Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Afar léleg frásögn af þessu "slysi"

Hvernig væri að segja betur upphafið á þessu "slysi". Til dæmis segja hvernig 4-5 ára getur sett í gír með fullorðinn við hlið sér einsog þessi "Vinur" sem setur í ath.semdir hjá fólki sem bloggar um þessa frétt. Og var hann í gangi? Ef hann hefði verið í gangi, hvað er að hjá fólki að skilja bílana eftir í gangi.

Enn annars guð sé lof að ekki fór verr. Og vona ég að fólk lætur þetta kenningu vera og passi betur á börnin sín þegar bílar eru annarsvegar.


mbl.is Barn keyrði á konu með barnavagn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af árlegum frösum og Herjólfsmálum

Hehe.....hafið ekki tekið eftir því að það er alltaf sami frasinn að straumurinn liggi á Þjóðhátíð. Og mætti að halda að það verði 15.000 manns í dalnum. Enn svo verður það kannski bara 8.000. Og þá líklegt að samgöngur í lofti sé um að kenna, eða veðrinu.

Enn þegar jarðgönginn koma þá má þess frasi loksins að hljóma fyrir alvöru.

Svo er sambandið með Herjólf og aukaferðir um þjóðhátíðina. Hvers vegna er þetta ekki í samningnum núþegar þar sem þetta er árlegur viðburður. Og ættti ekki að koma á óvart.


mbl.is Óska eftir næturferðum Herjólfs í tengslum við þjóðhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Púðaþjófurinn hefur verið maður með mönnum...

.....og skilað púðunum.

Ef þið tókuð ekki eftir þá heitir myndlistasýningin Maður með mönnum.


mbl.is Púðaþjófur sá að sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veðurblíða?

Jú, ég móltmæli því ekki beint að það sé búið að vera veðurblíða í Vestmannaeyjum (og þá í bænum vegna skjóla frá fjöllum). Enn að segja að það óvenjuhlýtt í júlímánuði er ég ekki víss að svo sé. Þarf að kanna það og setja það hér.

Skýringin að bæjarbúum finnst vera óvenjuhlýtt er sú að það er búið að vera frekar vindlaust og ef einhver vindur er tekur fjöllinn kringum bæinn á móti.

 


mbl.is Veðurblíða í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með fórdóma...........

Hvernig ósköpunum kemur þetta Fjölni við að það sé einhver þeirra áhorfenda að kalla inná "gróf köll" eins smekklega það getur kallast um svívirðingar og "kyn"þáttafordómar.

Mér finnst nú ansi skrítið að það þarf ekki nema einn "vitleysing" til að félagið situr í súpunni. Og "vitleysingurinn" virðist sleppa nokkuð vel frá þessu.

Það kannski sættanlegt að félagi borgi einhvað í sekt. Enn mér finnst það ætti frekar að herða refsingu á þessum svörtum sauðum (áhorfendur) sem mæta á íþróttakappleikjum með svona hegðun.

Svo mundi ég mæla með því að svartir íþróttamenn hafi meira samskipti ungt fólk sem stundar íþróttir. Mæti á æfingar eða einhvað svoleiðis sem "aðstoðarþjálfarar". Jú, við íslendingar erum ekki vanir að umgangast svart fólk og þess vegna gerist svona fodómar.

Við nefnilega dæmum fólk oftast án þess að þekkja það.


mbl.is KSÍ sektar Fjölni um 30 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Girðingar kringum hafnir, er það ekki málið?

Ég er velta mér öryggi hafna þegar ég les þessa frétt.

Maður hefur of oft heyrt þetta gegnum tíðina að bíll steypist í höfnina. Enn þarf þetta að gerast í dag? Er ekki hægt t.d. setja girðingu einsog nýbúið að setja í hér í Vestmannaeyjum. Reyndar örðum ástæðum sem er að koma hjá hryðjuverkum. Mætti setja meira af þessum girðingum kringum hafnir landsins.


mbl.is Bíll í höfnina í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Alsírs" ránið mikla í Eyjum fyrir 380 árum

Enn vegna fáfræði (held ég) þá var haldið að þetta væru Tyrkir enda "stórþjóð" í þá daga (að ég held). Svo virðist í dag sem sumir eru ekki með þetta alveg á hreinu. Og því veitir ekki að minnast þessarar hörmungar viðburð sem svokallað Tyrkjarán er. Svosem skiptir ekki máli hvað land átti í hlut (að mínu mati).

Ég tók eftir því að moggabloggarar sem hafa blogga um fréttina finnst ekki viðeigandi að það sé gert "gaman"leikrit um þennan hörmungar atburð.  Jú, þetta var ekki alvarlegt leikrit sem var sett á "svið". Enn hvað með það? Átti fólk að fá tár í augun, eða hvað? Mér finnst nú skömminni skárra að sjá smá húmor í þessu enn að velta sér sorg og volæði.

Hvað er ekki málið að minnast þennan atburð hvernig sem það er nú gert? Og minnast þeirra sem lentu í þessu?

Ég ætla að hrósa þeim öllum sem komuð að þessari Tyrkjaránssýningu. Þeir eiga þakkir skyldar að rifja upp sögu Vestmannaeyja (íslendinga) hvort sem hún er góð eða vond.


mbl.is Tyrkjaránsins minnst í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju ..........

.....með nýja skipið eigendur Berg-Hugins. WizardCool

Alltaf að stækka og breyta skip til að fækka fiskana í sjónum.

Það halda margir að stærðinn skiptir máli enn ekki gæði.

T.d. er fiskur sem er veiddur er af smábátum (trillum) langtum betri til munns að mínu mati. Enda var fiskur úr Fiskbúð Jóns Inga (nú eigandi skemmtistaðarins Lundans) oft á boðstólum þegar ég var 0?-15 ára. Svo þurfti hann að neyðast (að ég held) að loka fiskbúðinni. Og síðan þá er fiskur örsjaldan á boðstólum hjá mér. Vegna þess að mér finnst verksmiðjufiskur í dag bara einfaldlega ekki eins góður.

Þess vegna vil ég sjá meira frelsi fyrir þá sem vilja standa í smábátaútgerð.


mbl.is Smíði á Bergey VE gengur vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fugla-Stelpa Jónsdótttir!

Einkennileg geta þessi enskunöfn verið.

Kv. Pálmi Ungi Handsterki

E.s. svo þetta er ekki dæmt óviðunandi frétt þá votta ég þessari konu mínar dýpstu samúðHalo


mbl.is Jarðaför Lady Bird Johnson fer fram í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Loksins" alvöru mótmæli á Íslandi

Eða hvað? Allavega hafa þessi mótmælasamtök fengið í beinni að njóta sín mikið í fréttum á Ríkissjónvarpinu. Og þar með er tilgangnum náð. Enn fórnarkostnaðurinn er að brjóta löginn. Enn hvað er það miðað við siðlausa og "ólöglega" ákvörðun stjórnvalda að útryma dýrmæta nátturu Íslands án þess að spyrja kóng né prest. Það að segja að spurja íslensku þjóðina með þjóðaafgreiðslu.

Ég mæli með að við Vestmannaeyingar fáum þessa aðgerðarsamtök Saving Iceland til að mótmæla lélegum samgöngum milli lands og Eyja. Og láta þau loka Ártúnsbrekkunni..........


mbl.is Mótmælendur Saving Iceland loka Snorrabraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband