Ströndum ekki.........

Innlent | mbl.is | 16.4.2008 | 14:49

Tilfinningahiti í Eyjum

Tilboð vegna kaupa og reksturs á ferju milli Vestmannaeyja og fyrirhugaðar Landeyjarhafnar verða opnuð á morgun. Nefnd á vegum samgönguráðuneytisins sér um útboðið. Mikill tilfinningahiti virðist vera í Eyjamönnum, sem virðast skiptast í tvær fylkingar eftir afstöðu til nýrrar hafnar í landi.

Undirskriftasöfnun hefur staðið yfir á netinu undanfarna daga á vegum Magnúsar Kristinssonar, kaupsýslumanns, þar sem safnað er undirskriftum gegn nýrri höfn og þess í stað hvatt til þess að smíða hraðskreiða ferju sem gangi á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Nú síðdegis voru 3000 nöfn komin á listann.

Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri sagði að Vegagerðin myndi leggja veg frá þjóðveginum niður að nýju höfninni á Landeyjarsandi og hugsanlegt væri að henni yrði falið að sjá um greiðslur vegna fyrirhugaðs þjónustusamnings sem boðinn verður út á morgun. 

„Vestmannaeyingar sjálfum sér verstir" 

Vegagerðin hafði milligöngu um að jarðgangnagerð yrði rannsökuð en kom að öðru leyti ekki að þeirri vinnu.  „Ég er eiginlega hættur að skilja málið alveg, ég held að Vestmannaeyingar séu sjálfum sér verstir í þessu máli," sagði Jón.

Við skulum minnast á árangur og ábyrgð á verkum Reykjanesbrautar og smíði á nýrri ferju fyrir Grímseyinga.....

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum  sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að á undirskriftarlista þeirra sem eru mótfallnir Bakkafjöruhöfninni sé meirihlutinn fólk, sem er ekki búsett í Eyjum og að málið hafi að miklu leyti verið blásið upp í fjölmiðlum.

Nú, er þetta einhvað einkaskoðun okkar búsettra í Eyjum. Mér finnst allir meiga hafa skoðannir á þessu máli. Það geta nefnilega aðrir enn Vestmannaeyingar haft áhuga á að heimsækja Vestmannaeyjar í framtíðinni. Og hverjir eru að blása upp í fjölmiðlum? íhaldsmaðurinn Elliði segir að þetta sé blásið upp í fjölmiðlum. Er hann kannski búinn að gleyma því að í síðustu kosningum blés hann þetta Bakkafjöruævintýri upp í fjölmiðlum.... 

 „Öllum rökum sem koma fram á þessum undirskriftarlista hefur verið svarað fyrir lifandis löngu," sagði Elliði. „Það er mikil óánægja með stöðu samgangna í Vestmannaeyjum og fólk orðið óþreyjufullt að bíða eftir lausnum á vandanum," sagði Elliði og bætti því við að hann teldi það vera að hluta til ástæðu þess að það væru jafnmörg nöfn á undirskriftarlistanum og raun ber vitni.

"Öllum" þeim rökum, segir íhaldsmaðurinn Elliði. Síðan hvenær er rök til í orðabókum íhaldsins? 

Svo þorði íhaldið ekki að láta okkur Vestmannaeyinga að kjósa um þetta.

Elliði sagði að um 30% af kjörgengum Eyjamönnum væru búnir að skrifa undir listann en tók fram að hann væri ekki búinn að skoða hann nákvæmlega eða tölfræðigreina hann.

Ok, hann ætlar að fara undir feld. Til að finna einhvað á listanum til rengja hann. Allveg dæmigerð vinnubrögð fyrir íhaldið.

Betra að veifa röngu tré en öngu

Elliði sagði að rök þeirra sem eru mótfallnir Bakkafjöruhafnar séu að miklu leyti byggðar á ranghugmyndum um framkvæmdina.  „Aðferðir forsvarsmanna listans byggja á því að betra sé að veifa röngu tré en öngu," sagði Elliði og benti í því samhengi á myndband sem er að finna á vefsíðu listans.

Ok, hann Elliði og íhaldið hafa ekki neinar ranghugmyndir um Bakkafjöruævintýrið?

Elliði sagði að það væri ekki hægt að bera saman lítinn lóðsbát og stóra 70 metra ferju. „Það er búið að hræða fólk með ýmsum aðferðum og nú sem endranær er skrattinn alveg feikilega vinsælt veggskraut", sagði Elliði.

Er Elliði ekki sjálfur búinn að fegra þetta Bakkafjöruævintýri að hætti íhaldssins?

Svo fer ekki milli mála að það er oft ansi mikill sjógangur þarna.

Að lokum sagði hann að andstæðingar Bakkafjöruhafnar hefðu knúið sitt mál með rökum sem ekki styðjast við raunveruleika og hafi keyrt það áfram eins og kosningabaráttu á tilfinninganótum og fá fólk til að efast um að gætt yrði að öryggi farþega.

Ok, hvað gerði Elliði og hans menn í íhaldinu rétt fyrir síðustu kosninga? jú, þeir gerðu allt til þess að komast í meirahluta. Og gerðu allt til að fegra Bakkafjöruævintýrið án þess að reikna allt dæmi til enda.


mbl.is Tilfinningahiti í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband