Veðrið í Vestmannaeyjum/(Íslandi) í beinni 10.09.2012:

xxxxx
Mesti10.mín.meðalvindhraði í Vestmannnaeyjum 10.09.2012:
Stórhöfði    36,444 m/s. kl.17
Vestm.bær 12,0 m/s.kl. 18.
Surtsey      16,4 m/s. kl.13.

Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum 10.09.2012:
Stórhöfði    42,1m/s. kl. 18.
Vestm.bær  41,5 m/s. kl. 18. (Sennilega vindhviðumet síðan stöðin hóf störfum árið 2002.)
Surtsey      29,1 m/s. kl. 13.

Lægsti hiti í Vestmannaeyjum 10.09.2012:

Mresta 10.mín. meðalvindhraði á Íslandi 10.09.2012:
Bjarnarflag 61,1 m/s.?????? (sennilega bilun í mæli).
Ennisholt 43,6
Svartárskot 37,3 m/s.

-Ekki fullklárað - Uppfært kl.18:50. Er núna mættur á verðurvaktinna


http://dj_storhofdi.123.is/blog/2012/09/10/630141/

https://www.facebook.com/groups/11944523719/

http://dj_storhofdi.123.is/blog/2012/09/10/630141/
 

Innlent | mbl | 10.9.2012 | 16:15

Áfram slæmt veður og víða ófært

Slæmt veðurútlit er það sem eftir er dags. stækka

Slæmt veðurútlit er það sem eftir er dags. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Veður mun áfram haldast slæmt meira og minna í allan dag, með norðanátt 15-22 m/s. Mikil úrkoma er norðanlands og svo verður fram á kvöld. Gera má ráð fyrir snjó og sums staðar talsverðri ofankomu ofan 200-300 metra hæðar og krapa í 100-200 metra hæð. Ófært er víða um land.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Þetta á einkum við um fjallvegina norðanlands allt austur á Möðrudalsöræfi, en einnig verður snjófok vestar s.s. á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði.

Þá er reiknað með snörpum vindhviðum yfir 30 m/s undir Ingólfsfjalli fram á miðjan dag og vestan til undir Eyjafjöllum a.m.k. fram á kvöld. Einnig sunnan undir Vatnajökli frá Kvískerjum austur í Hornafjörð fram eftir degi.

Á Suðausturlandi er varað við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Öræfum. Sandfok er á Mýrdalssandi og Skeiðarársandi og á Austurlandi er krapi og hálkublettir á Biskupshálsi og Möðrudalsöræfum.

Ófært víða um land

Á Norðausturlandi er ófært og óveður á Hólasandi, Mývatnsöræfum og Dettifossvegi og þar er ekkert ferðaveður. Þungfært og óveður er á Mývatnsheiði. Ófært og stórhríð er á Víkurskarði. Óveður og krapi er á Ólafsfjarðarmúla. Krapi er á Fljótsheiði, Ljósavatnsskarði og í Dalsmynni.  Krapi er á Hófaskarði og Hálsum.

Á Norðurlandi er ófært og stórhríð á Vatnsskarði og ekkert ferðaveður, hálkublettir,  krapi og óveður er á Siglufjarðarvegi og ekkert ferðaveður. Krapi er komin á vegi víða í Skagafirði. Snjóþekja og stórhríð er á Öxnadalsheiði.

Snjóþekja og óveður er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.

Leiðin frá Lokinhamradal að Stapadal í Arnarfirði er nú ófær í fjörunni við Skútabjörg og ekki fær neinum bílum a.m.k. til næsta vors.

Þá er orðið ófært um hálendisvegi norðan jökla.

© Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

 


mbl.is Áfram slæmt veður og víða ófært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband