'IBV-FRAM

Mörk

ÍBV - Tryggvi Guðmundsson (90 mín.)

Áminningar

Samuel Tillen (Fram) (69 mín.)
Kristján Hauksson (Fram) (60 mín.)
Andri Ólafsson (ÍBV) (50 mín.)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV) (42 mín.)
Almarr Ormarsson (Fram) (20 mín.)

Skot á mark

Fram 1
ÍBV 9

Skot framhjá

Fram 4
ÍBV 6

Hornspyrnur

Fram 3
ÍBV 7
2 blogg um fréttina » © Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
 

Aðstæður
Hiti 11 gráður og austan rok sem stendur beint á annað markið. Hásteinsvöllur kemur mjög vel undan vetri.

Dómari: Þorvaldur Árnason
Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þórleifsson og Andri Vigfússon

mín.
90
Eyjamenn fagna vel og innilega enda stóð sigurinn eins tæpt og frekast getur orðið. Tryggvi Guðmundsson, einn leikreyndasti leikmaður Íslandsmótsins tryggði sínu liði þrjú stig í dag. Framarar mega vera ósáttir enda benti allt til þess að þeir myndi ná í eitt stig í það minnsta. Lokatölur 1-0 fyrir ÍBV.
90Leik lokið
Framarar rétt náðu að taka miðju og Þorvaldur dómari flautaði til leiksloka.
90MARK! Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) skorar
1-0 Tryggvi Guðmundsson fylgdi eftir skoti Þórarins Inga Valdimarssonar og skoraði úr þröngu færi úr markteig. Leikklukkan sýndi nákvæmlega 93 mínútur þegar boltinn fór í netið.
90
Venjulegur leiktími er liðinn og verða þrjár mínútur í uppbótartíma.
90
Jordan Connerton, sóknarmaður ÍBV virtist vera að sleppa í gegnum vörn Framara eftir glæsilega stungusendingu Tryggva Guðmundssonar. En Connerton féll við og var engu líkara en að Jón Guðni Fjóluson hefði farið aftan í hann. En Þorvaldur Árnason, dómari dæmdi ekkert, umdeilt.
89
Liðin skiptust á að sækja síðustu mínútuna. Eyjamenn voru í þungri sókn en upp úr henni komust Framarar í skyndisókn, fjórir gegn þremur en Hlynur Atli Magnússon fór illa að ráði sínu í upplögðu færi fyrir Framara.
87Fram fær hornspyrnu
86Jón Guðni Fjóluson (Fram) á skot framhjá
Framarar fengu aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ÍBV. Jón Guðni ákvað að láta vaða en skotið var arfaslakt og langt framhjá.
83Guðmundur Þórarinsson (ÍBV) kemur inn á
83Ian Jeffs (ÍBV) fer af velli
82Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV) á skot framhjá
Ágætis skot hjá Þórarni af löngu færi en naumlega framhjá.
80Kelvin Mellor (ÍBV) kemur inn á
80Arnór Eyvar Ólafsson (ÍBV) fer af velli
80Fram fær hornspyrnu
80Jón Gunnar Eysteinsson (Fram) á skot framhjá
Þung sókn Framara endaði með því að Jón Gunnar fékk boltann inn í vítateig og lét vaða á markið. Boltinn fór í hliðarnetið en hafði viðkomu í varnarmanni.
69Jordan Connerton (ÍBV) kemur inn á
69Denis Sytnik (ÍBV) fer af velli
69Samuel Tillen (Fram) fær gult spjald
Braut á Arnóri Eyvari, nett pirraður Tillen.
67ÍBV fær hornspyrnu
67Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV) á skot sem er varið
Frábært upphlaup hjá Eyjamönnum endaði með því að bakvörðurinn Arnór Eyvar Ólafsson sendi laglega stungusendingu inn á Þórarinn Inga sem skaut að marki en Ögmundur varði meistaralega í horn.
67Kristinn Ingi Halldórsson (Fram) á skot framhjá
Kristinn Ingi reyndi skot af mjög löngu færi og boltinn fór vel framhjá.
65Hlynur Atli Magnússon (Fram) kemur inn á
65Almarr Ormarsson (Fram) fer af velli
63
Framarar hafa ekki sýnt neina tilburði í þá átt að nýta sér sterkan meðvind á Hásteinsvellinum. Þeir reyna mikið af löngum sendingum fram völlinn sem varnarmenn ÍBV eru ekki í miklum vandræðum með. Í raun hafa Eyjamenn verið mun beittari gegn vindinum það sem af er síðari hálfleiks og líklegri til að skora þegar þetta er skrifað.
60Kristján Hauksson (Fram) fær gult spjald
Kristján braut á Denis Sytnik sem var við það að sleppa í gegn. Skynsamlegt brot og Kristján fær réttilega gula spjaldið.
58Guðmundur Magnússon (Fram) kemur inn á
58Hjálmar Þórarinsson (Fram) fer af velli
58ÍBV fær hornspyrnu
58Andri Ólafsson (ÍBV) á skot sem er varið
Andri með skot í varnarmann og yfir markið. Eyjamenn fá horn.
57Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) á skot í stöng
Eftir frekar rólegar mínútur var Tryggva farið að leiðast þófið. Hann fékk boltann fyrir utan teig, lagði hann fyrir sig og skaut að marki en boltinn small í stönginni. Ian Jeffs fylgdi eftir og féll við eftir viðskipti sín við Jón Guðna Fjóluson en réttilega ekkert dæmt.
50Andri Ólafsson (ÍBV) fær gult spjald
Andri braut á Arnari Gunnlaugssyni við miðlínuna, frekar saklaust brot og gult spjald full mikil refsing.
47Denis Sytnik (ÍBV) á skot framhjá
Þórarinn Ingi átti ágæta fyrirgjöf þar sem Sytnik hafði betur gegn Kristjáni Haukssyni, varnarmanni Framara en Úkraínumaðurinn náði lúmsku skoti að marki. Boltinn rúllaði hins vegar meðfram marklínunni og enginn Eyjamaður náði að reka smiðshöggið á annars ágæta sókn.
46Leikur hafinn
Eyjamenn byrja með boltann og leika nú gegn vindi.
45
Eyjamenn hljóta að vera svekktir með fyrri hálfleikinn enda léku þeir undan sterkum vindinum. Þeir byrjuðu ágætlega og sóttu talsvert fyrstu mínúturnar en smá saman náðu Framarar að vinna sig inn í leikinn. Þegar upp var staðið voru Framarar nærri því að skora en Eyjamenn. Besta færið fékk Almarr Ormarsson á 20. mínútu en Albert Sævarsson, markvörður ÍBV varði meistaralega. Hinu megin varði Ögmundur Kristinsson glæsilega þegar Tonny Mawejje átti þrumuskot af löngu færi en Ögmundur, sem á aðeins fjóra leiki að baki með meistaraflokki Fram, er að standa sig vel í dag.
45Hálfleikur
Þremur mínútum var bætt við fyrri hálfleikinn en Þorvaldur Árnason, dómari leiksins hefur flautað til leikhlés. Staðan 0-0 á Hásteinsvellinum.
45
Nú er venjulegum leiktíma í fyrri hálfleik lokið á Hásteinsvelli og aðeins viðbótartími eftir.
45Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV) á skot sem er varið
Skyndisókn hjá Eyjamönnum. Þórarinn Ingi lék inn í vítateig og skaut að marki en beint á Ögmund sem þorði ekki annað en að slá boltann í burtu þótt hann hefði sjálfsagt getað gripið hann.
43Fram fær hornspyrnu
Fyrsta hornspyrna Framara sem eru enn manni færri eftir að Halldór Hermann meiddist.
42Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV) fær gult spjald
Eiður Aron má teljast heppinn að hafa ekki fengið rauða spjaldið eftir full glannalega tæklingu á Halldóri Hermanni Jónssyni. Eiður fékk gula spjaldið en Halldór er studdur af leikvelli.
40
Tryggvi Guðmundsson sýndi skemmtileg tilþrif í baráttunni við Kristján Hauksson, fyrirliða Fram. Kristján féll við og boltinn lá á milli lappanna á honum. Tryggvi tók boltann á milli eigin lappa og hoppaði með hann yfir Kristján.
35Ian Jeffs (ÍBV) á skot sem er varið
Ágætis samspil Eyjamanna endaði með því að Tryggvi Guðmundsson lagði boltann á Ian Jeffs sem reyndi hnitmiðað skot utan teigs en Ögmundur varði örugglega.
31ÍBV fær hornspyrnu
31Tonny Mawejje (ÍBV) á skot sem er varið
Úgandamaðurinn Tonny Mawejje fékk boltann óvænt frá varnarmönnum Fram, líklega eina 25 metra frá marki. Hann lét vaða en Ögmundur sló boltann yfir slánna.
29
Lítið að gerast þessar síðustu mínútur. Framarar hafa unnið sig inn í leikinn en þeirra hlutskipti í fyrri hálfleik til þessa hefur fyrst og fremst verið að verjast. Það hafa þeir hins vegar gert ágætlega en boltinn er aðallega á miðjusvæðinu þessa stundina.
24Denis Sytnik (ÍBV) á skot framhjá
Aftur reynir Sytnik skot utan teigs og aftur skýtur hann framhjá.
20Almarr Ormarsson (Fram) fær gult spjald
Almarr sótti full ákaft í Albert Sævarsson, markvörð ÍBV eftir að hann missti boltann frá sér og sparkaði í höfuðið á Alberti. Almarr fékk að launum gula spjaldið og Albert harkaði af sér.
20Almarr Ormarsson (Fram) á skot sem er varið
Frábær skyndsókn Framara. Miðjumaðurinn Kristinn Ingi stakk sér inn fyrir vörn ÍBV og var kominn einn í gegn. Hann sendi boltann til hliðar þar sem Almarr kom aðvífandi og lét vaða en Albert varði meistaralega. Albert missti reyndar boltann frá sér en náði honum aftur á síðustu stundu.
18Denis Sytnik (ÍBV) á skot framhjá
Eyjamenn unnu boltann á miðjunni, Sytnik geystist fram með boltann og lét á endanum vaða á markið en vel framhjá. Leikmenn virðast vera í erfiðleikum með að stilla miðið.
16Hjálmar Þórarinsson (Fram) á skot framhjá
Fyrsta markskot Framara í leiknum. Þeir náðu ágætis sókn, léku vel sín á milli þar til Hjálmar Þórarinsson fékk boltann við hægra vítateigshornið. Fyrsta snerting Hjálmars var slæm og skotið ennþá verra, fór langt framhjá.
12
Eyjamenn hafa öll völd á vellinum fyrstu mínúturnar og í raun hafa Framarar aðeins einu sinni komist í álitlega sókn. Gestirnir úr Safamýrinni virðast vera í erfiðleikum með að hemja boltann á móti sterkum vindinum.
10ÍBV fær hornspyrnu
Þriðja hornspyrna Eyjamanna á stuttum tíma.
10ÍBV fær hornspyrnu
10Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV) á skot sem er varið
Eftir hornspyrnu Tryggva Guðmundssonar, átti Þórarinn Ingi skot að marki og Eyjamenn vildu meina að boltinn hefið verið inni en Þorvaldur Árnason dómari var ekki á sama máli.
9ÍBV fær hornspyrnu
5Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) á skot framhjá
Ögmundur sparkaði frá marki, beint á Tryggva sem reyndi skot í fyrstu snertingu en boltinn fór hátt yfir.
3Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV) á skot sem er varið
Þórarinn Ingi elti boltann upp við hægri vítateigslínuna og sendi háan bolta fyrir. Vindurinn greip boltann og Ögmundur Kristinsson, markvörður Framara náði að slá boltann frá.
2Andri Ólafsson (ÍBV) á skalla sem fer framhjá
Fyrsta hálffæri Íslandsmótsins. Tonny Mawejje tók spyrnuna og sendi á fjærstöng þar sem Andri Ólafsson náði að skalla boltann í átt að marki en skallinn var slappur og fór langt framhjá.
1ÍBV fær hornspyrnu
Eyjamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
1Leikur hafinn
Framarar hefja leik og spila á móti vindi, til austurs í átt að bænum.
0
Veðrið virðist draga úr stuðningsmönnum ÍBV því stúkan er frekar fámenn, nú þegar leikmenn ganga inn á völlinn. Gera má ráð fyrir því að það bætist í hana þegar líður á.
0
Talsverð umræða hefur verið um knattspyrnuvellina að undanförnu og ástand þeirra í upphafi Íslandsmótsins. Hásteinsvöllur er yfirleitt með þeim fyrstu til að verða leikhæfur og engin undantekning á því í ár því völlurinn lítur mjög vel út. Hins vegar gæti rokið sett strik í reikninginn í dag því austan vindurinn stendur beint á annað markið.
0
Tryggva Guðmundssyni, leikmanni ÍBV vantar nú aðeins tíu mörk til að slá markamet Inga Björns Albertssonar. Ingi Björn skoraði 126 mörk í efstu deild á sínum ferli en Tryggvi hefur nú skorað 116. Síðasta sumar skoraði Tryggvi níu mörk fyrir ÍBV en Tryggvi lék um sjö ára skeið í Noregi. Hann er að sjálfsögðu í byrjunarliði Eyjamanna í dag.
0
Byrjunarlið Fram: Ögmundur Kristinsson, Kristján Hauksson, Kristinn Ingi Halldórsson, Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Samuel Lee Tillen, Hjálmar Þórarinsson, Almarr Ormarsson, Arnar Bergmann Gunnlaugsson, Jón Guðni Fjóluson, Jón Orri Ólafsson. Varamenn: Denis Cardakilja, Hlynur Atli Magnússon, Andri Júlíusson, Orri Gunnarsson, Guðmundur Magnússon, Tómas Leifsson, Mark Redshaw, Stefán Birgir Jóhannesson. Byrjunarlið ÍBV: Albert Sævarsson, Matt Garner, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Andri Ólafsson, Tryggvi Guðmundsson, Tonny Mawejje, Arnór Eyvar Ólafsson, Denis Sytnik, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Rasmus Steenberg Christiansen, Ian David Jeffs. Varamenn: Abel Dhaira, Brynjar Gauti Guðjónsson, Finnur Ólafsson, Yngvi Magnús Borgþórsson, Guðmundur Þórarinsson, Jordan Connerton, Kelvin Mellor.
0
ÍBV og Fram léku í sama riðli í Lengjubikarnum og mættust á Framvellinum í byrjun apríl. Þá höfðu Eyjamenn betur 1-3 en Almarr Ormarsson kom Fram yfir í upphafi leiks. En Eyjamenn svöruðu með þremur mörkum þeirra Denis Sytnik, Tryggva Guðmundssonar og Matt Garner en öll mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik.
0
Fram vann síðast leik í Eyjum árið 2002. Frá þeim tíma hefur ÍBV unnið þrjár viðureignir liðanna á Hásteinsvelli og tveimur hefur lyktað með jafntefli. Markatalan er 10:2 fyrir ÍBV í þessum leikjum.
0
ÍBV endaði í 3. sæti og Fram í 5. sæti á Íslandsmótinu 2010. Þau unnu hvort annað á heimavelli, ÍBV sigraði 1:0 í Eyjum þar sem Danien Warlem skoraði og Fram vann 2:0 á Laugardalsvelli þar sem Tómas Leifsson og Ívar Björnsson skoruðu.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband