X 2009 eða fegurðarsamkeppni Suðurlands????

Glöggir Eyjamenn (báðir) hafa tekið eftir því að ekki hefur dottið brosið af Árna Johnsen alþingismanni eftir að úrslit lágu fyrir í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi um liðna helgi. Náði hann þar mjög góðri kosningu í 2. sæti en það sem ku kæta Árna ekki síður er hvernig raðaðist í 1., 3. og 4. sæti í prófkjörinu. Og lái honum hver sem vill! Sætin eru skipuð íðilfögrum drottningum og engu líkara en þátttakendur í prófkjörinu hafi talið sig vera að kjósa í keppninni um Ungfrú Suðurland og valið svo Árna Johnsen sem kynni.

Á Suðurlandi gengur listi Sjálfstæðismanna nú undir heitinu Kvennalisti Árna Johnsen en vafasamt er þó að listinn höfði til sunnlenskra femínista.

http://sunnlendingur.is/folk_fjor/news_details/234

n_v85i8qd086_large


mbl.is Unnur Brá hættir sem sveitarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband