sdedd

Fimmtudaginn 20. janúar kl. 23.21

Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010

- Óskar Zöega Óskarsson íþróttamaður æskunnar og Þórunn Ingvarsdóttir heiðruð fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar

Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010 Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010Þórarinn Ingi íþróttamaður ársins 2010

 

Í kvöld var Þórarinn Ingi Valdimarsson, knattspyrnumaður útnefndur Íþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum 2010.  Annar knattspyrnumaður, Óskar Zöega Óskarsson var valinn íþróttamaður æskunnar og þá var Þórunn Ingvarsdóttir heiðruð fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar í Vestmannaeyjum.  Þórarinn Ingi gat ekki tekið á móti verðlaununum sjálfur þar sem hann leikur á morgun með íslenska landsliðinu í Futsal en foreldrar hans, Valdimar Gestur Hafsteinsson og Guðbjörg Lilja Þórarinsdóttir tóku við verðlaununum fyrir hans hönd. Meira

Fimmtudaginn 20. janúar kl. 16.44
Selurinn Golli spáir í leikinn:

Ísland vinnur Noreg naumlega

Sjá myndband

Ísland vinnur Noreg naumlega Í kvöld verður einn af stóru leikjunum í Heimsmeistarakeppninni í handbolta í Svíþjóð. Ísland mætir þá þjóðinni sem þeir flúðu frá fyrir rúmum 1000 árum, sjálfum Norðmönnum. En  hvernig fer leikurinn. Um það getur enginn spáð nema selurinn Golli sem býr á fiskasafninu í Vestmannaeyjum. Hann var lengi að spá og spekulera en komst síðan að þeirri niðurstöðu að Ísland ynni leikinn, en naumlega þó. Meira
Fimmtudaginn 20. janúar kl. 12.05

Kári keypti 20 Big Mac-hamborgara

Kári keypti 20 Big Mac-hamborgara Eyjatröllið Kári Kristján Kristjánsson hefur fengið sig fullsaddann af laxinum á hóteli íslenska liðsins og fór því í góða ferð á McDonalds.  „Ég sé um að vinna upp þennan ömurlega mat á hótelinu. Við tókum eina Macferð í gær sem heppnaðist mjög vel. Það var BigMac, ostborgarar og franskar. Það var allt klárt," sagði Kári kíminn sem fyrr en hann vill helst ekki meiri lax. Meira Jon Vidar
Fimmtudaginn 20. janúar kl. 11.22

Atkvæði greidd um verkfall

Atkvæði greidd um verkfall Atkvæðagreiðslu um verkfall hjá bræðslukörlum átti að ljúka í Vestmannaeyjum í gær.  Það eru Drífandi Vestmannaeyj­um og AFL á Austurlandi sem standa að atkvæðagreiðslunni sem nær til átta verksmiðja. Meira
Fimmtudaginn 20. janúar kl. 08.24
HV segir upp sjúkraflutningum:

Þýðir minni löggæslu

Þýðir minni löggæslu Í bókun bæjarráðs á mánudag kemur fram að í framhaldi af fyrirspurnum Vestmannaeyja­bæjar liggi nú fyrir að Heilbrigð­is­stofnun Vestmannaeyja hafi sagt upp samkomulagi við sýslu­mannsembættið um sjúkraflutn­inga. Vestmannaeyjabær hefur þegar óskað eftir upplýsingum frá Heilbrigðisstofnun Vest­manna­eyja og sýslumannsemb­ættinu. Meira
Miðvikudaginn 19. janúar kl. 17.30
Sigurður Áss, Siglingastofnun - Vill samvinnu og gegnsæi í ákvörðunum

Ekki trúnaðarbrestur

- Bæjarstjóri vill skýrari verkferla - Fleiri komi að ákvörðunum

Ekki trúnaðarbrestur „Það er ekki trúnaðarbrestur milli mín og skipstjóranna á Herjólfi, allavega ekki af minni hálfu. Það kemur fyrir að maður er ósammála skipstjóranum eins og t.d. sl. föstu­dag. Skipstjórinn stjórnar alltaf skipinu, hins vegar er breytilegt hvaða mælingar þarf til að taka ákvörðun um hvort sigla eigi til Landeyjahafnar og hvaða aðstæður þarf til að sigla þangað," sagði Sigurður Áss Grétarsson hjá Siglingastofnun þegar hann spurður hvort snurða væri á samstarfi hans við skipstjóra á Herjólfi. Meira
Þriðjudaginn 18. janúar kl. 19.36
Eimskipsbikarinn:

