Eldgos í Grímsvötnum
Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 16:19
Áfram viðbúnaður þó dragi úr gosi
Gosóróinn í Grímsvötnum hefur verið á svipuðu róli síðan í morgun frá því að hann minnkaði verulega í nótt og enn dregur úr öskufalli á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni.
Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 16:05
Öskuskýið að leysast upp
Búist er við að öskuskýið frá Grímsvatnagosin, sem raskað hefur flugi í vestanverðri Evrópu leysist upp í nótt. Evrópska loftferðaeftirlitið Eurocontrol greindi frá þessu í dag og sagði að á morgun væri ekki búist við neinum áhrifum frá gosinu. Nokkru röskun varð á flugi í Þýskalandi í dag, einkum í Berlín, Bremen og Hamborg.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 16:03
Lítil aska í Mýrdalshreppi
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps vill vekja athygli á því að sveitarfélagið er svo til öskufrítt og vel í stakk búið að taka á móti ferðamönnum. Reiknað er með að tjaldsvæðið þar verði opnað um mánaðamótin og unnið er að því að hreinsa sundlaugina svo hægt verði að opna hana á nýjan leik.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 15:09
Taka sýni til rannsóknar í dag
Matvælastofnun mælir með að bændur á öskusvæðum meti aðstæður og setji búfé út ef mögulegt er. Þó er mikilvægt að hafa það á svæði þar sem auðvelt er að hafa eftirlit með því og smala því saman ef á þarf að halda. Jafnframt þarf að tryggja því aðgang að hreinu drykkjarvatni, góðu fóðri, salti og steinefnum.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 12:47
Hreinsunarstarf hafið
Íbúar á Kirkjubæjarklaustri eru nú farnir að ganga um utandyra grímulausir í fyrsta sinn í nokkra daga. Það hefur dregið úr öskufalli og svo kom kærkomin rigning sem hefur bundið rykið og skolað öskunni í burt.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 12:43
Ástandið á búfénaði gott
Ástandið á búpeningi á gossvæðinu er með ágætum segir Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir á Kirkjubæjarklaustri. Það var helst sauðfé sem varð fyrir barðinu á gosösku en nautgripir sluppu betur.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 11:28
Rigningin var kærkomin
Léttskýjað er nú í Vík en aðeins rigndi í morgun og þar er nú ekkert ryk í lofti að sögn björgunarsveitarinna Víkverja. Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum sem staddur er á Kirkjubæjarklaustri segir að þar sé raki í loftinu, og skyggni gott.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | 25.05.2011 11:25
Fólk varað við að fara nærri gosinu
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir að gosinu í Grímsvötnum sé ekki lokið þó verulega hafi dregið úr gosvirkni. Hann varar fólk við að fara nærri gosstöðvunum vegna sprengihættu.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 25.05.2011 07:49
Gosið að fjara út
Ásberg Jónsson fór í nótt ásamt hópi ferðaþjónustufólks að eldstöðinni í Grímsvötnum á Vatnajökli. Hann fór ansi nálægt gígnum og segir aðeins gufustróka stíga upp úr gígnum. Gosið hafi fjarað út.Eldgos í Grímsvötnum | Erlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 22:15
Norðmenn reiðir vegna gossins
Margir Norðmenn hugsuðu Ísland þegjandi þörfina í dag. Ekki aðeins vegna þess að þeir komust ekki á leiðarenda með flugi vegna öskuskýsins frá Grímsvötnum, heldur líka af því að öskufall er byrjað í Noregi. Einn ferðalangur óskaði þess að Ísland sykki í sjóinn.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 22:05
Vísindamenn komnir að gosstöðvunum
Verulega hefur dregið úr gosinu í Grímsvötnum. Ármann Höskuldsson eldfjallasérfræðingur gerir ráð fyrir að gosið né nú í dauðateygjunum. Hann var í hópi jarðvísindamanna sem fóru að gosstöðvunum í kvöld.Eldgos í Grímsvötnum | Hamfarir | 24.05.2011 21:53
Kanna sýni úr heimavatnsbólum
Á fimmtudaginn mun fulltrúi frá heilbrigðiseftirliti Suðurlands vera á Kirkjubæjarklaustri og taka við sýnum frá heimavatnsbólum þar sem þau eru, fyrir þá sem vilja láta athuga hvort vatn hafi mengast vegna öskufalls.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 21:18
Flugvöllunum lokað aftur vegna ösku
Loftrýminu yfir alþjóðaflugvöllum landsins verður lokað í kvöld, vegna ösku úr eldgosinu í Grímsvötnum. Ákvörðun Isavia, sem rekur flugvelli landsins, um lokunina er byggð á nýrri öskuspá frá bresku veðurstofunni, sem unnin er í samstarfi við Veðurstofu Íslands.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 19:30
Dáist að æðruleysi heimamanna
Það skiptir verulegu máli að ríkisstjórnin komi hér inn á svæðið og sjái þetta með eigin augum," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sem ferðaðist í dag um gosslóðir ásamt Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra. Hún sagðist dást að æðruleysi og samstöðu íbúa á hamfarasvæðinu.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 19:25
Íbúar á Klaustri bera sig vel
Það fer að taka í ef fólk sér ekki fyrir endann á öskufallinu segir hjúkrunarfræðingur á Klaustri. Börn þurfa að vera innandyra en bera sig vel þótt þau myndu heldur vera á trampólíni í sumarveðri.Eldgos í Grímsvötnum | Erlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 19:19
Fimm hundruð flugferðum aflýst
Um fimm hundruð flugferðum var aflýst í Evrópu í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Öskuský hamlaði flugi á norðanverðum Bretlandseyjum og annars staðar í norður Evrópu. Öskufall er byrjað í Noregi.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 19:12
Tíð gos í Grímsvötnum næstu áratugi
Búast má við tíðum gosum í Grímsvötnum næstu áratugina og nær goslotan líklega hámarki um miðja öldina. Ekkert eldfjall hefur gosið jafn oft á sögulegum tíma á Íslandi.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 18:40
Körin eins og steypuhrærivélar
Aska úr Grímsvötnum liggur í tonnavís á botni eldiskara Klausturbleikju. Eigandinn segir körin hafa líkst steypuhrærivélum á sunnudaginn, og telur það kraftaverk ef hann sleppur með aðeins nokkur hundruð kíló af dauðum fiski.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | Suðurland | 24.05.2011 18:36
Vísindamenn á leið að gosstaðnum
Vísindamenn eru á leið að gosstaðnum í Grímsvötnum í þungu færi. Rétt fyrir klukkan sex voru þeir um tuttugu kílómetra frá gosstaðnum. Þá var bjart á skjannahvítum jöklinum sem bar fá merki eldgoss ef undan var skilinn gosstrókurinn sem sést ljós á lit milli þess sem skafrenningur byrgir mönnum sýn.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 18:26
Flugbann ekki útilokað
Flugbanninu var aflétt í gær en þó hefur ekki verið flogið til Bretlands í dag. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi ISAVA segir ekki útilokað að flugbann verði sett á að nýju.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 18:14
Gosið nú á við lítið Grímsvatnagos
Verulega hefur dregið úr eldgosinu í Grímsvötnum í dag, en gosmökkurinn mælist nú um þriggja kílómetra hár. Jarðeðlisfræðingur segir gosið nú vera á við lítið Grímsvatnagos. Veðurfræðingur telur að aska frá upphafi gossins komi til með að raska flugsamgöngum í Evrópu næstu daga.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 18:13
Opna milli Víkur og Freysness
Vegurinn milli Víkur og Freysness verður opnaður fyrir umferð klukkan sjö í kvöld. Baldur Ólafsson, hjá vettvangsstjórn björgunarsveita á Kirkjubæjarklaustri, hvetur fólk þó til að huga að því að veður getur versnað skjótt og því sé gott að fara að öllu með gát.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | Suðurland | 24.05.2011 18:05
Reyna að bjarga mjólkinni af bæjum
Erfiðlega hefur gengið að safna mjólk hjá kúabændum í grennd við Kirkjubæjarklaustur undanfarna daga en í dag hefur gengið ágætlega að bjarga mjólkinni. Jón Hjálmarsson mjólkurbílstjóri hjá MS Selfossi þurfti frá að hverfa í Landbroti og Meðallandi í gær þegar aðstæður buðu ekki lengur upp á akstur á milli bæja.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 17:59
Kindurnar blindar vegna ösku
Skyggni á öskufallssvæðinu við Kirkjubæjarklaustur er betra nú en verið hefur frá upphafi gossins. Skepnudauði er talinn miklu minni en óttast var. Björgunarsveitarmenn hafa í allan dag aðstoðað bændur við að koma búpeningi í hús. Einn bændanna, Þórunn Edda Sveinsdóttir í Múlakoti, kom megninu af fé sínu á hús í dag. Hún hafði þó áhyggjur af heilsu skepnanna.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 16:56
Þetta eru víkingar"
Helgi V. Jóhannsson bóndi á Arnardrangi í Landbroti sem ræddi við fréttamenn í kvöldfréttum sjónvarps í gærkvöldi segir að hann hafi fengið aðstoð björgunarsveitarmanna í morgun og gengið vel að smala fé heim að bænum.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 16:36
Ráðherrar kynna sér aðstæður
Það ætti að skýrast á föstudag með hvaða hætti ríkisstjórnin styður við íbúa á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti vegna eldgossins í Grímsvötnum. Jónahha Sigurðardóttir forsætisráðherra og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra funduðu með Haraldi Jóhannessen ríkislögreglustjóra og yfirmönnum almannavarna á Kirkjubæjarklaustri í dag.Eldgos í Grímsvötnum | Erlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 16:15
Aska komin til Noregs
Ösku frá Grímsvötnum hefur orðið vart í Stafangri, Björgvin og í Krstjánsand í Noregi. Dimmt er yfir og merkjanlegt er að aska hefur sest á bíla. Samkvæmt blaðinu Stavanger Aftenblad hefur verið staðfest að rykið eigi ekki rætur að rekja í Noregi og því talið að um ösku frá Íslandi sé að ræða. Sigurjón Gunnarsson, byggingarfræðingur sem stafar í Stavangri, er ekki í vafa um að þetta sé íslensk aska.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 16:03
Flugi til Ísafjarðar aflýst
Flugi til Ísafjarðar hefur verið aflýst í dag vegna gamallar ösku sem hefur fokið frá Grænlandi. Flug til annarra staða sem áætlað er eftir klukkan sex í kvöld er í athugun. Ákveðið verður klukkan sex hvort Keflavíkurflugvelli verði lokað, en þá liggur ný öskuspá liggur fyrir.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 15:16
Búist við seinkun á flugi
Búist er við töluverðum seinkunum á flugi í dag hjá íslensku flugfélögunum. Vélar Icelandair sem átti að koma frá Bergen nú laust eftir klukkan þrjú er nú ætluð rétt fyrir tíu í kvöld. Vél frá Stokkhólmi seinkar síðan um minnst þrjá tíma og vél frá París um tæpa fimm tíma. Hins vegar er búist við að allar vélar sem eiga að fara frá Keflavík síðdegis fari í loftið að mestu á réttum tíma, en seinkun varð þó á nokkrum vélum í morgun.Eldgos í Grímsvötnum | Innlendar fréttir | Hamfarir | 24.05.2011 14:59
Þjóðvegurinn áfram lokaður
Þjóðvegurinn milli Víkur og Freysness verður áfram lokaður. Staðan verður endurmetin í fyrramálið. Ekkert skyggni er á þessum kafla vegna öskufoks.Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Dægurmál | Miðvikudagur, 25. maí 2011 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.