Þessi olíufélög eru "þjófar"

Mig langar í Toyota Auris dísel bíl til að spara pening og menga lítið andrúmsloftið, enn olíufélögin virðast ekki láta það rætast vegna þess að díselbensín er dýrari enn 95 okt bensínið.

Í gær fyllti ég toyotuna mína fyrir 5.500 kr. en fyrir 15 árum fór það undir 4.000. Og það þýðir í dag að ég fylli tankinn 4-5 sinnum í mánuði. Þannig að ég borga svona 30.000 í bensín á mánuði.


mbl.is Bensínið í 141,80 kr. og dísil í 149,80
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig væri þá að gefa skít í þá og versla eingöngu við Atlantsolíu sem halda aftur af hinum, ég versla persónulega hvergi annarsstaðar.....

Árni K (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 01:29

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Sæll Árni K.

Þannig er mál með vexti í Eyjum að við erum ekki með Atlansolíu. Þannig að við sitjum með Þríhöfðaolíufélögin og þurfum að borga hærra verð enn aðrir íslendingar fyrir vikið.

Pálmi Freyr Óskarsson, 9.3.2008 kl. 21:40

3 identicon

Sæll Pálmi

Fínasta viðhorf sem þú hefur gagnvart umhverfinu....en hefurðu hugsað um að minnka aksturinn um götur bæjarins?

Heillavænlegast er að byrja á að gera það sem maður kemur hönd á sjálfur áður en maður krefst einhvers af öðrum.....

Bestu kveðjur og sjáumst á æfingu á fimmtudaginn,

Arnsteinn

Arnsteinn (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 23:39

4 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Sæll Arnsteinn

Þannig er mál með vexti að vegalengd milli Stórhöfða og Vestmannaeyjarbæjar er soldið langur, og veðrið er líka ekki oft hliðhollt, og svo vil ég njóta góðrar tónlistar í bílnum (svo maður gerir ekki 70 ára föður minn geðveikan, eða þá mig).

Ég hef þurft að skera niður aksturinn í vetur, svo hægt sé að fjárfesta í umhverfisvænan og sparneytan bíl einsog Toyota Auris dísel. Sem ég skil reyndar ekki afhverju svoleiðis bílar séu ekki niðurgreiddir af Ríkinu (íhaldinu), og enn einkennilegra hvers vegna díselolía sé hærri enn bensín. Þetta er svipað vitleysa og með sykraða og óholla drykki og mat, sem eiga auðvitað að vera dýrari enn ósykra og hollari drykki og mat. Svo má ekki gleyma að það á að niðurgreiða dekk einsog loftbóludekk sem oftar enn ekki betri enn andskotans nagladekk. Þar sem nagladekk gera ekkert annað spæna upp malbikið allan vetur. Vegna þess að það er oftast auðar götur.......

Ég mundi ganga mun oftar ef ég ætti heima í Vestmannaeyjabæ (gott dæmi á þjóðhátíðinni, þá geng ég oftast frá Faxastíg til Herjólfsdal, og til baka). Og jafnvel mundi ég gera það sem ég gerði mikið þegar ég var 10-14 ára og bjó með annan fótinn í Faxasígnum. Enn það var að hjóla á BMXhjólinu mínu.

Enn annars bið ég spenntur eftir að sjá "hvítan hrafn" á æfingu á fimmtudaginn

Pálmi Freyr Óskarsson, 12.3.2008 kl. 07:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband