/s.kl. 18.
Surtsey 16,4 m/s. kl.13.
Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum 10.09.2012:
Stórhöfði 42,1m/s. kl. 18.
Vestm.bær 41,5 m/s. kl. 18. (Sennilega vindhviðumet síðan stöðin hóf störfum árið 2002.)
Surtsey 29,1 m/s. kl. 13.
Lægsti hiti í Vestmannaeyjum 10.09.2012:
Mresta 10.mín. meðalvindhraði á Íslandi 10.09.2012:
Bjarnarflag 61,1 m/s.?????? (sennilega bilun í mæli).
Ennisholt 43,6
Svartárskot 37,3 m/s.
-Ekki fullklárað - Uppfært kl.18:50. Er núna mættur á verðurvaktinna
http://dj_storhofdi.123.is/blog/2012/09/10/630141/
https://www.facebook.com/groups/11944523719/
http://dj_storhofdi.123.is/blog/2012/09/10/630141/
Innlent | mbl | 10.9.2012 | 16:15
Áfram slæmt veður og víða ófært


Slæmt veðurútlit er það sem eftir er dags. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Veður mun áfram haldast slæmt meira og minna í allan dag, með norðanátt 15-22 m/s. Mikil úrkoma er norðanlands og svo verður fram á kvöld. Gera má ráð fyrir snjó og sums staðar talsverðri ofankomu ofan 200-300 metra hæðar og krapa í 100-200 metra hæð. Ófært er víða um land.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Þetta á einkum við um fjallvegina norðanlands allt austur á Möðrudalsöræfi, en einnig verður snjófok vestar s.s. á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði.
Þá er reiknað með snörpum vindhviðum yfir 30 m/s undir Ingólfsfjalli fram á miðjan dag og vestan til undir Eyjafjöllum a.m.k. fram á kvöld. Einnig sunnan undir Vatnajökli frá Kvískerjum austur í Hornafjörð fram eftir degi.
Á Suðausturlandi er varað við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Öræfum. Sandfok er á Mýrdalssandi og Skeiðarársandi og á Austurlandi er krapi og hálkublettir á Biskupshálsi og Möðrudalsöræfum.
Ófært víða um land
Á Norðausturlandi er ófært og óveður á Hólasandi, Mývatnsöræfum og Dettifossvegi og þar er ekkert ferðaveður. Þungfært og óveður er á Mývatnsheiði. Ófært og stórhríð er á Víkurskarði. Óveður og krapi er á Ólafsfjarðarmúla. Krapi er á Fljótsheiði, Ljósavatnsskarði og í Dalsmynni. Krapi er á Hófaskarði og Hálsum.
Á Norðurlandi er ófært og stórhríð á Vatnsskarði og ekkert ferðaveður, hálkublettir, krapi og óveður er á Siglufjarðarvegi og ekkert ferðaveður. Krapi er komin á vegi víða í Skagafirði. Snjóþekja og stórhríð er á Öxnadalsheiði.
Snjóþekja og óveður er á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum eru hálkublettir og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.
Leiðin frá Lokinhamradal að Stapadal í Arnarfirði er nú ófær í fjörunni við Skútabjörg og ekki fær neinum bílum a.m.k. til næsta vors.
Þá er orðið ófært um hálendisvegi norðan jökla.
© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Áfram slæmt veður og víða ófært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Mánudagur, 10. september 2012 (breytt kl. 19:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
......í Reykjavík. Samkvæmt skilgreiningu Veðurstofurnar er rok kringum 26 m/s, stormur kringum 23m/s, hvassvirði kringum 19 m/s. Og svo er það allhvass kringum 15 m/s. og ætti passa frekar fyrir Reykjavík.
Veðrið í beinni hjá mér: https://www.facebook.com/groups/11944523719/
http://dj_storhofdi.123.is/blog/2012/09/07/629729/
Innlent | mbl | 10.9.2012 | 15:06
Rok í Reykjavík
Djúp lægð hefur valdið töluverðum usla á landinu í dag og nú upp úr hádegi voru nokkrir tugir björgunarsveitarmanna við störf. Mesti skaðinn vegna veðursins hefur orðið á Norður- og Austurlandi en uppúr hádegi í dag voru björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út þar sem þakplötur höfðu losnað af Hafnarhúsinu við Hafnarstræti.
