Föstudaginn 11. febrúar kl. 07.54
Snælduvitlaust veður en ekkert tjón
- skólahald í GRV fellt niður í dag og fyrri ferð Herjólfs aflýst
Nú er snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum og hefur verið síðan í gærkvöldi. Á Stórhöfða hefur meðalvindhraði verið yfir 30 metra síðan klukkan ellefu í gærkvöldi en klukkan sex í morgun var meðalvindur 36 metrar á sekúndu en fór í 49 metra í mestu hviðunum. Fyrri ferð Herjólfs hefur verið aflýst og sömuleiðis skólahaldi í Grunnskóla Vestmannaeyja. Meira11. febrúar kl.07:45 | eyjar.net
Skólahald í Grunnskóla Vestmannaeyja fellur niður vegna veðurs
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður
Vegna veðurs hefur verið ákveðið að fella niður skólahald í Grunnskóla Vestmannaeyja en klukkan 06:00 í morgun var 31m/sek á StórhöFlokkur: Dægurmál | Föstudagur, 11. febrúar 2011 (breytt kl. 08:22) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.