Átti Björn Valur ekki við að........

........þingheimur séu svefndrukknir af þreytu???????????

 Innlent | mbl | 7.6.2012 | 8:12

Sitja heima og blogga um drykkju

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. stækka

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is

„Maður er hálfsleginn yfir því hvernig þessi umræða er að þróast. Ekki einasta að Björn Valur Gíslason komi með dylgjur um að þingmenn séu drukknir, heldur sitja líka þingmenn heima hjá sér og blogga um að við sem erum að starfa hér í þágu þjóðarinnar séum hér drukkin í vinnunni," sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins á Alþingi í nótt.

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði á þingi í nótt að sér virtist sem einn þingmanna væri undir áhrifum áfengis. 

Vigdís nafngreindi bloggarann ekki, en sagði að um væri að ræða sama mann „og hafði hér  uppi mjög slæm meiðyrði um forseta íslands í andsvari við mig á sínum tíma."

„Á einhvern undarlegan hátt virðist þessi þingmaður sífellt sleppa við vítur eða áminningar og þarf aldrei að biðjast afsökunar," sagði Vigdís og sagðist vænta þess að viðkomandi fengi nú þá ráðningu sem honum bæri.  „Forsætisnefnd verður núna að setjast niður og búa hér til einhverjar reglur."

Frétt mbl.is: Sagði alþingismann vera drukkinn 

© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
mbl.is Sitja heima og blogga um drykkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snati Skallagríms glefsar þegar honum er sigað! Verst er að hann bítur líka eigin flokksmenn!

Almenningur (IP-tala skráð) 7.6.2012 kl. 08:34

2 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Þetta pakk niður á Austurvelli er allt meira og minna rallhálft allan daginn, bæði þeir sem liggja í grasinu fyrir framan styttuna af Jóni og þeir sem eru að þrasa á hinu lága alþingi.

Guðmundur Pétursson, 7.6.2012 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband