dddd

Mánudaginn 24. janúar kl. 07.11
2. deild karla körfubolti:

Ekkert mál hjá ÍBV

- Unnu HK örugglega í uppgjöri bestu liðanna - Myndir

Ekkert mál hjá ÍBV Ekkert mál hjá ÍBV Ekkert mál hjá ÍBV Ekkert mál hjá ÍBV Ekkert mál hjá ÍBV Ekkert mál hjá ÍBV Ekkert mál hjá ÍBV ÍBV vann nokkuð sannfærandi sigur á HK í uppgjöri bestu liða í B-riðli 2. deildar karla í körfubolta.  Liðin áttust við í Eyjum í gær en HK hafði fyrir leikinn ekki tapað leik og ÍBV aðeins tapað fyrir HK.  Eyjamenn voru mun sterkari en gekk þó illa að hrista gestina af sér.  Þannig náði ÍBV 23 stiga forystu í upphafi 2. leikhluta en staðan íh álfleik var hins vegar aðeins 42:38.  En Eyjamenn kiknuðu ekki undan álaginu og unnu að lokum með 20 stigum, 86:66. Meira
Sunnudaginn 23. janúar kl. 12.08

Eyjamaður fékk 17 milljónir

Eyjamaður fékk 17 milljónir Einn var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær hann 17,2 milljónir króna að launum. Einn var með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fær 292 þúsund krónur. Vinningsmiðinn var seldur í söluturninum Tvistinum í Vestmannaeyjum.  Meira
Sunnudaginn 23. janúar kl. 10.01

Stórleikur í dag í körfunni

Eyjamenn, sem hafa aðeins tapað einum leik, taka á móti taplausum HK í toppslag 2. deildar

Stórleikur í dag í körfunni Í dag klukkan 12:30 taka Eyjamenn á móti HK í toppslag B-riðils 2. deildar.  ÍBV hefur aðeins tapað einum leik í Íslandsmótinu í vetur en HK hefur ekki tapað neinum.  Tapleikur ÍBV var einmitt á útivelli gegn HK og hafa leikmenn ÍBV beðið óþreyjufullir eftir að koma fram hefndum.  Leikurinn í Kópavogi var í járnum og endaði með þriggja stiga sigri HK.  Meira

Laugardaginn 22. janúar kl. 10.43
HM í handbolta:

Golli segir að Þjóðverjar hafi betur

Golli segir að Þjóðverjar hafi betur Þjóðverjar leggja Íslendinga að velli í kvöld á HM í handbolta.  Selurinn Golli, sem er í umsjón starfsmanna Sæheima í Vestmannaeyjum kemst að þessari niðurstöðu en hann spáði rétt fyrir um leik Íslands og Noregs.  Menn voru ekki alveg nógu ánægðir með niðurstöðuna hjá selnum og reyndu því aftur en aftur spáði Golli því að Þjóðverjar hefðu betur. Meira
Laugardaginn 22. janúar kl. 00.06

Fyrsti landsleikurinn 37 ára

Fyrsti landsleikurinn 37 ára „Okkur var hent út í djúpu laugina og út í óvissuna því við vissum ekki hvað við vorum að fara út í," sagði Albert Sævarsson markvörður Eyjamanna, sem stóð í markinu í fyrsta landsleik Íslands í innifótbolta sem fram fór gegn Lettum að Ásvöllum í kvöld. Meira
Laugardaginn 22. janúar kl. 00.03

ÍBV marði Gróttu

- ÍBV einu stigi frá Fylki sem er í fjórða sæti

ÍBV marði Gróttu ÍBV gerði góða ferð upp á land og vann Gróttu með einu marki 22:23 í N1-deild kvenna í handknattleik. Staðan í hálfleik var 9:12 ÍBV í vil. Leikurinn var æsispennandi eins og tölurnar gefa til kynna en Grótta hefði með sigri getað komið sér nær Haukum en þær eru sem fyrr í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig, 4 stigum á eftir Haukum. Meira
Föstudaginn 21. janúar kl. 20.58
Futsal:

Þórarinn Ingi með tvö í tapleik gegn Lettum

- Ísland tapaði fyrsta landsleik sínum

Þórarinn Ingi með tvö í tapleik gegn Lettum Íþróttamaður ársins 2010 í Vestmannaeyjum, Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4:5 tapi Íslands gegn Lettum í forkeppni Evrópumótsins en riðill Íslands fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði um helgina.  Leikurinn var jafnframt fyrsti landsleikur Íslands í Futsal en fimm leikmenn frá ÍBV tóku þátt í leiknum. Meira


Keyptir þú lottómiða í Tvistinum?

Það var einhver heppinn eyjamaður sem vann sér inn 17 milljónir í gær því að lottómiði sem innihélt allar lottótölurnar var keyptur í Tvistinum í síðustu viku.

Fréttir

22. janúar kl.10:02 | eyjar.net

Vinaminni kaffihús er safn heimilda um byggðina sem fór undir hraunið 1973

Sunnudaginn 23 janúar verður þess minnst að 38 ár eru liðin frá því undursamlega kraftaverki þegar yfir 5000 manns er bjargað frá Heimaey þegar eldgos hófst aðfaranótt 23 janúar kl 01:45.   21. janúar kl.14:51 | eyjar.net

Endanleg ákvörðun er skipstjórans

Að gefnu tilefni ítrekar Vegagerðin að endanleg ákvörðun um hvort siglt sé til Landeyjahafnar er alfarið í höndum skipstjóra Herjólfs. 

 

21. janúar kl.13:30 | eyjar.net

Gamli Dala-Rafn í pottinn

"Sjagaklettur skal høggast upp"

Færeyski skuttogarinn Sjagaklettur verður brátt sendur til Danmerkur þar sem hann verður rifinn niður í brotajárn. Margir íslenskir sjómenn þekkja þetta skip því það var gert út frá Íslandi um langt árabil, hét síðast Dala-Rafn VE-508. 
21. janúar kl.04:22 | ibvsport.is

Þórarinn Ingi valinn íþróttamaður Vestmannaeyja

Óskar Óskarsson valinn Íþróttamaður æskunnar

Nú rétt í þessu var að ljúka útnefning á íþróttamanni Vestmannaeyja. Það var knattspyrnumaðurinn knái Þórarinn Ingi Valdimarsson sem að varð fyrir valinu. Þá var Óskar Óskarsson valinn íþróttamaður æskunnar. Óskar er einn efnilegasti knattspyrnumaður ÍBV.

20. janúar kl.13:30 | eyjar.net

Aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja

Sunnudaginn 30. janúar verður haldinn aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja í Safnaðarheimili Landakirkju. Fundurinn fer fram að loknu messuhaldi þess dags og hefst kl. 15.00.

20. janúar kl.11:56 | visir.is

Kári keypti 20 Big Mac-hamborgara

Eyjatröllið Kári Kristján Kristjánsson hefur fengið sig fullsaddann af laxinum á hóteli íslenska liðsins og fór því í góða ferð á McDonalds. "Ég sé um að vinna upp þennan ömurlega mat á hótelinu. Við tókum eina Macferð í gær sem heppnaðist mjög vel. Það var BigMac, ostborgarar og franskar. Það var allt klárt," sagði Kári kíminn sem fyrr en hann vill helst ekki meiri lax.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband