N1-deildin: | ||
Garðbæingar of sterkir fyrir ÍBV | ||
Unnu sex marka sigur 31:37 | ||
Meistaraefnin í Stjörnunni reyndust ofjarlar ÍBV í kvöld þegar liðin mættust í Vestmannaeyjum. Leikmenn ÍBV stóðu sig reyndar ágætlega á köflum en þess á milli fóru þeir afar illa með dauðafæri, klúðruðu m.a. fjórum vítaskotum og hefðu í raun getað veitt meiri mótspyrnu er raunin varð. Gestirnir gátu leyft sér að hvíla nokkra leikmenn þegar leið á leikinn en sigur Stjörnunnar var aldrei í hættu. Lokatölur urðu 31:37 eftir að staðan í hálfleik var 11:18. Eins og áður sagði voru Garðbæingar einfaldlega of sterkir fyrir ÍBV og ljóst að liðið, sem er afar vel mannað, á alla möguleika á að berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Eins og við var að búast mun ÍBV hins vegar berjast í neðri hluta deildarinnar, gegn Aftureldingu og Akureyri en hin liðin fimm virðast vera sterkari en þau þrjú. ÍBV hefur nú leikið þrjá leiki, þar af tvo heimaleiki og tapað þeim öllum en næsti leikur liðsins er gegn Aftureldingu á útivelli. Engu að síður áttu Eyjamenn ágæta spretti, breyttu m.a. stöðunni úr 17:26 í 21:26 en komust ekki lengra en það. Það er hins vegar hvimleitt á handboltaleikjum hversu áhrifamiklir dómarar eru. Þannig höfðu dómarar leiksins í kvöld, þeir Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson öll tök á því að láta leikinn fljóta vel enda langt í frá að vera slagsmálaleikur. Sextán brottvísanir í leiknum, átta á hvort lið er helmingi of mikið miðað við gang leiksins. Sumir brottrekstrarnir voru hreint óskiljanlegir og engu líkara en að slakir dómarar hafi einfaldlega ekki viljað hafa ákveðna leikmenn inni á vellinum. Vonandi sjáum við sem minnst af svona frammistöðu sem bitnaði eingöngu á leiknum og liðunum báðum. Mörk ÍBV: Sigurður Bragason 10, Sindri Haraldsson 7, Zilvinar Grieze 6, Nikolaj Kulikov 3, Grétar Eyþórsson 2, Eyþór Björgvinsson 2, Leifur Jóhannesson 1. |
25. september kl. 08.07 | ||
N1-deildin: | ||
Stjörnuprýtt lið Stjörnunnar í heimsókn í kvöld | ||
| ||
Í kvöld, klukkan 19.00 leikur karlalið ÍBV annan heimaleik sinn á Íslandsmótinu þegar Stjarnan kemur í heimsókn. Stjörnunni var fyrir tímabilið spáð sigri í N1-deildinni á meðan ÍBV var spáð neðsta sætinu og því mætti sjá fyrir sér að Golíat heimsæki Davíð. Eyjamenn voru í raun aðeins hársbreidd frá því að vinna Fram í fyrsta leiknum en ÍBV tapaði svo illa fyrir Haukum um helgina með sextán marka mun. Það verður því fróðlegt að sjá hvort Eyjamenn náði að stríða Íslandsmeistaraefnunum úr Garðabænum í kvöld. |
tember kl. 06.03 | ibv.is |
Stjörnur í Eyjum.
Eyjamenn taka á móti stjörnum prýddu handknattleiksliði Garðbæinga á morgun í N1 deildinni. Leikurinn hefst kl. 19.00. Þar gefst Vestmannaeyingum tækifæri á að sjá liðið, sem spáð er falli annars vegar, og hins vegar liðið, sem spáð er Íslandsmeistaratitli.Handknattleiksunnendur eru hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja, og mæta í Íþróttahúsið. Leikurinn er mikill prófsteinn á ÍBV liðið, sem steinlá í síðasta leik gegn Haukum. Það er eitthvað, sem strákarnir okkar vilja ekki að endurtaki sig.
Dægurmál | Miðvikudagur, 26. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24. september kl. 16.21 | ||
Nýr samningur um flug til Eyja: | ||
Þrjár ferðir á dag yfir sumarið | ||
-og aukaferð á föstudögum | ||
Gert er ráð fyrir þremur flugferðum á dag, fimm til sex daga vikunnar yfir sumartímann, milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, í nýjum samningi Vegagerðarinnar og Flugfélags Íslands, sem nú er í burðarliðnum. Núgildandi samningur um flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja rennur út í lok október og nýr samningur tekur gildi frá og með 1. nóvember.
Þá mun nýr samningur ennfremur gera ráð fyrir þremur ferðum á föstudögum allt árið og standa vonir til að það fyrirkomulag taki gildi strax með nýjum samningi, hinn 1. nóvember. Að sögn Kristínar Jóhannsdóttur, markaðsfulltrúa Vestmannaeyjabæjar, hefur af hálfu bæjarins einnig verið farið fram á að flugáætlun verði breytt, til dæmis þannig að farið yrði af stað fyrr á morgnana, og er það mál til vinnslu. |
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. september 2007 (breytt kl. 01:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24. september kl. 15.45 | ||
Sigurður Vilhelmsson skrifar: | ||
Bærinn tekur frumkvæði í uppbyggingu Setursins | ||
| ||
Í tillögum þeim er bæjarstjórn Vestmannaeyja lagði fram um mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar í þorskkvóta kennir ýmissa grasa. Tillögurnar eru um margt metnaðarfullar og sýna að bæjaryfirvöld eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að draga úr því höggi sem sveitarfélagið verður fyrir. Því eru það nokkur vonbrigði að ríkisstjórnin skuli skella skollaeyrum við flestu því sem lagt er fram í tillögum bæjarins. Eitt er það þó sem vekur nokkra athygli og það eru nýstárlegar aðferðir bæjarstjórnar við að fá ráðherra menntamála til samstarfs um uppbyggingu Rannsókna- og fræðasetursins. Bæjaryfirvöld eru greinilega búin að gefast upp á að bíða eftir ríkinu í þeim efnum og fer fram á að fá að fjármagna uppbygginguna úr bæjarsjóði. Bærinn býðst til þess að kaupa húsnæði ÁTVR á neðstu hæð Setursins og í framhaldinu afganginn af Hvíta húsinu af Háskóla Íslands. Eina skilyrðið er að fjármunirnir sem bærinn greiðir fyrir húseignina fari í uppbyggingu setursins. Það er orðið löngu tímabært að gera gangskör í því að byggja upp starfsemina í Setrinu. Einmenningsútibú eru engan veginn til þess fallin að byggja upp það þekkingarsamfélag sem þarf til að halda úti öflugu rannsóknar- og þróunarstarfi. Of lengi hefur verið beðið eftir því að menntamálaráðuneytið leggi sitt lóð á vogarskálarnar. Það er tímabært að bærinn taki frumkvæðið. Það þarf ekki að bíða lengur. Elliði þarf bara að gera Þorgerði tilboð sem hún getur ekki hafnað. Greinin birtist á www.framsoknarbladid.is |
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24. september kl. 15.21 | ||||
Vestmannaeyjabær: | ||||
Samkeppni um hönnun menningarhúss | ||||
| ||||
Ráðgert er að efnt verði til samkeppni meðal arkitekta um hönnun menningarhúss í Vestmannaeyjum, sem rísa mun á lóðinni milli Safnahússins og Alþýðuhússins. Stýrihópur á vegum bæjarins og menntamálaráðuneytisins sem vinnur að málinu telur að rekstri nýs menningarhúss verði best fyrir komið í tengslum við rekstur Safnahússins. Jafnframt verður rekstur Safnahússins tekinn til gagngerrar endurskoðunar. Vinna stendur nú yfir við að skilgreina þá menningar- og safnastarfsemi sem fara á fram í húsunum og áætla stærð væntanlegs menningarhúss með hliðsjón af því. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að í þessum efnum verði ekki tjaldað til einnar nætur; menningarhús verði að endurspegla metnað og kraft og þá virðingu sem Vestmannaeyingar beri fyrir sögunni og sérkennum Eyjanna, bæði náttúru og mannlífs. Nánar er fjallað um málið í viðtali við Elliða sem birtist í Vaktinni síðastliðinn föstudag og hægt er að lesa hér á www.sudurland.is/eyjafrettir. |
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24. september kl. 19.01 | mbl.is |
Gunnar Heiðar skoraði í 2:0-sigri Vålerenga
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrir norska liðið Vålerenga í 2:0-sigri liðsins gegn Fredrikstad í lokaleik 21. umferðar úrvalsdeildarinnar í Noregi. Gunnar skoraði á 10. mínútu með skoti af stuttu færi en fyrra markið skoraði Dan Thomassen eftir aðeins 48 sekúndur.
Þetta er fyrsta markið sem Gunnar skorar fyrir Vålerenga frá því hann var lánaður til félagsins frá Hannover í Þýskalandi. Árni Gautur Arason var í marki Vålerenga en Garðar Jóhannsson kom ekki við sögu í liði Fredrikstad í leiknum Vålerenga er í 7. sæti deildarinnar með 30 stig, 15 stigum á eftir Brann, sem er í efsta sæti. Fredrikstad er í 8. sæti með 29 stig.
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. september 2007 (breytt kl. 01:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Getraunastarfið hafið
Þáttökugjald er kr 5.000
Jæja góðir hálsar þá er getraunastarfið hafið og fór fyrsta vika í hópaleik haustsins fram um helgina og var árangur þokkalegur. Eftir fyrstu vikuna þykir liðið Pint of Foster's líklegast til að standa uppi sem sigurvegari, en það er en langt og strangt getraunahaust framundan og því getur ýmiselgt gerst. Spilaðar verða 12 vikur og mega menn þurrka út 2 verstu vikurnar, svona til að halda haus segja þeir er þessu stjórna. Menn geta þess vegna en skráð sig til leiks en missi þá bara út eina röð og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig til leiks. Þátttökugjald er kr. 5.000.Stefnt er á að hafa opið næst komandi föstudag bæði fyrir leik ÍBV og Fjölnis og eins í hálfleik, en svo opnar að sjálfsögðu klukkan 10 á laugardagsmorgunin og þá geta menn komið og hlustað á viskubrunninn Örn Hilmis valta yfir hvern þann sem ekki segir að Arsenal sé yfirburðalið.
og svo þetta:
Leikurinn verður að flestu leiti með hefðbundnu sniði, en eftir miklar vangaveltur höfum við
ákveðið að hafa leikinn í 12 vikur (líkur 8.des 2007) og telja 10 bestu vikurnar, þannig að
þó að eitthvað klikki hjá typpurum þá geta þeir huggað sig við að geta hent út tveimur lökum vikum.
Vinningar verða eftirfarandi:
1.sæti 40% af innkomu hópaleiksins
2.sæti 25% af innkomu hópaleiksins
3.sæti 15% af innkomu hópaleiksins
Stöðuna verður svo að finna undir linknum fótbolti á forsíðu og svo þar undir er annar hnappur er á stendur Getraunir 900
Hægt er að sjá stöðuna á ibv.is
Nú, ekki hef ég tippað mjög lengi. Og efast ég geri það núna...
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
| 24. september kl. 07.34 | eyjar.net |
Stoppdagar Herjólfs
25. september verður viðhaldsdagur Herjólfs og munu siglingar falla niður þennan dag.
Forsvarsmenn Herjólfs vona að þetta valdi ekki mikilli röskun fyrir viðskiptavini.
Ef það væri tveir Herjólfar sem mundu ganga á móti hvor örðu, þá mundi þetta ekki valda eins mikla röskun..
Dægurmál | Þriðjudagur, 25. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23. september kl. 21.06 | ||
| ||
Lundaballið nálgast | ||
| ||
Þrátt fyrir að lundaveiði hafi ekki verið með besta móti sumar, veiðimenn hafi haft háfinn sinn í bóli, meira eða minna allan lundaveiðitímann, verður ekki slegið slöku við á lundaballinu. Það verður haldið um næstu helgi í Höllinni. Að þessu sinni eru það Elliðaeyingar sem sjá um ballið.
Úteyjarfélögin sjö, halda lundaballið til skiptist og er farið eftir nöfnum eyjanna í stafrófsröð. Á síðasta ári stóð Veiðifélag Brandsins fyrir lundaballinu, nú er röðin sem sagt komin að stærstu eynni, Elliðaey. Eyjafrettir hafa spurnir af geysimiklum undirbúningi Elliðaeyinga, þar verður ekkert til sparað að gera þessa miklu hátíð sem glæsilegasta og að sjálfsögðu þá bestu frá upphafi. |
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23. september kl. 20.50 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þetta endalausa dekur við Vestfirðinga | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
- Sigursveinn Þórðarson bloggar um niðurskurð þorskveiðiheimilda og mótvægisaðgerðirnar | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þetta endalausa dekur við Vestfirðinga er orðið þjóðinni til skammar. Ég hef svo sem bent á það áður, en grein Árna Johnsen í Morgunblaðinu í morgun vakti mig til umhugsunar um kvótaaðstoðina sem ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku. Ég er ekki hissa á að Grindvíkingar séu ósáttir. Það er ekki minnst á þá í tillögum ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir að það sé það bæjarfélag sem missir flest tonninn.
