Moggagrínisti með rasistablogg gegn Vestmannaeyingum....

Það er alltaf að koma svona rasistablogg á okkur Vestmannaeyinga hér á moggablogginu. Sjá hér:

Rokrassgat

Hvernig getur fólk búið á svona útskerjum?  Alltaf brjálað veður og alltaf allt að fjúka og eilíft væl í fólkinu.

Hvað er svona eftirsóknarvert við að vera þarna í slori og fellibyl?

Tökum vel á móti Vestmannaeyingum sem flytja hingað á höfuðborgarsvæðið en hættum að styrkja byggð þarna. 


mbl.isÞakplötur fuku í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1

 

Það er ekkert mál að búa í Eyjum Guðrún, og ég get ekki séð á þessari grein á mbl að fólkið þar sé eitthvað að væla.  Það var VÆLL í fólkinu á höfuðborgarsvæðinu fyrir ekki svo löngu síðan, þú ert greinilega fljót að gleyma.

En það ber að þakka að þú viljir taka vel á móti Vestmannaeyjingum sem flytjast á mölina.  En ég held að það séu engir dreifbýlisstyrkir í gangi hjá fólki sem vill búa utan "malarinnar", aftur á móti þá reikna ég frekar með því að fólk og fyrirtæki í Eyjum styrki höfuðborgarsvæðið með því sem þau greiða í skatt, þannig að styrkirnir eru greinilega frá Eyjum til Reykjavíkur.

Það er mjög gott að búa í Eyjum, ég bjó þar sjálfur í tæp sjö ár, því næst í rúm tuttugu ár í Reykjavík og varð þeirri stund fegnastur er er flutti þaðan aftur.

Þetta blogg þitt sýnir einungis fáfræði.

Örn. (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 17:12

2 Smámynd: G Antonia

jákvæð og bjartsýn kona les ég um höfundinn Smile Ekki finnst mér þessi færsla beint jákvæð.... ??? GetLost Það er nú ekki ALLTAF slor og fellibylir, ef þú hefur komið þangað þá hlýtur þú að hafa séð þvílík náttúruperla Vestmannaeyjar eru? .... Og þeir borga víst ábyggilega fyrir sig, Vestmannaeyingar. Ekki hef ég heyrt meira væl í Eyjamönnum en öðrum Íslendingum ?Woundering

G Antonia, 20.3.2008 kl. 17:12

3 Smámynd: Hannes Friðriksson

Það skín nú ekki jákvæðnin í þessari færslu.þú ættir að fara til Eyja og þá kynnistu jákvæðu fólki sem fer ekki í fýlu þótt á móti blási

Hannes Friðriksson , 20.3.2008 kl. 17:34

4

vá sumir eru meiri fífl en aðrir.

Sigurður E (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 17:41

5

Þú er enganvegin í lagi..Á hvaða lyfjum ert þú..Hver styrkir hvern

ÞS (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 18:28

6

Hvað er að sjá þessa færslu hjá þér Guðrún... þetta er mikill fáfræði að vestmanneyjingar séu einhverjar væludollur, vælandi yfir hinu og þessu... það eru bara ekki allir sem langar til að búa í höfuðborginni... OG ÉG ER EIN ÞEIRRA VÆLANDI EYJAMANNA!!!! þér er velkomið að koma og sjá hvað eyjar hafa mikið upp á að bjóða bæði hvað varðar framlag sitt til Íslands (skattur) og hvað bæjarbúar eru samhuga í hugsun og verki...

Rósa (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 20:04

7 Smámynd: Gísli Hjartarson

það er klárlega minna rok í Eyjum en í kollinum á þér gæskan! En vertu velkominn til okkar í Eyjar út þegar þú villt.

Gísli Hjartarson, 20.3.2008 kl. 20:05

8 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Jeminn, voðalega verðið þið æst.  En með Árna Johnsen sem bæjarstjóra er fólki í Vestmannaeyjum ekki við bjargandi.

Guðrún Jónsdóttir, 20.3.2008 kl. 21:03

9 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

 

Veistu vinan ég held að þú ættir að hætta að tjá þig um Vestmannaeyjar.

allavega þá man ég ekki eftir því að bæjarstjórinn okkar heiti Árni Johnsen Tounge

Árni Sigurður Pétursson, 20.3.2008 kl. 21:12

10

ég forkenni þér höfundi þessarar  greinar að hafa ekki verið í herjólfi í dag og komið bara hingað...... en hefur þú komið til eyja... þegar það er sól og logn...

eyjamaður (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 21:34

11

 

Ja nú er ég hissa!

Annað hvort ert þú að grínast og koma fólki í uppnám með þessum skrifum eða þú ert ekki eins vel upplýst og meirihlutinn í þessu landi.

Að mínu mati ættir þú að draga aðeins úr öllu sem þú telur heilsutengt og næra aðeins meira á þér kollinn því það gefur þér líka gott og jú okkur öllum hinum sem slysast til að lesa þetta blogg þitt.

Með vinsemd

ÁJ

Ástþór Jónsson (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 21:59

12

 

Þetta er eitt mesta rugl sem ég hef lesið.

Vælandi Vestmannaeyjingar. Veit nú ekki betur þegar það kemur smá rok í reykjavík þá fer fólk í kerfi. Og hver var að væla yfir rokinu hérna?? enginn! Auðvitað er leiðinlegt þegar svona hlutir gerast eins og með þakið og fólk talar um þetta en við vælum ekki. Vestmannaeyjar eru yndislegur staður og hér býr yndislegt fólk. Og þú veist greinilega fátt í hausinn á þér ef þú ert að halda því fram að við séum að fá styrk til að byggja hérna eða búa. Farðu nú að opna bækur og lesa þig til. Og btw þú fylgist ekki meira með pólitík en það að halda því fram að bæjarstjórinn okkar heiti Árni Johnsen.

Mundu bara næst þegar þú bloggar. Bloggaðu um eitthvað sem þú veist og hefur rök fyrir.

Kolbrún Birna (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 23:49

13

  Krakkar við skulum ekkert vera að eyða orðum í þessa vitleysu. Við vitum það best hvernig er að búa í Eyjum en ekki þessi páfagaukur. Það er líka bara einn bloggvinur skráður á bloggið hjá henni og segir það allt...... Sá bloggvinur er líka hálf skrítinn.

Tobbi Villa (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 23:57

14 Smámynd: Aðalsteinn

Ég tek undir með Tobba, þetta er ekki svara vert.
Bjóðum heldur Guðrúnu velkomna til Eyja svo að hún geti skoðað sig þar um og kynnst Eyjunni okkar fögru.

Aðalsteinn, 21.3.2008 kl. 01:38

15 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson veðurathugunarmaður á Stórhöfða

 

Fyrsta blogg

Halló öll sömul.  Mig hefur lengi langað að blogga og nú læt ég verða af því.

Ég veit ekki hvort ég þori miklu en það verður bara að koma í ljós.

knús.

GJ. 



Meiri jákvæðniAf hverju getur fólk ekki verið jákvætt í stainn fyrir að rífast alltaf?  Ég vildi óska þess að alþingismennirnir væru oftar sammála því það er svooooo leiðinlegt að hlusta á þrasið í þeim.  Nú skulum við öll senda þeim jákvæða strauma.  Svo á þetta fólk að lesa Leyndarmálið og fara eftir því sem þar stendur.  Þá verður allt allt í lagi.

mbl.isLandsmenn hrindi atlögu að almannaþjónustunniTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttHræðileg lífsreynsla

Það var keyrt yfir hundinn minn, Herbó, í gærmorgun.  Ég var að hlaupa eftir gangstéttinni og hafði Herbó í bandi en því miður var það svona band sem lengist af því það er inni í dós og Herbó sá annan hund hinu meginn viðgötuna og hljóp yfir.  Þá kom stór jeppi og keyrði beint yfir hann.

Það var hræðilegt að finna hvernig það kipptist í bandið þegar bíllinn keyrði yfir Herbó og svo lá hann bara þarna á götunni eins og pönnukaka sem blæddi úr og ég hélt í hinn endann á bandinu og hljóðaði.

Guð hvað þetta var hræðilegt.  Ég tók mér veikindafrí í vinnunni í dag og svo ætla ég að jarða Herbó á eftir. 



Hjartnæm stund

Ég jarðsetti Herbó í dag.  Við áttum saman hjartnæma hinstu stund úti í garði.  Herbó var lagður í fallegan kassa og ég las úr Leyndarmálinu yfir moldum hans.

Á gröfina lét ég stein þar sem skrifuð eru þessi orð:  Ég óska þér aftur til mín.

Svo fór ég inn og grét eins og ég þurfti en ég veit samt að ef ég óska þess nógu oft og lengi, fæ ég Herbó aftur í líkama annars hvutta.



Olíuhreinsunarstöð er umhverfisvæn

Við Vestfirðingar stöndum saman og munum fá okkar olíuhreinsunarstöð.  Það er notuð svo mikil matarolía á veitingastöðum og heimilum nú til dags að ekki veitir af svona stöð til að endurvinna hana.  Þess vegna skil ég ekki af hverju fólk segir að olíuhreinsunarstöð sé ekki umhverfisvæn.



mbl.isEinar Kr.: Ríksvaldið á að beita sér fyrir olíuhreinsistöðTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttMA vannMontnu Norðlendingar!  Kvennaskólinn burstar ykkur sko í úrslitunum.

mbl.isMenntaskólinn á Akureyri kominn í úrslit Tilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttGallar eru nauðsynlegir

Nú er mín sko hætt að fatta.  Eru ekki allir í byggingarvinnu í göllum?  Af hverju þarf að tryggja sig gegn þeim?   Vill einhver útskýra þetta fyrir mér.



mbl.isVerktakar tryggi sig gegn göllumTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttHerbalifeEf maður vill lifa lengi á maður að borða mikið Herbalife.  Maður deyr kannski fyrir rest en bara miklu seinna nema maður verði fyrir bíl eða lendi í flugslysi eða einhverju svoleiðis.  Þá deyr maður kannski snemma.

mbl.isPáfi: Ódauðleiki ekki eftirsóknarverðurTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttKennarinn sem fór

Guð hvað ég man eftir því þegar strákarnir í bekknum mínum tóku einn kennarann og læstu hann inni í kústaskáp.  Svo sprautuðu þeir úr slökkvitæki undir hurðina og hann var fluttur meðvitundarlaus á spítala og kom ekki aftur.  Hann dó ekkert sko, bara vildi ekki koma aftur í þennan skóla. 

Hann hefði örugglega feingið 20 milljónir ef hann hefði viljað. 



mbl.isDæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bæturTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttVantar klassa

Það vantar allan klassa í þessa þætti.  Þeir eru eitthvað of mikið "verkó" fyrir mig og ég er hætt að horfa á þá.

En ég myndi horfa á svona þátt ef Garðar Thor væri með hann.

Hann er draumur í dós. 



mbl.isBubbabörnum boðið upp á tattúTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttFótbolti á Reyðarfirði

Það veit ekki á gott þegar fótboltalið af suðvesturhorninu eru farin að tapa fyrir liðum utan af landi.  Mig grunaði ekki að það væri spilaður fótbolti á Reyðarfirði en vinkona mín sagði mér að Pólverjarnir sem komu til að byggja álverið hefðu kennt Austfirðingum fótbolta í fyrra.

Áfram KR! 



mbl.isKeflvíkingar töpuðu á ReyðarfirðiTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttGott mál

Það verður gott þegar íslensku jöklarnir verða horfnir.  Þá verða jökulsárnar ekki eins skítugar og bara fínt að nota þær í drykkjarvatn og svoleiðis.  Svo fyllast lónin í virkjununum ekki af drullu heldur.

Þetta verður bara hið besta mál og ég hlakka til. 



mbl.isJöklar hopa hrattTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttVerum glöð og jákvæð

Verum bara öll vinir og hugsum um heilsuna.  Verum jákvæð og hættum að rífa niður ráðherrana og hitt fólkið sem stjórnar.  Brosum framan í lífið og þá brosir lífið til baka.

Hugsum jákvætt og þá verður allt gott. 

Óskum okkur alls hins besta og þá fáum við allt það besta.



mbl.isFyrirtækin fullsnögg að hækkaTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttÉg brýt lögJesús góður Guð!  Eins og okkur vinkonunum þykir nú gott og gaman að stríplast í heita pottinum okkar í Hveragerði. 

mbl.isBannað að bera brjóstin í HveróTilkynna um óviðeigandi tengingu við fréttTinni í Tíbet

Ég var að lesa bókina Tinni í Tíbet.  Ég gerði það vegna þess að Tíbet er alltaf í fréttunum og mig langaði að vita meira um landið.

Hún er hafsjór af fróðleik og ég veit miklu meira um landið núna en ég vissi áður.  Þar eru aðallega burðarmenn og munkar og svo snjómaðurinn ógurlegi sem heitir Yeti á máli heimamanna.  Hellingur af fjöllum þarna líka.

Ef þið viljið setja ykkur inn í málin, skuluð þið lesa Tinna í Tíbet.   Hún fær fjórar stjörnur af fimm hjá mér.



Grindavík

Guð, þegar ég las fyrirsögnina á fréttinni, datt mér í hug Grindavík.

Ég veit ekki af hverju. 



mbl.is11 ára strákur kvæntist 10 ára frænku sinniTilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pálmi Freyr Óskarsson veðurathugunarmaður á Stórhöfða , 21.3.2008 kl. 08:49

tekið af http://gunnajons.blog.is/blog/gunnajons/entry/480425/#comment-add


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband