17. júlí kl. 17.49 | ||
Nóg framundan hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja | ||
Fyrirtækjamótið og Hjóna- og parakeppnin um helgina | ||
| ||
Um helgina lauk Meistaramóti GV og var þátttakan góð en að lokum stóð Gunnar Geir Gústafsson uppi sem sigurvegari í meistaraflokki. Og það er nóg framundan hjá Golfklúbbnum því um helgina verða tvö mót. Á föstudaginn verður Hjóna- og parakeppnin og daginn eftir, Fyrirtækjakeppni GV.
Í Hjóna- og parakeppninni á föstudag verða leiknar tólf holur í tveimur flokkum. Annað slær og hitt púttar og annað hvert högg slegið. Ræst verður út á öllum teigum, mótið hefst klukkan 17.00 en mæting er 16.30. Í Fyrirtækjakeppni GV verður leikið með Texas scramble fyrirkomulaginu, með forgjöf og leika því tveir saman í liði fyrir hvert fyrirtæki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú bestu skorin og auk þess nándarverðlaun á par 3 holum. Mótið hefst klukkan 11.30 og verða léttar veitingar að móti loknu. Skráning í mótin er í Golfskálanum, í síma 481-2363 eða á golf@eyjar.is. Nánari upplýsingar veitir Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri GV.
http://www.sudurland.is/Eyjafrettir/?p=101&id=11556 Það er mikill gróska hjá Golfklúbbinum í Vestmannaeyjum. Stór mót reglulega í gangi í allt sumar....
|
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.