Grindvíkingar tapa fleiri tonnum en öll sveitarfélög á Vestfjörðum til SAMANS !!! Og hvernig skipta Árni Matt og félagar milljörðunum til að mæta kvótaskerðingu? Jú, 660 milljónir fara vestur á firði. Það þýðir að verðmatið á tonninu fyrir vestan er: 114.703 krónur. Kvótaskerðingin nemur 5.754 tonnum. Verst fer Bolungarvík en skerðingin þar er 1.169 tonn. Grindvíkingar missa flest þorsktonninn, útgerðarfyrirtæki þar eru 5.965 tonnum fátækari eftir skerðingu þorskaflans. Og tillögurnar sem snúa að Grindvíkingum? Ekki ein einasta, nada, núll og nix. Við Eyjamenn erum í þriðja sæti yfir þær byggðir sem missa mest. 3.911 tonn. Aðeins Grindavík og Akureyri tapa fleiri tonnum. Og tillögurnar sem snúa að Vestmannaeyjum eru fjórar, samtals 99 milljónir á næstu þremur árum. 25.313 krónur tonnið... Ef við lítum á kjördæmi fjármáláráðherrans þá nemur skerðingin 15.578 tonnum. Alls fara 303,5 milljónir í kjördæmið. Því er ríkisstjórn Íslands að meta tonnið á 19.483 krónur í Suðurkjördæmi. Byggðir allt í kringum landið verða fyrir tekjuskerðingu vegna kvótaskerðingar. Mismiklum að sjálfsögðu en fyrr nú má aldeilis fyrr vera ósamræmið!! Enn eina ferðina er skotið á Vestfjarðaraðstoð. Ég spyr mig hvort þingmenn og ráðherrar séu svo fastir í gamla tímanum að þeir haldi enn að útgerð sé öflug á Vestfjörðum. Halló, vakna !! Vestfirðingar eru fyrir löngu búnir að selja frá sér meirihluta kvótans... Margar tillögur snúast um allt landið og vitaskuld gæti skiptingin þar orðið sú að mikið færi á Suðurnesin eða austur á Hornafjörð sem verður líka illa úti. En ekki skal gleyma stöðum eins og Garði, Rif, Dalvík og Skagaströnd. Það er hvergi minnst á þessa staði í tillögunum. Til gamans er hér listi yfir þau 20 sveitarfélög sem verst verða fyrir skerðingu þorskkvótans:
|
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22. september kl. 19.34 | ||
N1-deildin: | ||
Sextán marka tap á Ásvöllum | ||
| ||
Eyjamenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Haukum í dag en eins og áður sagði er að finna þrjá Eyjamenn í liði Hauka, sem svo sannarlega væri gott að hafa í "rétta" liðinu í vetur. Lokatölur leiksins urðu 37:21, eða sextán marka tap hjá ÍBV í öðrum leik liðsins. Markahæstir hjá ÍBV voru þeir Nikolaj Kulikov, rússneski línumaðurinn sem lék sinn fyrsta leik með ÍBV og fyrirliðinn Sigurður Bragason með fimm mörk hvor. Önnur úrslit dagsins í N1-deildinni voru: Afturelding-HK 24:28, Akureyri-Fram 26:30. Næsti leikur ÍBV er næstkomandi þriðjudag þegar liðið tekur á móti stórliði Stjörnunnar og hefst leikurinn klukkan 19.00. Staðan: |
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22. september kl. 12.55 | vaktin.net |
Vestmannaeyjahöfn uppbygging og framkvæmdir í heila öld
Í gær var haldin á Kaffi kró hátíðarfundur hjá Framkvæmda- og hafnarráði í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjahafnar. Vestmannaeyjahöfn hefur verið til frá landnámstíma en elsti hluti Vestmannaeyjahafnar er 100 ára um þessar mundir, það er Bæjarbryggjan sem tekin var í notkun 1907, bryggjan var stækkuð 1911 og var komin í þá mynd sem við þekkjum hana í dag árið 1925, eins og áður hefur verið greint frá á vaktin.net er verið að endurgera bryggjuna núna.
Aðrar bryggjur sem komnar voru fyrir Bæjarbryggjuna s.s. Edinborgarbryggja og Stokhellubryggja eru horfnar og búið að byggja yfir þær, þannig að elsti sýnilegi hluti hafnarinnar er 100 ára.
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir fulltrúi í Framkvæmda- og hafnarráði skar fyrstu sneiðina af afmælistertunni, en hún er eina konan í ráðinu.
Arnar Sigurmundsson formaður Framkvæmdar- og hafnarráðs tók á móti gestum á hátíðarfundinn, hann flutti erindi um höfnina og með ræðu hans voru sýndar myndir með. Arnar sagði að brýnasta mál hafnarinnar nú væri uppbygging Skipalyftunar og stórskipahöfn því næsta kynslóð skipa kæmust ekki inn í Vestmannaeyjahöfn eins og hún er í dag.
Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri kom í heimsókn til Eyja og var á hátíðarfundinum, hann færði Arnari gamlar teikningar af Vestmannaeyjahöfn, frá þeim tímum er verið var að byggja hafnargarðana.
Elliði Vignisson bæjarstjóri flutti erindi, hann sagði að höfnin væri í raun aldrei tilbúin og væri alltaf að þróast. Hann tók undir Arnars um að brýnustu verkefni Vestmannaeyjahafnar væru uppbygging Skipalyftunar og stórskipahöfn.
Í dag er viðlegukantar í Vestmannaeyjahöfn um 2100 metrar, sem gera um 50 sm. á hvern íbúa Vestmannaeyjabæjar.
Mynd og texti: Óskar P. Friðriksson
Mynd tekin úr flugvél Flugfélags Vestmannaeyja
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
| 23. september kl. 16.36 | visir.is |
Kærði nauðgun til lögreglunnar
Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara. Lögreglan á Selfossi handtók hann að kvöldi sama dags. Maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag.
Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er nú í haldi lögreglunnar á Selfossi. Síðar í dag verður tekin ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir manninum.
23. september kl. 21.27 | mbl.is |
Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem var handtekinn vegna nauðgunarkæru
Maður sem var handtekinn í gærkvöldi af lögreglunni á Selfossi vegna nauðgunarkæru konu á fertugsaldri í Vestmannaeyjum í gærmorgun var í kvöld sleppt úr haldi lögreglunnar á Selfossi. Rannsókn málsins heldur áfram og hefur hinn kærði verið boðaður til frekari yfirheyrslu á morgun. Unnið er að skýrslutöku af vitnum og beðið niðurstöðu rannsókna, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.
Við rannsókn málsins bárust böndin að manninum og var hann handtekinn af lögreglunni á Selfossi, að beiðni lögreglunnar í Vestmannaeyjum, en maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis í gær
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
| 23. september kl. 11.25 | ibv.is |
Körfubolti
Nóg að gerast
-Yngri flokkarnir kepptu við Flúðir
Um helgina voru æfinga / vináttuleikir við UMFH sem eru frá Flúðum. Komu hingað 17 leikmenn og 2 þjálfarar. Voru þetta kurteisir krakkar og nokkrir efnilegir í þeirra herbúðum en þar má helst nefna 2 leikmenn 10.flokks en það eru stelpur sem spiluðu með strákunum. Stóðu þær sig mjög vel og eiga framtíðina fyrir sér.
Föstudagur:
Minnibolti: ÍBV - UMFH 86-27 (45-12)
Góður leikur hjá öllum leikmönnum ÍBV þar sem allir spiluðu mikið og nánast allir náðu að skora. Voru þeir að spila við sjö minnibolta stráka og fimm úr 7.flokk hjá Hrunamönnum. Virtist það engu breyta og var góð stemmning í hópnum.
Stigaskor: Siggi 18, Aron V 16, Kristberg 16, Geir 12, Haffi 8, Ársæll 4, Lalli 4, Tryggvi 4, Devon 2, Kristján 2
8.flokkur ÍBV - 10.flokkur UMFH 20-42 (6-27)
Okkar leikmenn voru frekar smeykir við tvo stærri leikmenn Hrunamanna og vantaði bókstaflega kjark og alla baráttu. Boltinn gekk illa á milli manna, tókum léleg skot og vorum ragir í öllum aðgerðum. Skánaði þetta þó aðeins í seinni hálfleik og þá helst þegar þeir settu stóru leikmenn sína á bekkinn. Sigrún spilaði best hjá okkur og var eini leikmaðurinn með lífsmarki allan leikinn.
Stigaskor: Sigrún 4, Tómas 4, Bryngeir 3, Halldór 3, Árni 2, Sindri 2, Jói 2.
9.flokkur ÍBV - 10.flokkur ÍBV 37-48 (17-24)
Jafnræði með liðunum en í lið 10.flokks vantaði þá Óla, Kristján og Ársæl. Hjá 9.flokk stóð Blómi sig best og Hlynur byrjaði leikinn vel en í liði 10.flokks var Teitur að hitta vel.
Stigaskor: Blómi 18, Hlynur 9, Erlingur 6, Daði 2, Ari 1, Alex 1, Gulli 0. - Teitur 27, Heiðar 8, Guffi 8, Einar 3, Hjálmar 2, Teddi 0.
Laugardagur:
Minnibolti yngri ÍBV - Minnibolti UMFH 51-24 (27-14)
Glæsilegur sigur og var það leikgleðin sem var mjög áberandi. Í okkar herbúðum voru einnig tveir peyjar í 2. og 3.bekk og stóðu þeir sig vel eins og allir leikmenn liðsins. Hefði sigurinn getað verið mun stærri ef við hefðum nýtt stuttu skotin betur og vandað sendingarnar en það kemur bara næst. Núna er bara um að gera að mæta vel á æfingar og æfa enn betur og hlusta vel. Eins og áður sagði voru allir leikmenn liðsins duglegir og stóðu sig vel en ég verð þó að nefna Devon Már sem er nýbyrjaður að æfa en hann stal hátt í 20 boltum (er það alls ekki ýkt) og það í einum og sama leiknum! Geri aðrir betur! Einnig stóð Viktoría sig mjög vel en hún er aðeins ein af örfáum stelpum sem æfir körfu hjá okkur.
Stigaskor: Ársæll 14, Devon 13, Kristján 8, Arnar Geir 6, Viktoría 4, Benjamín 4, Ólafur 2.
9. og 10.flokkur: ÍBV - UMFH 45-24 (20-15)
Að mæta í leik og vera fyrirfram búinn að vinna hann er ekki gott. Að halda að maður þurfi ekki að taka á því og hafa fyrir hlutunum er rangt! Þannig voru okkar leikmenn mættir til leiks í þennan leik en þeir voru fyrirfram búnir að vinna og héldu að þeir gætu bara leikið sér og fíflast allan leikinn og unnið þannig. Var þetta jafn leikur í fyrri hálfleik vegna kæruleysis og var algjört metnaðarleysi hjá okkar liði. Breyttist það aðeins í seinni hálfleik en Alex og Hlynur sýndu góð tilþrif og börðust eins og ljón og sigurinn 21 stigs munur. Þurfa leikmenn að sparka fast í rassinn á sjálfum sér og líta í eigin barm og breyta hugsunarháttinum frá a-ö. Ef við ætlum að komast í A riðil í báðum flokkunum þá þurfa menn að opna augun og fara taka almennilega á því - sama við hvaða lið við erum að spila. Það vantar ekki hæfileikana en eins og áður segir þá kemur þetta ekki að sjálfu sér.
Stigaskor: Alexander 16, Hlynur 9, Heiðar 4, Erlingur 4, Daði 4, Elvar 2, Einar 2, Guffi 2, Teitur 2.
Minnibolti ÍBV - 7.flokkur UMFH 74-40 (34-20)
Í liði Hrunamanna voru eins og í leiknum í gær blanda af minnibolta og 7.flokk en í dag bættist við einn drengur úr 9.flokknum hjá þeim. Breytti það ekki miklu fyrir okkur þó svo að jafnræði hafi verið með liðunum til að byrja með en við höfðum bara gott af því. Hittnin var þokkaleg og sáust nokkur góð tilþrif hjá báðum liðum. Góður sigur og gaman að sjá peyjana á vellinum.
Stigaskor: Aron 20, Siggi 13, Geir 12, Valli 10, Kristberg 6, Tryggvi 5, Haffi 4, Devon 2, Kristján 2.
8.flokkur ÍBV - Minnibolti ÍBV 45-30 (24-18) (aukaleikur)
Aukaleikur þar sem spilað var á stærri körfunum og voru einungis spilaðir 3 leikhlutar. Nokkuð jafn leikur á köflum en 8.flokkurinn vann eðlilega enda mun stærri og líkamlega sterkari. Fengu allir að spila og var ágætis barátta. Í minniboltann vantaði Haffa, Geir og Aron spilaði lítið.
Stigaskor: Gísli 11, Halldór 10, Jón Þór 6, Sindri 6, Jói 4, Bryngeir 4, Árni 4. Tómas 0, Sigrún 0. - Kristberg 8, Valli 5, Devon 5, Siggi 4, Ársæll 4, Tryggvi 2, Aron 2, Lalli 0, Kristján 0.
Hægt er að fylgjast með körfunni á ibv.is/karfa
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
m
22. september kl. 19.09 | eyjar.net |
Upptökustúdíó að opna í Vestmannaeyjum
-Frumkvöðlastarfsemi á hæsta stigi
Nýlega festi ljósa- og hljóðkerfaleigan Span kaup á fasteign í Vestmannaeyjum með þeim tilgangi að opna hér fullkomið upptökuver (stúdíó), www.eyjar.net er að sjálfsögðu komið í málið og mun birta viðtal við þessa frumkvöðla sem standa að þessu krefjandi verkefni.
Upptökuverið mun án efa vera vítamínsprauta fyrir tónlistarfólk í Vestmannaeyjum og gefa þeim fjölmörgu efnilegu tónlistamönnum sem koma frá Eyjum tækifæri til að koma sínu efni á frekara framfæri.
Árni Óli Ólafsson er framkvæmdastjóri ljósa -og hljóðkerfaleigunni Span og mun viðtal við hann birtast snemma mánudagsmorguns á eyjar.net
Eyjar.net finnst þetta frábært og lofsvert framtak og vonar svo sannarlega að þetta gangi upp hjá þeim.
Hvað finnst þér um málið ? Segðu okkur þína skoðun á spjallinu okkar .
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 (breytt kl. 05:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22. september kl. 18.02 | mbl.is |
Fótbolti
IBV á enn möguleika
-Unnu Þrótt 2-1 á útivelli
Fjölnir og Grindavík eru kominn upp í Landsbankadeild karla í knattspyrnu þó ein umferð sé enn eftir af 1. deildinni. Bæði lið unnu sína leiki í dag og tryggðu sæti sitt í efstu deild. Njarðvík bjagaði sér af hættusvæðinu með góðum sigri á Fjarðabyggð. Eyjamenn eygja enn von um sæti í efstu deild en þurfa þá að vinna Fjölni í síðustu umferðinni og treysta á að Reynir vinni Þrótt.Baráttan á botnin er líka spennandi því þar er Reynir með 16 stig en KA með 19 eftir að hafa lagt Leikni með marki á síðustu andartökum leiksins í dag. Reynismenn eru því líklegastir til að falla en þeir eiga Þrótt í síðustu umferð á meðan KA mætir Þór og freistar þess að komast upp fyrir nágranna sína.
Eins og staðan er núna í leikjum næst síðustu umferða 1. deildar karla í knattspyrnu eru Grindavík og Fjölnir að tryggja sér sæti í Landsbankadeildinni að ári. Liðin eru bæði að vinna sína leiki og tryggja sér með því sætið meðal þeirra bestur. Eyjamenn eru að vinna Þrótt og verða við það þremur stigum á eftir Þrótturum og eygja því enn von um sæti í efstu deild.
Staðan í leikjum 1. deildar þegar hálfleikur er kominn er þannig að ÍBV er 2:0 yfir á móti Þrótti, Grindavík 1:0 yfir á móti Reyni, Fjölnir 1:0 yfir á móti Þór, Njarðvík 2:ö yfir á móti Fjarðabyggð en markalaust er í leikjum víkings og Stjörnunnar og KA og Leiknis.
Þrjú mörk eru komin á upphafsmínútum í leikjum 1. deildar í knattspyrnu. Fjölnir er 1:0 yfir á móti Þór, ÍBV er 1:0 yfir í Laugardalnum þar sem þeir leika við Þrótt og Njarðvík er 1:0 yfir á móti Fjarðabyggð. Við fylgjumst með gangi mála í næst síðustu umferð deildarinnar.
Úrslit leikjanna í dag:br> Þróttur - ÍBV 1:2
Grindavík - Reynir 6:0
Fjölnir - Þór 2:0
Njarðvík - Fjarðabyggð 3:0
Víkingur Ó - Stjarnan 0:0
KA - Leiknir 1:0
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Styrktarreikningur opnaður fyrir Þorstein Elías Þorsteinsson
eyjar.net barst eftirfarandi póstur, þar sem kemur fram að opnaður hefur verið reikningur fyrir Þorstein Elías Þorsteinsson og unnustu hans, Hrefnu Haraldsdóttur en Þorsteinn glímir við afar erfið og lífshættuleg veikindi.
Þeir sem vilja styrkja þau geta lagt inn fjárhæð á reikning 104449, höfuðbók 14, banki 0582 (582 - 14 - 104449) og kennitala 280480-4449. Bréf vinahópsins sem opnaði reikninginn má lesa hér að neðan.
Við vinir Hrefnu og Þorsteins ákváðum að stofna reikning til styrktar þeim á þessum erfiðu tímum. Við bíðum enn og vonumst eftir að sjá kraftaverkið gerast og lifum í þeirri trú að það gerist. Um leið og mig langar til að biðja ykkur að taka frá stutta stund til þess að biðja fyrir Þorsteini og fjölskyldu hans þá ætla ég að senda ykkur reikningsnúmerið sem við vinir hans og Hrefnu höfum ákveðið að opna á Hrefnu nafni- kt.280480-4449, banki 0582, hb 14 reikningur númer 104449.
Með fyrirfram þökk. Kærleikskveðjur fyrir hönd vinahópsins
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
nn
21. september kl. 21.31 | ibv.is |
Stórleikur í laugardalnum á Laugardag
- Páll Hjarðar spilar sinn 100. leik fyrir ÍBV
Á morgun dregur verulega til tíðinda í baráttu ÍBV á toppi 1. deildar er liði leikur gegn Þrótti Reykjavík á Valbjarnarvelli í Laugardal. Þá gæti endanlega ráðist hvort um raunverulegan möguleika sé að ræða hjá liðinu að komast í Landsbankadeildina aftur.
Strákarnir hafa verið að standa sig vel í undanförnum leikjum og unnu góðan sigur á Grindvíkingum, sem vermt hafa toppsætið í nær allt sumar. Það verður þó það skarð fyrir skyldi í liði ÍBV að þeir Atli Heimisson og Yngvi Borgþórsson verða í leikbanni. Möguleikar ÍBV felast nær eingöngu í sigri í leiknum og að Fjölnir tapi stigum á heimavelli gegn Þór frá Akureyri á sama tíma. Sendum við Þórsurum að sjálfsögðu baráttukveðjur.
Páll Þorvaldur Hjarðar mun leika sinn 100. leik með liði ÍBV á morgun og vonandi verður sá leikur eftirminnilegur fyrir jákvæðar sakir. Óskum við Páli innilega til hamingju með áfangann. Af þesssu tilefni birtum við mynd af kappanum í góðum félagsskap þeirra Jonah og Chris.
Eru allir stuðningsmenn ÍBV og allir sem vettlingi geta valdið, beðnir um að koma og styðja ÍBV á Valbjarnarvelli á morgun kl. 13:30 þar sem ÍBV mun einnig birtast í búningum sem ekki hafa sést áður. Sjón er sögu ríkari.
Áfram ÍBV !
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21. september kl. 07.08 | eyjar.net |
Guðbjörg með 3 mörk
í 25-24 sigri á Esbjerg í gær
Danska handknattleiksliðið Frederikshavn Foxs, sem Guðbjörg Guðmannsdóttir leikur með, vann Esbjerg á útiveli 25-24 í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Guðbjörg skoraði 3 mörk í leiknum og spilaði reyndar bara í seinni hálfleik en skoraði öll mörkin á mikilvægum stundum í leiknum.
Frederikshavn Fox hefur verið að finna sig í deildinni enda nýkominn í úrvalsdeildinna og var þetta þeirra fyrsti sigur, en liðið er í 9. sæti með 2 stig eftir 4 leiki.
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21. september kl. 06.35 | eyjar.net |
Eigum að geta slegið þetta lið út
-Segir Gunnar Heiðar í viðtali við gras.is
Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikmaður Valerenga kom inná sem varamaður í Evrópuleiknum við Austria Vín í kvöld en var þetta fyrrileikurinn sem fór fram í Austurríki. Gras.is sló á þráðinn til Gunnars eftir leikinn og er hann bjartsýn að sitt lið geti farið áfram þrátt fyrir 2-0 tap.
,, Við vorum ekkert að skapa okkur í fyrrihálfleik en komum mun sterkari til leiks í þeim seinni og vorum óheppnir að ná ekki að skora. Við lendum 1-0 undir í hálfleik og svo fá þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig í seinnihálfleik, þegar einn leikmanna þeirra lætur sig detta á ótrúlega hátt en þessi skoski dómari ætti að vita betur. Þeir taka þessa aukaspyrnu sem fer í vegginn og Árni Gautur kominn í hitt hornið. Svona skítamark eins og maður segir.
Ég tel að það hafi ekki verið nein munur á þessum liðum og við eigum að geta náð þessu heima í Noregi. Ég sjálfur er allur að koma til og hef leikið núna þrjá leiki og ég er farinn að þekkja inná strákanna og þeir á mig. Ég er farinn að finna mig betur og betur en þetta tekur tíma en ég er mjög bjartsýn fyrir seinnileikinn og við eigum að geta slegið þetta lið út," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson í samtali við Gras.is .
Dægurmál | Mánudagur, 24. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20. september kl. 11.26 | ||
| ||
Bændaglíman 2007 á laugardag | ||
| ||
Þessir eitt sinn stórefnilegu piltar en nú stórbændur hafa ákveðið af mikilli hógværð að gefa kost á sér sem bændur GV árið 2007. Þegar þeir á annað borð gáfu færi á sér í þennan leik alþýðumanna voru þeir klárlega þeir einu sem til greina komu enda hlaðnir miklum kostum. Sérstaklega eru það miklir golf- og leiðtogahæfileikar sem leitað var eftir og þar eru þeir félagar í yfirburða stöðu.
Þeir félagar óska því eftir nætveru þinni ágæti golfari næstkomandi laugardag og er mæting í golfskála kl. 13.30. þar sem þeir stórbændur munu velja lið sín. Þeir hafa af stórmennsku sinni ákveðið að innheimta aðeins krónur 2000 í jarðarskatt (flatarskatt) af keppendum sínum að fornum sið. Það lið sem mun lúta í gras mun þurfa að ganga beina í veislu að leik loknum. Skráning er á vefsíðu golf.is eða hjá bústýrunni að Torfmýrarvegi, þar eða í síma 481-2363. Fréttatilkynning |
Dægurmál | Föstudagur, 21. september 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)