Jarðskjálfti: Mbl.is

   Skjálftarnir eiga upptök sín við Kleifarvatn.

Annar stór skjálfti

17:37 Annar stór jarðskjálfti reið yfir höfuðborgarsvæðið um kl. 17:20 í dag. Skjálftinn átti upptök sín við Kleifarvatn en þar hefur jörð skolfið í allan dag. Skjálftinn fannst vel í Reykjavík og víðar og var að sögn Veðurstofunnar ívið stærri en skjálftinn í morgun. Meira »

Kafarar fundu högg á botninum

Kafararnir þrír frá vinstri: Kristján Arnarsson, Pétur Yngi Yamagata, Friðbjörn Orri Ketilsson. 16:15 Þrír kafarar voru við köfun í norðaustur hluta Kleifarvatns í morgun og voru á rúmlega 20 metra dýpi þegar skjálftahrina reið yfir svæðið. Þeir fundu fyrir miklu höggi og heyrðu háværa hvelli. Að sögn Friðbjörns Orra Ketilssonar, eins kafaranna, var höggið mikið. Meira »

Áfram talsverð skjálftavirkni

Jarðskjálftarnir eiga upptök sín við Kleifarvatn. 14:12 Skjálftavirkni hefur haldið áfram við Kleifarvatn í dag, en skjálftarnir eru minni en í morgun. Frá miðnætti til kl. 14 í dag höfðu um 380 skjálftar komið fram á mælum Veðurstofu Íslands. Meira »

Skjálftinn var nær Reykjavík

Veðurstofa Íslands. 11:00 „Upptök skjálftans eru norðar en þau hafa yfirleitt verið. Þau eru því ívið nær höfuðborgarsvæðinu en oft áður og því eðlilegt að skjálftinn hafi fundist vel," segir Gunnar B. Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Meira »

Líkur á fleiri skjálftum

Frá Krýsuvík. 10:39 Líkur eru á fleiri jarðskjálftum á Krísuvíkursvæðinu á næstu klukkustundum, að sögn Gunnars B. Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. „Menn hafa varann á fyrstu klukkustundirnar eftir svona atburð," segir Gunnar. Hann hvetur fólk til að sýna stillingu. Meira »

Kort af skjálftanum

Skjálftakort á vef Veðurstofu Íslands. 10:12 Mikill fjöldi jarðskjálfta nú í morgun kemur greinilega fram á 48 klukkustunda tímakvarðakorti Veðurstofu Íslands sem nú er aðgengilegt á netinu. Meira »

Skjálftinn líklega 4 stig

Frá Krýsuvík. 09:55 Jarðskjálftinn sem fannst greinilega í Reykjavík fyrir stundu átti upptök í Krýsuvík. Hann var að líkindum 4 stig, að því er sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands áætlar. Meira »

Jarðskjálfti í Reykjavík

Reykjavík 09:07 Jarðskjálfti varð í Reykjavík um kl. 9 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var stærð skjálftans um 4. Skjálftinn átti upptök sín við Kleifarvatn, en um 200 skjálftar hafa mælst þar síðan á miðnætti. Meira »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband