Pressan.is

22.maí 2011 - 18:15

Eyddi öllu sínu sparifé - alls 16 milljónum - í kynningarefni um heimsendann sem aldrei varð

Hinn bandaríski Robert Fitzpatrick fór heldur betur illa að ráði sínu í aðdraganda heimsendisins sem síðar kom í ljós að varð ekki þegar hann eyddi öllu sparifé sínu í auglýsingar.
22.maí 2011 - 17:30

Klósettsetuhattur Beatrice prinsessu til sölu á ebay - Verða fleiri brúðkaup fyrir barðinu?

Hattar hefðarfrúnna leika yfirleitt stór hlutverk í konunglegum brúðkaupum í Bretlandi. Sá sem vakti hvað mesta athygli í því nýjasta var ansi furðulegur hattur Beatrice prinsessu sem nú er til sölu á uppboðsvefnum ebay.com í þágu góðgerðamála.

 

22.maí 2011 - 17:11

Erlendu ferðamennirnir komnir í leitirnar: Fundust á Egilsstöðum heilir á húfi

Erlendu ferðamennirnir fjórir sem saknað var og höfðu lagt af stað á grárri Polo bifreið og Hyundai smábíl eru komnir í leitirnar. 22.maí 2011 - 16:35

Fólkið er fundið: Höfðu keyrt upp á Gullfoss - Hins vegar næst ekki í aðra ferðamenn

Fjórmenningarnir sem björgunarsveitir höfðu leitað að í morgun eru komnir í leitirnar en þeir fundust heilir á húfi við Gullfoss. 22.maí 2011 - 16:10

Eldgosið enginn heimsendir - Mennirnir sjálfir mun hættulegri en eldgos segir Snorri í Betel

Snorri Óskarsson í Betel segir nýjustu heimsendaspána enn vera þvaður þrátt fyrir náttúruhamfarirnar sem nú eiga sér stað og hófust um það leyti sem heimsenda var spáð. Harold Camping er að sögn Snorra dæmigerður falsspámaður sem varað er við í Biblíunni.

 


22.maí 2011 - 15:15

Hvað segja erlendir fréttamenn um eldgosið í Grímsvötnum? - Muna enn eftir Eyjafjallajökli

Erlendir fréttamiðlar hafa sýnt eldgosinu í Grímsvötnum mikinn áhuga síðan það hófst um sexleytið í gær. Gosið í Eyjafjallajökli er umheiminum enn í fersku minni og keppst er við að bera gosin tvö saman. Forvitnilegt er að sjá hvað helstu miðlarnir hafa að segja um ástandið. 22.maí 2011 - 14:03

Myndaröð frá gosinu í Grímsvötnum: Eldglæringar og svarta myrkur grúfir yfir sveitinni

Gríðarlegt öskufall í Meðallandi rétt við Eldvatn. Eldgosið í Grímsvötnum er stærra en meðalgos en öskufall er þegar orðið gríðarlegt á Suð-Austurlandi og í raun ekki verandi úti þar sem verst lætur.
22.maí 2011 - 13:15

Gosið í Grímsvötnum er ígildi Kötlugoss: Hlaupið verður samt líklega ekki stórt, segir Ómar

Ómar Ragnarsson segir yfirstandandi eldgos í Grímsvötnum það stærsta sem hann hefur augum litið og líklega stærsta eldgos á Íslandi í 64 ár. Svo magnað sé gosið að kalla megi það ígildi Kötlugoss en síðast gaus Katla árið 1918 og það með látum.
22.maí 2011 - 12:41

Nýtt: Ekkert spurst til fjögurra ferðalanga á gosslóðum - Lögðu af stað klukkan átta í morgun

Ekkert hefur spurst til fjögurra ferðalanga sem lögðu af stað frá Höfn í Hornafirði klukkan átta í morgun en mennirnir eru á vegum ferðaþjónustufyrirtækis í bænum.
22.maí 2011 - 12:00

Magnaðar hreyfimyndir úr gervitungli sýna upphaf gossins í Grímsvötnum - MYNDBAND

Eldgosið í Grímsvötnum er gríðarlega stórt en gervitungl sem hafa vökult auga með Íslandi náðu á mynd andartakinu þegar gosið hefst og brýst í gegnum skýjamökkinn.
22.maí 2011 - 11:16

Ferðamenn fastir vegna gossins: Menn verða bara svartir - Verra ástand en í Eyjafjallajökli

Ferðamenn og nokkrir fréttamenn eru fastir á Hótel Núpi við Lómagnúp á Suðurlandi vegna öskufalls. Viðstaddur segir ástandið skelfilegt en engir björgunarsveitamenn hafa hætt sér út að hótelinu. 22.maí 2011 - 10:15

Vefmyndavél við Jökulsárlón: Svartur mökkur hvílir yfir öllu - Nær ekkert skyggni á köflum

Eins og sjá má er skyggni lítið sem ekkert og allt svart nú á ellefta tímanum í kvöld. Fyrirtækið Míla hefur sett upp vefmyndavél við Jökulsárlón þar sem sjá má í beinni útsendingu hvernig svartur mökkur hvílir yfir öllu. 21.maí 2011 - 22:22

Ný mynd frá gosinu í Gríms- vötnum - Askan er hvít eins og sement á þjóðveginum

Gosmökkurinn sést vel frá Kirkjubæjarklaustri en myndin sem fylgir þessari frétt er tekin þar.
21.maí 2011 - 21:45

Þjóðveginum lokað beggja vegna við Skeiðarársand: Ekkert skyggni vegna gosmökksins

Mökkurinn séður úr Turninum í Kópavogi. Þjóðvegi 1 um Skeiðarársand hefur verið lokað fyrir allri umferð en skyggni þar er ekkert þar sem gosmökkurinn fellur sífellt nær jörðu.
21.maí 2011 - 21:28

Vindur stendur á haf út: Gosið gæti haft áhrif á flugsamgöngur í Evrópu - Óljóst þó

Haraldur Eiríksson á Veðurstofu Íslands segir að gosið í Grímsvötnum geti haf áhrif á flugsamgöngur en gosmökkurinn nái brátt tíu kílómetra hæð en áhrifin eru óljós. 21.maí 2011 - 20:39

Mynd af gosmekkinum úr Kópavogi - Stígur sífellt hærra og er nú kominn í um 4 km hæð

Gosmökkurinn frá Grímsvatnagosinu sem hófst á áttunda tímanum í kvöld stígur sífellt hærra og hefur nú náð fjögurra kílómetra hæð.
21.maí 2011 - 19:39

100% líkur á að heimsendaspá eins og þessi gangi eftir - Alltaf verið að spá þessu alls staðar

Stefán Ingi Valdimarsson, stærðfræðingur, segir líkurnar á að gos hefjist á þeim tíma sem spáð hafi verið fyrir um í heimsendaspám vera 100%. 21.maí 2011 - 19:04

Eldgos að hefjast í Grímsvötnum: Hverjar eru líkurnar? Er heimsendir þá að hefjast?

Gos er að hefjast í Grímsvötnum en jarðfræðingar á Veðurstofu Ísland segja jarðskjálfatar líkir þeim sem mældust í gosinu 2004 séu hafnir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband