MBL.is:

  Rykmökkur yfir höfuðborgarsvæðinu.

Náið fylgst með loftgæðum

15:14 Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast til borgarinnar í nótt. Reikna má með að mæligildi komi til með að sveiflast áfram. Veðurstofa Íslands spáir áfram norðlægum áttum sem að öllum líkindum ná að halda ösku frá höfuðborgarsvæðinu. Meira » Boeing-vélar frá Icelandair á flugvellinum í Glasgow.

Aska yfir Skotlandi á morgun

14:57 Breska veðurstofan spáir því nú að öskuský frá Grímsvötnum verði yfir stærstum hluta Skotlands á morgun og gæti leitt til þess að flugvellir þar lokist. Það fari þó eftir stærð og þykkt skýsins. Meira »

Ekkert heilsutjón vegna ösku

Bíl ekið á þjóðvegi eitt skammt frá Kirkjubæjarklaustri í gærmorgun.

14:56 Búið er að hafa samband við alla hjarta- og lungnasjúklinga á mesta öskufallssvæðinu og kanna líðan þeirra. Aukalæknir sem kallaður var út á Kirkjubæjarklaustri um helgina verður áfram vð störf á næstunni. Meira »

Allt á kafi í snjó á Egilsstöðum

Allt er á kafi í snjó á Egilsstöðum.

13:57 Mikil snjókoma hefur verið á Austurlandi í dag. Nánast er ófært innanbæjar á Egilsstöðum og á milli staða á svæðinu.   Meira »

Ólafur segist bjartsýnn myndskeið

thorvaldseyri_mp4

14:29 Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, segir að skyggni þar í morgun hafi verið um 300 metrar vegna öskufalls en síðan hafi komið hraustlegur blástur sem feykti öskumistrinu út á haf. Meira »

Völlurinn opnast klukkan 18

Flugmaður Icelandair horfir á gosmökkinn frá Grímsvötnum.

14:00 Nú er gert ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur muni opnast um klukkan 18 í dag en völlurinn hefur verið lokaður fyrir flugumferð frá því í gærmorgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Meira »

Færanleg veðursjá mælir mökkinn

Mælingamenn við veðursjána skammt frá Hótel Laka.

13:43 Færanleg veðursjá var sett upp í Landbroti í upphafi eldgossins í Grímsvötnum á laugardagskvöld. Hún er notuð til að mæla gosmökkinn, hæð hans og útbreiðslu. Meira »

Framrúður bíla brota

Vegurinn um Hvalnesskriður.

13:27 Ekkert ferðaveður er nú milli Hafnar og Djúpavogs. Að sögn fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra hafa framrúður bíla brotnað vegna sandroks. Meira »

Óvíst hvort hægt verður að fljúga

Ekki er ljóst hvort hægt verður að fljúga í kvöld.

12:54 Það er á mörkunum að hægt verði að opna Keflavíkurflugvöll í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Isavia en ný öskudreifingarspá var að berast frá Bretlandi. Meira »

Skyndilegur svifrykstoppur

Mistur yfir Reykjavík.

12:42 Loftgæðamælingar á Grensásvegi í Reykjavík sýndu háan topp í svifryki um klukkan átta í morgun. Þessi toppur mældist í kringum 700 míkrógrömm á rúmmetra en heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á sólarhring. Meira »

Sauðfé haft úti í Fagradal

Kindurnar fengu ferskt hey í morgun.

12:01 Jónas Erlendsson bóndi í Fagradal í Mýrdal, segir ástandið þar á svæðinu alls ekki jafn slæmt og fyrir austan. Öskumistur sé í loftinu en lítið sem ekkert öskufall.„Við förum grímu- og gleraugnalaus út í fjárhús og út í bíl en það er betra að hafa grímu ef maður er lengi úti." Meira »

Árbæjarlaug lokað vegna ösku

Árbæjarlaug. Mynd úr safni.

11:24 Vegna öskufalls reyndist nauðsynlegt að loka Árbæjarlaug í morgun. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að gert sé ráð fyrir að hreinsun verði lokið klukkan 12 og muni laugin þá opna á ný. Meira »

Klausturskeppninni frestað

Ekki verður keppt í þolakstri á laugardaginn líkt og til stóð.

12:32 Keppni í þolakstri á vélhjólum sem átti að fara fram á Kirkjubæjarklaustri nk. laugardag hefur verið frestað um ótilgreindan tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum. Meira »

Sótsvartir jakar

Mynd af vefmyndavél Mílu sýnir svarta jakana á Jökulsárlóni.

11:59 Aska frá eldgosinu í Grímsvötnum hefur dreifst víða. Á vefmyndavél Mílu má nú sjá sótsvarta jaka í Jökulsárlóni en þar er mjög grámyglulegt um að litast. Meira »

Ræða viðbrögð við gosinu

Ferðamenn í Skaftafellsýslu í gær.

11:23 Iðnaðarráðuneytið segir, að eldgosið í Grímsvötnum geti haft mikil áhrif á ferðaþjónustuna á Íslandi og líkt og í eldgosinu í Eyjafjallajökli á síðasta ári hafi Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra kallað saman viðbragðsteymi sem hittist á hverjum morgni í ráðuneytinu til að meta stöðuna og taka ákvarðanir um aðgerðir. Meira »

Ráðherrar ætla á gossvæðið

Ekkert skyggni er nú á stóru svæði á Suðausturlandi.

12:24 Ráðherrar munu fara á gossvæðið og kynna sér aðstæður um leið og samgönguleiðir opnast. Þá mun samráðshópur undir stjórn almannavarna í dag hefja markvissa yfirferð yfir gossvæðið og síðar í þessari viku skila stjórnvöldum skýrslu um ástandið með tillögum um viðbrögð og framkvæmdir. Meira »

Heimaklettur horfinn

11:44 Mikið öskumistur er í Vestmannaeyjum. Skólahald í Grunnskóla Vestmannaeyja féll niður í dag. Þá hvetur almannavarnarnefnd Vestmannaeyja fólk með öndunarfærasjúkdóma til að vera ekki á ferli í Eyjum. Meira »

Kolniðamyrkur á miðjum sumardegi myndskeið

230511 aska

11:23 Nú þegar farið er að nálgast hádegi er enn niðamyrkur á Kirkjubæjarklaustri. Skyggnið hefur versnað frá því sem var í gærkvöldi og er ekki nema um nokkrir metrar. Nokkuð öskulag er yfir öllu og aðstæðurnar eru sannarlega magnaðar. Meira »

 

Ferðamenn í Skaftafellsýslu í gær.

Ræða viðbrögð við gosinu

11:23 Iðnaðarráðuneytið segir, að eldgosið í Grímsvötnum geti haft mikil áhrif á ferðaþjónustuna á Íslandi og líkt og í eldgosinu í Eyjafjallajökli á síðasta ári hafi Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra kallað saman viðbragðsteymi sem hittist á hverjum morgni í ráðuneytinu til að meta stöðuna og taka ákvarðanir um aðgerðir. Meira »

Akranes.

Börðu mann með járnstöngum

11:11 Þrír karlmenn réðust á föstudagskvöld inn í hús við Presthúsabraut á Akranesi og börðu húsráðandann með járnstöngum.   Meira »

Árbæjarlaug lokað vegna ösku

Árbæjarlaug. Mynd úr safni. 11:24 Vegna öskufalls reyndist nauðsynlegt að loka Árbæjarlaug í morgun. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að gert sé ráð fyrir að hreinsun verði lokið klukkan 12 og muni laugin þá opna á ný. Meira »

Kolniðamyrkur um hábjartan dag myndskeið

230511 aska 11:23 Nú þegar farið er að nálgast hádegi er enn niðamyrkur á Kirkjubæjarklaustri. Skyggnið hefur versnað frá því sem var í gærkvöldi og er ekki nema um nokkrir metrar. Nokkuð öskulag er yfir öllu og aðstæðurnar eru sannarlega magnaðar. Meira »

Stal fötum

10:58 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 31 árs gamla konu í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir búðarþjófnað. Konan stal fötum, sem metin eru á 10.500 krónur. Meira »

Álit dýralækna verði gerð opinber

Álver Norðuráls á Grundartanga. 10:33 Ragnheiður Þorgrímsdóttir, hrossabóndi á bænum Kúludalsá, telur eðlilegt að álit dýralækna, sem Norðurál hafi fengið varðandi veikindi hrossa á bænum, séu gerð opinber, einkum vegna þess að enginn dýralæknir hafi lokið rannsókn á hrossunum svo Ragnheiði sé kunnugt um. Meira » 

Útsending frá gosinu brást

Gosmökkurinn frá eldstöðinni í Grímsvötnum í gær. 10:31 Á vef fjarskiptafyrirtækisins Mílu verður hægt að fylgjast með eldgosinu í Grímsvötnum í beinni útsendingu, líkt og boðið var upp frá gosinu í Eyjafjallajökli í fyrra. Vegna mikils öskufalls þurfti að færa vefmyndavélina frá upphaflegum stað í Freysnesi. Meira »

Börn leiki sér ekki úti í öskunni

Fótspor í öskunni í Skaftafellsýslu. 10:14 Heilbrigðiseftirlit Suðurlands vill beina þeim tilmælum til leiksskóla, skóla og annarra umsjónarmanna barna, að láta þau ekki leika sér úti meðan ástandið er eins og það er vegna öskufalls frá Grímsvatnagosinu. Meira »

Aukaferðir hjá Iceland Express

10:17 Iceland Express flýgur á alla áfangastaði sína eftir hádegi í dag um leið og Keflavíkurflugvöllur verður opnaður.  Meira »

Aukaflug til Norðurlandanna

09:56 Icelandair hefur bætt við þremur aukaflugum við áður kynnta áætlun sína í kvöld. Flogið verður til Kaupmannahafnar og Osló kl. 20:45 og til Stokkhólms um miðnætti. Jafnframt verður flogið frá þessum borgum í nótt til Keflavíkur. Meira »

Svalbarðaflug gæti stöðvast

Gosmökkurinn frá eldstöðinni í Grímsvötnum í gær. 08:46 Norsk flugmálayfirvöld segja, að gera megi ráð fyrir því að öskuský frá Grímsvötnum hafi áhrif á flug til og frá Svalbarða þegar líður á daginn og hugsanlega muni það stöðvast alveg í kvöld. Meira »

Skólahald fellt niður

Hvolsvöllur. Hvolsskóli er í forgrunni. 07:21 Ákveðið var í morgun, að fella niður skólahald í Hvolsskóla á Hvolsvelli í dag vegna öskumisturs.   Meira »

Icelandair hefur flug síðdegis

Icelandair gerir ráð fyrir að fara aftur í loftið síðdegis í dag. 09:26 Icelandair hyggst hefja flug samkvæmt áætlun síðdegis í dag og mun bæta við aukaflugi en gert er ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði opnaður á ný seinnipart dags. Meira »

Loftrýmið opnist í dag

08:10 Góðar líkur eru taldar á því að Keflavíkurflugvöllur verði opnaður síðdegis eða í kvöld og Akureyrarvöllur upp úr hádegi.  Meira »

Sáu ekki stikur eða kanta

Guðmundur Kristján Ragnarsson mælir þykkt öskulagsins. 07:10 „Þetta hefur verið mjög langur og strembinn dagur. Maður er bara orðinn hálflúinn," sagði Guðmundur Kristján Ragnarsson úr Björgunarsveitinni Víkverja í Vík, þegar blaðamaður náði tali af honum í gærkvöldi. Meira »

Kolniðamyrkur

Brynvarinn björgunarsveitarbíll í öskumyrkrinu utan við Hótel Laka á níunda tímanum í morgun. 09:10 Kolniðamyrkur er í nágrenni Kirkjubæjarklausturs og skyggni ekki nema um 4 metrar. Aftur dimmdi í nótt eftir að birt hafði í gær og vart hægt að fara úr húsi. Meira »

Svolítið öskufall á Akureyri

07:37 Aska hélt áfram að falla á Akureyri í nótt. Á myndunum, sem teknar voru nú um hálf átta leytið, er hvítur diskur sem settur var út í gærköldi og einnig má sjá vélarhlíf á grárri bifreið. Meira »

Stöðugt öskufall á Kirkjubæjarklaustri

06:49 Öskufall hefur verið stöðugt á Kirkjubæjarklaustri og er skyggnið ekki nema um 5-50 metrar, að sögn lögreglunnar og björgunarsveitarmanna. Meira »

Sunnudagur, 22.5.2011

Laugardagur, 21.5.2011

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband