29. október kl. 14.30 | eyjar.net |
Náttúruverndaráætlun kynningarfundur
Boðað er til fundar með hagsmunaaðilum vegna friðlýsingar á úteyjum og völdum svæðum á Heimaey, í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008.
Fyrirhugaður er kynningarfundur um náttúruverndaráætlunina með fulltrúum Umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar og Vestmannaeyjabæjar
Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi Umhverfis-og framkvæmdasviðs að Tangagötu 1, 2.hæð og hefst hann kl:11:00, þriðjudaginn 30. október n.k.
Til fundarins eru boðaðir fulltrúar eftirtalinna aðila.
- Bjargveiðimannafélag Vestmannaeyja
- Bændasamtök Vestmannaeyja
- Náttúruverndarsamtök Vestmannaeyja
- Ferðamálasamtök Vestmannaeyja
- HÍ í Eyjum
- Hafró í Eyjum
- Náttúrustofu Suðurlands
- Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar
- Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja
Vinsamlegast staðfestið mætingu á fundinn á netfangið frosti@vestmannaeyjar.is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.