Valur númeri of stórt fyrir ÍBV

- Unnu öruggan sigur 21:35 - Eyjastúlkur voru yfir fyrsta stundarfjórðunginn

Valur númeri of stórt fyrir ÍBV Styrkleikamunur ÍBV og Vals kom bersýnilega í ljós í kvöld þegar liðin mættust í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í Vestmannaeyjum.  Valsstúlkur unnu fjórtán marka sigur, 21:35 en staðan í hálfleik var 7:13.  Eyjastúlkur komu reyndar nokkuð á óvart fyrsta stundarfjórðunginn og voru yfir 6:5.  En þá tók Stefán Arnarson, þjálfari Vals leikhlé og las hressilega yfir hausamótunum á sínum leikmönnum.  Það virkaði, ÍBV skoraði ekki nema eitt mark það síðari fimmtán mínútur hálfleiksins á meðan gestirnir röðuðu inn mörkunum. Meira

21. janúar kl.04:22 | ibvsport.is

Þórarinn Ingi valinn íþróttamaður Vestmannaeyja

Óskar Óskarsson valinn Íþróttamaður æskunnar

Nú rétt í þessu var að ljúka útnefning á íþróttamanni Vestmannaeyja. Það var knattspyrnumaðurinn knái Þórarinn Ingi Valdimarsson sem að varð fyrir valinu. Þá var Óskar Óskarsson valinn íþróttamaður æskunnar. Óskar er einn efnilegasti knattspyrnumaður ÍBV.

éttir

20. janúar kl.13:30 | eyjar.net

Aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja

Sunnudaginn 30. janúar verður haldinn aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja í Safnaðarheimili Landakirkju. Fundurinn fer fram að loknu messuhaldi þess dags og hefst kl. 15.00. 

 

20. janúar kl.11:56 | visir.is

Kári keypti 20 Big Mac-hamborgara

Eyjatröllið Kári Kristján Kristjánsson hefur fengið sig fullsaddann af laxinum á hóteli íslenska liðsins og fór því í góða ferð á McDonalds. "Ég sé um að vinna upp þennan ömurlega mat á hótelinu. Við tókum eina Macferð í gær sem heppnaðist mjög vel. Það var BigMac, ostborgarar og franskar. Það var allt klárt," sagði Kári kíminn sem fyrr en hann vill helst ekki meiri lax.

20. janúar kl.11:29 | pressan.is

Stóll Emilíu Borþórsdóttur slær í gegn í New York

Það er ekki á hverjum degi sem húsgögn eftir íslenska hönnuði komast í heimspressuna. Emilía Borgþórsdóttir hannaði stólinn Surt og sýndi hann á hönnunarsýningunni, International Contemporary Furniture Fair (www.icff.com), í New York á dögunum

Fréttir

20. janúar kl.08:37 | eyjar.net

Framkvæmda- og hafnarráð

Ísfélagið óskar eftir því að bærinn lengi löndunarkant um 70m til austurs

Stefnt að því að rekstur upptökumannvirkja verði boðin út í febrúarmánuði

Framkvæmda- og hafnarráð fundaði þann 17.janúar síðastliðinn og var m.a. fjallað um það á fundi ráðsins að stefnt væri að útboði á rekstri upptökumannvirkja í febrúarmánuði.

 

19. janúar kl.11:23 | ruv.is

Kópurinn étur síld í hvert mál

Kópurinn Golli sem kom á land á Breiðdalsvík fyrr í vetur braggast vel á Fiskasafninu í Vestmannaeyjum og étur síld í hvert mál. Hann klappar saman hreifunum, heilsar og gefur merki um hvenær hann vill komast upp úr karinu sínu. 19. janúar kl.08:15 | Morgunblaðið

Stofnfjáraukning fjármögnuð með kúlulánum

Arður af rekstri Sparisjóðs Vestmannaeyja átti að duga til greiðslu lána

Stofnfjáreigendum Sparisjóðs Vestmannaeyja bauðst kúlulán til fimm ára til þess að taka þátt í stofnfjáraukningu sjóðsins árið 2007. Þetta segir Stefán Sigurjónsson, einn 70 stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja í samtali við Morgunblaðið. Fjöldi sparisjóða á Íslandi jók stofnfé sitt árið 2007 og var Sparisjóður Vestmannaeyja ekki undanskilinn. Stofnfjáraukning Eyjamanna nam um 350 milljónum króna á árinu 2007. Sparisjóður Vestmannaeyja hefur nú gengið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og nýja stofnfjáraukningu í tengslum við hana.





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband