29. október kl. 13.52 | ||
Körfubolti | ||
Minniboltinn upp í A-riðil | ||
| ||
Velgengni yngri flokkanna í körfuboltanum halda áfram en um síðustu helgi varð 9. flokkur drengja fyrsti flokkur körfuboltans í Eyjum til að öðlast keppnisrétt í efstu deild. Strákarnir í minniboltanum léku leikinn eftir um helgina og komust upp í A-riðil en í minnibolta leika 11 ára drengir. Frá þessu er greint á heimasíðu körfuboltadeildar ÍBV og má lesa fréttina hér að neðan.
Peyjarnir í minnibolta 11 ára stóðu uppi sem sigurvegarar eftir þessa helgi í Njarðvík og koma til með að spila í A - riðli í næstu umferð. Leikirnir sigruðust allir með miklum yfirburðum og greinilegt að peyjarnir mættu tilbúnir til leiks. Lokatölur í leikjunum í dag voru eftirfarandi: ÍBV - Breiðablik 77 - 18ÍBV - Valur 90 - 8 Úrslit gærdagsins: ÍBV - UMFN 70-18 Þá er Körfuknattleiksfélag ÍBV komið með tvo árganga í keppni meðal 5 bestu körfuboltaliða landsins í sínum aldursflokki. Sannarlega frábær frammistaða og glæsilegur árangur og ástæða til að óska bæði þjálfaranum og peyjunum til hamingju með sigurinn. Hlökkum til að fylgjast með framhaldinu í vetur bæði hjá þessum peyjum og öðrum aldursflokkum. Eins og fram kom í gær voru þeir í góðu yfirlæti í heimahúsi hjá foreldrum hans Bjössa og eftir leikina í dag bauð Bjössi uppá flotta veislu þar sem boðið var fram bakkelsi að hætti mömmu hans og ljúffeng skúffukaka frá ömmu hans. Ekki slæmt það og höfðu menn á orði að þetta hafi verið eins og á 5 stjörnu hóteli alla helgina og ferðin sú allra besta sem þeir höfðu farið í. Endaði ferðin með stoppi í Smáralind þar sem peyjarnir fengu að skoða sig um og leika sér aðeins. Eru þeir á leiðinni heim með Herjólfi núna. Áfram ÍBV |
Minniboltapeyjarnir fóru upp í A-riðil
www.ibv.is/karfa
Peyjarnir í minnibolta 11 ára stóðu uppi sem sigurvegarar eftir þessa helgi í Njarðvík og koma til með að spila í A - riðli í næstu umferð. Leikirnir sigruðust allir með miklum yfirburðum og greinilegt að peyjarnir mættu tilbúnir til leiks. Lokatölur í leikjunum í helgarinnar voru eftirfarandi:ÍBV - Breiðablik 77 - 18
ÍBV - Valur 90 - 8
ÍBV - UMFN 70 - 18
ÍBV - Snæfell 79 - 20
Þá er Körfuknattleiksfélag ÍBV komið með tvo árganga í keppni meðal 5 bestu körfuboltaliða landsins í sínum aldursflokki. Sannarlega frábær frammistaða og glæsilegur árangur og ástæða til að óska bæði þjálfaranum og peyjunum til hamingju með sigurinn. Hlökkum til að fylgjast með framhaldinu í vetur bæði hjá þessum peyjum og öðrum aldursflokkum
Þetta er alveg ótrúlegur árangur hjá okkur í körfuboltanum.
Til hamingju strákar.
Flokkur: Dægurmál | Mánudagur, 29. október 2007 (breytt kl. 23:22) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.