Búist er við veðrið færist í aukana hér á suðvesturhorninu þegar líður á daginn en veðurstofan spáir norðan hvassviðri eða stormi um mestallt land fram á nótt og Slysavarnarfélagið Landsbjörg ítrekar að lítið ferðaveður sé í dag og í kvöld.
© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Rok í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Mánudagur, 10. september 2012 (breytt kl. 16:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og hér er brot úr dv.is-frétt þar sem þeir héldu því fram að sjálf Þjóðhátíðarbrennan sé að brenna. Enn þar sem fréttin var fljótlega fjarlæg þegar það sanna kom í ljós að svo var ekki. Þá náið ég bara að skjáskota fréttina á facebooksíðu DV.is.
nnlent | mbl | 1.8.2012 | 23:38 | Uppfært 23:57
Brennan ekki í hættu

Brennan í Herjólfsdal. Myndin er úr safni. mbl.is/Sigurgeir
Nokkrir einstaklingar hafa sett sig í samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í kvöld þar sem þeir óttuðust að það væri farið að skíðloga í sjálfri brennunni í Herjólfsdal. Svo er ekki raunin. Lögreglan í Eyjum segir í samtali við mbl.is að varðeldur logi skammt frá brennunni, sem standi heil og ósködduð.
Lögreglan segir að starfsmenn hátíðarsvæðisins hafi kveikt varðeldinn sem séu að taka forskot á sæluna. Allt sé hins vegar með kyrrum kjörum.
Ragnar Þór Baldvinsson, slökkviliðsstjóri í Eyjum, segir í samtali við mbl.is að það sé venja að starfsmenn kveiki varðeld við brennuna á miðvikudagskvöldinu fyrir þjóðhátíð.
Það hefur verið siður hjá þeim, þessum brennupeyjum á miðvikudagskvöldum, en þá hafa þeir kveikt í afgöngum," segir Ragnar.
Hann tekur hins vegar fram að varðeldurinn hafi verið óvenju mikill að þessu sinni og að sér hafi í fyrstu ekki litist á blikuna. Þetta var full mikill varðeldur, fannst mér, á tímabili," segir Ragnar. Aðspurður segir hann að slökkviliðið hafi ekki verið kallað út vegna eldsins. Menn hafi hins vegar talað sig saman og slökkviliðsmenn hafi haft augun á varðeldinum.
Galsinn hefur verið aðeins of mikill segir hann," segir Ragnar og bætir við að nú séu menn sallarólegir í blíðunni í Eyjum.
1 blogg um fréttina » © Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Brennan ekki í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 2. ágúst 2012 (breytt kl. 09:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það virðist einhvað togast á hjá Veðurstofunni hvernig á skera endanlega úr um hvað er raunverulega metið. Þeir virðast treysta hélst á á lestur Veðurathugunarmanna á kvikasilfursloftvog á 3ja tíma fresti frekar enn hið unga kerfi sjálfvirka loftvoga (sjálfvirka veðurstöðva), sem skráðir allan sólarhringinn, enn skilar gögnum á klukkutímafresti. Sem skýtur skökku við þar sem sjálfvirkum veðurstöðvum mun fjölga enn Veðurathugunarmönnum hríðfækkandi. Þannig að metum sem Veðurstofan mun treysta á í framtíðinni fer ört fækkandi. Eins eru þeir ekki að treysta á vindmælana ef þeir eru nýlegir eins og í þessu tilviki Surtsey. Sem setti stöðvarmet í vindhviðu, enn þar sem hún er nýlega uppsett árið 2009(?) þá finnst Veðurstofa það ekki vera met. Mundu ykkur ekki finnast skrýtið ef einhver setur á legg nýja íþróttagrein, og met væru ekki skráð met fyrr enn eftir 7 ár?
Kvikasilfursloftvogarnar á Stórhöfða og Kirkjubæjarklaustur virðist vera að deila opinberalega metinu saman eins og er, 972,8 hpa.
Enn lægsti loftþrýstingur í júlímánuð á Íslandi á sjálfvirkum veðurstöðvum, er 972,4 hpa. á sjálfvirku loftvoginni á Stórhöfða.
Þess má líka geta að 10 mín. meðalvindur á Stórhöfða á laugardagskvöld var sennilega 3. mesti í júlímánuð. Og vindhviðan einhvað álíka. Enn vindhraði er skráður meiri árið 1963 og 1968. Enn þá var tæknin við að mæla vind ekkert sérstaklega góð. Allavega árið 1963.
Athugið vegna galla álestursskjás vindhraða á Stórhöfða fyrir Veðurathugunarmann og því sem sjálfvirki sendi svo sömu gögn. Þá er mesti 10 mín. meðalvindhraði á álestursskjá 31,4 m/s. enn ekki 30,9 m/s. Verst að maður er búinn að bíða í mörg ár að þetta sé lagað eða fá því úrskurða hvort er réttara.
Nýtt lágþrýstimet í júlímánuði
Meir en aldargamalt met fellur
23.7.2012
Sunnudaginn 22. júlí 2012 kom mjög djúp og víðáttumikil lægð upp að suðurströndinni. Þrýstingur í lægðarmiðju var óvenju lágur miðað við árstíma og um kvöldið mældist hann lægri heldur en áður er vitað um í júlímánuði.
Lágur þrýstingur
Lægsti þrýstingurinn mældist á sjálfvirku stöðinni á Stórhöfða í Vestmannaaeyjum, 972,4 hPa frá kl. 21:30 til 22:30. Á mönnuðu stöðinni á sama stað var lægst lesið í athugun kl. 21, 972,8 hPa. Á nokkrum sjálfvirkum stöðvum fór þrýstingur ámóta neðarlega. Í Grindavík kl. 18:10 (972,7 hPa), í Vestmannaeyjabæ kl. 21:30 til 22:40 (973,0 hPa), í Surtsey kl. 21:40 (972,7 hPa) og í Önundarhorni kl. 23:40 (972,6 hPa). Loftvog mældist 972,8 hPa á Kirkjubæjarklaustri kl. 3 aðfaranótt 23. júlí.
Allar tölurnar eru leiðréttar til sjávarmáls. Þar sem stöðvarnar á Stórhöfða eru í um 120 metra hæð er óvissa í þeirri leiðréttingu meiri heldur en á hinum stöðvunum. Þar til næsta kvörðun fer fram á sjálfvirku mælunum á stöðvunum telst lágþrýstimet júlímánaðar 972,8 hPa - mælt á Stórhöfða kl. 21, þann 22. júlí og á Kirkjubæjarklaustri kl. 3 þann 23. júlí.
Gamla metið var sett í Stykkishólmi þann 18. júlí 1901 og var 974,1 hPa, tvisvar síðar, þann 19. júlí 1923 varð þrýstingur ámóta lágur - einnig í Stykkishólmi og 11. júlí 1912 í Reykjavík. Hafa ætti í huga að á þessum árum var aðeins mælt þrisvar á dag. Þéttari mælingar hefðu e.t.v. skilað lítillega lægri þrýstitölum.
Hvassviðri
Talsvert hvassviðri fór á undan lægðinni nú en hvassast var um sólarhring áður en sjálf lægðarmiðjan kom að landinu. Vindhraðamet fyrir júlí voru sett á nokkrum sjálfvirkum stöðvum sem starfað hafa meira en fimm ár. Nýju 10-mínútna metin eru (tölur í m/s):
stöð | byrjar | metár | mán | dagur | klst | vindhr | NAFN |
6015 | 2002 | 2012 | 7 | 21 | 21 | 19,1 | Vestmannaeyjabær |
6017 | 2004 | 2012 | 7 | 21 | 21 | 30,9 | Stórhöfði sjálfvirk stöð |
6222 | 2000 | 2012 | 7 | 21 | 21 | 18,1 | Sámsstaðir |
6546 | 2005 | 2012 | 7 | 21 | 24 | 24,8 | Vatnsfell |
Og hviðumetin (m/s):
stöð | byrjar | metár | mán | dagur | klst | vindhr | NAFN |
2641 | 2005 | 2012 | 7 | 23 | 10 | 27,8 | Seljalandsdalur - skíðaskáli |
2642 | 1999 | 2012 | 7 | 22 | 3 | 26,8 | Ísafjörður sjálfvirk stöð |
6015 | 2002 | 2012 | 7 | 21 | 21 | 31,8 | Vestmannaeyjabær |
6546 | 2005 | 2012 | 7 | 21 | 23 | 33,3 | Vatnsfell |
Hviðumet fyrir júlí voru sett á tveimur vegagerðarstöðvum sem starfað hafa í meir en sjö ár:
stöð | byrjar | metár | mán | dagur | klst | vindhr | NAFN |
36127 | 2002 | 2012 | 7 | 21 | 21 | 39,5 | Hvammur |
36519 | 2002 | 2012 | 7 | 21 | 24 | 26,3 | Gullfoss |
Innlent | mbl | 23.7.2012 | 13:38 Upplestur á frétt
Nýtt lágþrýstimet í júlí


mbl.is/Kristinn
Trausti Jónsson veðurfræðingur segir ljóst að gamalt lágþrýstimet júlímánaðar á Íslandi hafi verið slegið í gær. Gamla metið, sem var sett í Stykkishólmi árið 1901, var 974,1 hPa en nýja hafi verið á bilinu 972-973 hPa. Ekki er munurinn mikill - en samt," skrifar Trausti á bloggsíðu sína.
En í framhaldi af þessu vaknar sú spurning hversu langt niður loftþrýstingur getur farið niður í júlímánuði. Greiningar reiknimiðstöðva benda til þess að þrýstingur í þessari lægð hafi lægstur orðið um 966 hPa - en hún er nú farin að grynnast. Hún hefði auðvitað getað orðið svona djúp yfir íslenskri veðurstöð," skrifar Trausti ennfremur.
2 blogg um fréttina » © Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Nýtt lágþrýstimet í júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Mánudagur, 23. júlí 2012 (breytt kl. 18:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þar sem blaðamaður Morgunblaðsins/MBL.is nái ekki að taka símaviðtal við Veðurfræðing Veðurstofu Íslands vegna anna seint í gærkvöldið, sennilega vegna manneklu. Þá var hringt beint í gemsann minn og ég spurður spjörunum úr, ásamt því að blaðamaður studdist við tvennar bloggsíður minnar. Og þar sem ég er bara "lítill" Veðurathugunarmaður, þá hef afar takmörku gögn í höndunum, og því er erfitt að staðfesta hlutina svo þeir verði rétt. Eða þá hvernig opinberar reglur Veðurstofurnar um löggild met eru úrskurðu á milli mannaða athugunar og sjálfvirka veðurmæla.
Þannig að allar vitleysur í þessari grein eru á mína ábyrgð. Takk kærlega fyrir það Veðurfræðingar...........
T.d. birtist hér á mbl.is að loftþrýstingur á sjálfvirka loftvogsmælinum á Stórhöfða sé óstaðfestur 972,4 hpa. kl.22. Rétta er að hann fór í þessa tölu, enn er óstaðfest sem opinbert met. Hinsvegar er sennilegt að 972,4 hpa .verði talið júlímánaðarmet sjálfvirka mæla á Íslandi.
Svo kom þetta í Morgunblaðinu:
Vindmet á Stórhöfða í júlí
Vindur hefur ekki mælst meiri á sjálfvirku stöðvunum á Stórhöfða og í Vestmannaeyjabæ í júlí heldur en á laugardagskvöldið, að því er Trausti Jónsson veðurfræðingur sagði á bloggi sínu (trj.blog.is).Að sögn Veðurstofunnar mældist 37,1 m/s hviða klukkan 21 á Stórhöfða en vindur var 30,9 m/s. Í Vestmannaeyjabæ var vindur kl. 21 19,1 m/s en 31,8 m/s hviða mældist þar. Mesti vindur í júlí á Stórhöfða í veðurskeyti fram að því var 35 m/s þann 21. júlí 1963. Rétt fyrir klukkan 21 á laugardagskvöld mældist tæplega 40 m/s hviða á stöð Vegagerðarinnar í Hvammi undir Eyjafjöllum.
Sólarhringsúrkoma í Bláfjöllum mældist 70,2 mm á laugardag en á sama tíma rigndi einungis 2,3 mm í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Fjöllin skýldu því borgarbúum.
Þarna á að vera júlí-mánaðarmet sjálfvirka vindmæla Stórhöfða (2004-2012), Vestm.bæjar (200?-2012) var stövarmet júlí-mánaðar bæði 10 mín. meðalvindhraði og í mestu vindhviðu. Enn Surtseyj (2009?-2012) setti bara stöðvarmet í vindhviðu þar.
10 mín. meðalvindhraði á laugardaginn á Stórhöfða er allavega sá 3. mesti í júlí á stöðinni. Sá mesti var árið 1963 35 m/s. á mjög frumstæðum mælitækjum sem ég kann ekki skil á. Og svo er það 34 m/s. á síritinda vindælir árið 1968.
Svo er mesta vindhviða júlimánaðar á Stórhöfða 43 m/s. árið 1969. Enn veit ekki hvað mikið það var 1963, ef það var þá hægt að mæla það með þessum frumstæðum mælitækjum.
Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2012 | 5:30
Veðurmet í júlí á Stórhöfða


Vindasamt getur orðið á Stórhöfða. mbl.is
Loftþrýstingur á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist 972,8 hPa á kvikasilfursloftvog klukkan 21 í gærkvöldi. Hefur loftþrýstingur aldrei mælst jafn lágur í júlímánuði. Sjálfvirkur mælir sýndi 972,4 hPa klukkan 22. Tölurnar eru óstaðfestar.
Fyrra loftþrýstingsmet í júlí var sett í Stykkishólmi 18. júlí 1901, 974,1 hPa, að því er fram kemur í umfjöllun um veðurfar helgarinnar í Morgunblaðinu í dag.
Djúpa lægðin sem gekk yfir landið um helgina olli því að vindamet júlímánaðar var einnig slegið á Stórhöfða á laugardagskvöldið var.
Nánar um máliðí Morgunblaðinu Áskrifendur:
Lesa blaðið hér Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir © Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Veðurmet í júlí á Stórhöfða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Mánudagur, 23. júlí 2012 (breytt kl. 08:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lægsti loftþrýstingur í Vestmannaeyjum/á Íslandi(?) 22.07.2012:
Stórhöfði 972,3 hpa. kl.22. (kvikasilfursmælir). Mjög óstaðfest að þetta sé endalegt met þar sem kvikasilfursmælingar eru fræmkvæmdar á 3ja klukkutíma fresti enn sjálfvirku klukkutíma fresti. Og því líklegt að sjálfvirki hefur vinninginn. Enn hinsvegar er búið að vera stillt veður og því ekki ólíklegt að skekkjumörkinn séu -0,1 minna á kvikasilfursmælinum enn sjálfvirka. Enn endanlega útskurður dæma Veðurfræðingarnir á V.Í. Þar sem Trausti Jónson er sennilega yfirdómari. Hinsvegar er alveg öruggt að 111 ára met Stykkilshólms um lægsta loftþrýsting í júlí á Íslandi er fallið. Og eins og er er mestar líkur á að það verði sjálfvirki loftvogsmælirinn sem hreppir hnóssið, 972,4. Enn það getur hugsanlega verið líka að það sé einhvað minna í nágrenni Vestmanneyjar.
Stórhöfði 972,8 hpa. kl.21. (kvikasilfursloftvog)(Einar Sveinbjörnsson Veðurfræðingur staðfestir að þetta sé metið)
Stórhöfði 972,4 hpa. kl.22. (sjálfvirki).
Vestm.bær 973,0 hpa kl.22.
Surtsey 972,8 hpa. kl.22.
Trausti Jónsson Veðurfræðingur um metið.
Mynd af loftvoginni meiga allir nota ef nafn mitt er nefnd (Pálmi Freyr Óskarsson).
(Loka)Uppfært kl.1:50.Innlent | mbl | 22.7.2012 | 11:52 | Uppfært 13:05 Upplestur á frétt
Fellur metið í kvöld?


Úrkomuspá fyrir kvöldið í kvöld, sunnudaginn 22. júlí. www.vedur.is
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að lægðin sem er að ganga yfir landið sé með þeim dýpstu sem sést hafi í júlímánuði. Hann telur líklegt að loftþrýstingsmetið, sem er frá árinu 1901, muni falla síðar í dag eða í kvöld.
Hann segir á bloggi sínu að hann hafi fylgst vel með lægðinni í gær, og að SA-strengurinn sem kom á undan skilunum hafi verið líkari því sem gerist í haustlægðum en að sumri til. Vindhraði hafi verið að jafnaði mun meiri í um 1.000-1.500 metra hæð en við yfirborð jarðar eða um 20-25 m/s á móti 8-12 m/s. Hins vegar hafi á stöku stað mælst hraðari vindur, einkum á sunnanverðu landinu, og nefnir hann að mesta vindhviðan hafi verið við Hvamm undir Eyjafjöllum þar sem vindhraðinn var um 40 m/s.
Einar veltir fyrir sér hverju sætir, og segir hugsanlegt að við þær aðstæður um miðsumar þegar tiltölulega hlýtt er við yfirborð og mjög hlýtt í miðlægum loftlögum nái vindur síður að slá sér niður til yfirborðsins en fljóti að mestu yfir landið. Hins vegar vanti reynslu á svona aðstæður að sumri til til þess að hægt sé að fullyrða um þetta.
Einar segir að lokum: Það breytir þó því ekki að lægðin er með þeim allra dýpstu sem sést hafa hér við land í háa herrans tíð í júlí (en þætti hins vegar ekkert merkileg um mánaðamótin ágúst/september). Afar líklegt má telja að loftþrýstingsmetið frá 1901 falli síðar í dag eða í kvöld. 974,1 hPa mælsist í Stykkishólmi 18. júlí það ár. Sennilega fer þrýstingur niður í 971-972 hPa á Stórhöfða eftir því sem lægðarmiðjan sjálf nálgast, en hún er aðeins farin að grynnast eftir að hafa náð mestu dýpt snemma í morgun."
1 blogg um fréttina » © Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Fellur metið í kvöld? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Sunnudagur, 22. júlí 2012 (breytt 23.7.2012 kl. 02:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Staða júli-úrkomu 2012 á Stórhöfða 21. júlí kl.18 er 18,1 mm. Þannig að gamla júlí-mánaðarúrkoman frá 1930 heldur velli.
Mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestmannaeyjum 21.07.2012:
Stórhöfði 31,4 m/s. kl.22. (ASA-átt).
Vestm.bær 19,1 m/s. kl.21. (ASA-átt).
Surtsey 18,9 m/s. kl.21. (A-átt)
Mesta 10 mín. meðalvindhraði á Stórhöfða í júli-mánuði síðan síritandi vindmælir var settur upp árið 1968 og svo sjálfvirkur vindmælir árið 2004, er 34 m/s. og vindhviða upp í 43 m/s. þann 30. júlí. 1969. (Enn það getur verið að það sé til meiri vindhraði þar sem maður þarf sjálfur að leita af þessum upplýsingum).
Sennilega er búið að bæta stöðvar-vindhraðamet í júlímánaðar á sjálfvirkum mælum Stórhöfða, Vestm.bæjar og Surtsey sem spannar til ársins 2004?.
Mesta vindhviða íi Vestmannaeyjum 21.07.2012:
Stórhöfði 36,6 m/s. kl.21. (ASA-átt).
Vestm.bær 31,8 m/s. kl.20. (ASA-átt).
Surtsey 25,9 m/s. kl.20. (ASA-átt).
Lægsti loftþrýstingur í Vestmannaeyjum 21.07.2012:
Stórhöfði 985,8 hpa kl. 21.
Mesta 10 mín. meðalvindhraði á Íslandi 21.07.2012:
Stórhöfði
Mesta vindhviða á Íslandi 21.07.2012:
(V.Í. hefur ekki metnað til að segja frá því).
Lægsti loftþrýstingur á Íslandi 21.07.21012:
(V.Í. hefur ekki metnað til að segja frá því).
Uppfært kl.21:45 í gærkveldið. Á eftir að bæta í þetta seinna í kvöld.
Skrítinn þessi frétt hérna á mbl.is um að mesti vindur hefur verið í Hvammi enn ekki á Stórhöfða.
Innlent | mbl | 22.7.2012 | 13:06 | Uppfært 15:00 Upplestur á frétt
Rigndi mest í Bláfjöllum


Úrkomuspá fyrir kvöldið í kvöld, sunnudaginn 22. júlí. www.vedur.is
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands rigndi mest í Bláfjöllum í gær, en sólarhringsúrkoma þar nam 70,2 mm. Má segja að Bláfjöll hafi tekið skellinn af Reykjavík, því úrkoma þar á sama tíma var einungis um 2,3 mm.
Vindur náði hámarki á landinu á milli átta og níu í gærkvöldi. Meðalvindhraði var mestur á Stórhöfða í Vestmannaeyjum, en þar var hann 31 m/s, og náðu vindhviður þar mest um 35 m/s. Hvassast var hins vegar í Hvammi undir Eyjafjöllum, en einstakar vindhviður þar náðu upp í 40 m/s. Þó var meðalvindhraði þar einungis á bilinu 18-19 m/s.
Í dag verður SA-átt, milt og væta um mestallt landið, líklega mest á Suðausturlandi en minnst norðaustanlands. Á morgun er gert ráð fyrir norðanátt og kólnar þá fyrir norðan, með stífum vindi á Norðvesturlandi en léttir til sunnanlands. Á þriðjudaginn er svo gert ráð fyrir góðviðri um allt landið, enda hafi lægðin þá gengið alveg hjá.
1 blogg um fréttina »
![]() |
Rigndi mest í Bláfjöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Sunnudagur, 22. júlí 2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
......á Reykjavík hófst kl.08:10 í morgun.
Sagan segir að Geir Jón sé á leiðinni með Herjólfi til að allt fari skikkanlega fram....
![]() |
Ekki annað eins í 32 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 7. júní 2012 (breytt kl. 08:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
........þingheimur séu svefndrukknir af þreytu???????????
Innlent | mbl | 7.6.2012 | 8:12
Sitja heima og blogga um drykkju


Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is
Maður er hálfsleginn yfir því hvernig þessi umræða er að þróast. Ekki einasta að Björn Valur Gíslason komi með dylgjur um að þingmenn séu drukknir, heldur sitja líka þingmenn heima hjá sér og blogga um að við sem erum að starfa hér í þágu þjóðarinnar séum hér drukkin í vinnunni," sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins á Alþingi í nótt.
Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði á þingi í nótt að sér virtist sem einn þingmanna væri undir áhrifum áfengis.
Vigdís nafngreindi bloggarann ekki, en sagði að um væri að ræða sama mann og hafði hér uppi mjög slæm meiðyrði um forseta íslands í andsvari við mig á sínum tíma."
Á einhvern undarlegan hátt virðist þessi þingmaður sífellt sleppa við vítur eða áminningar og þarf aldrei að biðjast afsökunar," sagði Vigdís og sagðist vænta þess að viðkomandi fengi nú þá ráðningu sem honum bæri. Forsætisnefnd verður núna að setjast niður og búa hér til einhverjar reglur."
Frétt mbl.is: Sagði alþingismann vera drukkinn
© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
![]() |
Sitja heima og blogga um drykkju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Fimmtudagur, 7. júní 2012 (breytt kl. 08:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dægurmál | Fimmtudagur, 7. júní 2012 (breytt kl. 04:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)