Er Surtsey að fara að gjósa?????

Nei ég efast um það þó það mældist jarðskjálfti uppá 2,1 rétt við eynni kl.11 í morgun.

surtsey


mbl.is Jarðskjálfti í Kötlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Dýpi: 14,9 km

Held við getum alveg verið róleg á meðan það er ekki grynnra.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.7.2011 kl. 19:27

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Hmm.... já þetta er 14,9 km djúpt. Enn það er ekki á hverjum degi sem svona "stór" jarðskjálfti er við Vestmannaeyjar. Og það rétt hjá eldfjallaeyju.

Pálmi Freyr Óskarsson, 13.7.2011 kl. 19:47

3 Smámynd: Óskar

Það er nú einmitt ástæða til að óttast djúpu skjálftana því þeir benda frekar til kvikuhreyfinga en þeir grunnu.   Held samt að þetta sé ekkert serious, enda einn stakur lítill skjálfti.

Óskar, 13.7.2011 kl. 20:05

4 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

"Enda einn stakur lítill skjálfti" segirðu Óskar. Ég veit ekki hvernig V.Í. getur mælt skjálfta sem þennan á svona dýpi undir sjó. Nemarnir eru nefnilega viðsfjarri skjálftanum.

Ég held að það sé ekki nærri því eins auðvelt að mæla þarna skjálfta og meginlandinu. Og þess vegna getur verið að margir skjálftar fari framhjá mælinemum V.Í.

Pálmi Freyr Óskarsson, 13.7.2011 kl. 20:51

5 Smámynd: Óskar

Það er ekkert erfiðara að mæla skjálfta undir sjó frekar en undir jöklum.  Það er aðeins spurning um hve þétt mælanetið er. Í grennd við Kötlu eru t.d. svo margir og nákvæmir mælar að þeir nema nánast allar hreyfingar.  Það má vera að sjálftar upp að ca 1,5-2 ár richter mælist ekki á þessum slóðum vegna þess að mælarnir nemi þá ekki en engu að siður ættu kvikuhreyfingar að koma fram á óróamælum t.d. þessum hér http://hraun.vedur.is/ja/oroi/ves.gif  sem er staðsettur í Eyjum.

Mikið af skjálftum mælast úti fyrir Reykjanesi og á sjó úti fyrir Norðurlandi og efast ég um að kerfið þar sé eitthvað nákvæmara en í grennd við Eyjar.  Vil svosem ekki fullyrða neitt en ég held það sé ekkert stórt að fara að gerast!  Annars er ég með síðuna www.eldgos.is  þar sem ég er með m.a. umfjöllun um Vestmannaeyjar.

Óskar, 13.7.2011 kl. 21:51

6 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Það var jarðskjálftamælir hér á Stórhöfða frá árinu 1974 til 199?. Og hann átti mjög erfitt að mæla jarðskjálfta vegna þess sjólagið var alltaf að trufla hann. Maður var stanslaust að lækka og hækka styrkinn á mælinu. Þannig að það er mjög torvelt að finna jarðhræðingar við Vestmannaeyjar vegna sjógangs. Oftast gat maður notast við jarððskjálftamælin frekar til að meta sjólagið.

Í dag er til dæmis sjólagið yfir 2m við Vestmannaeyjar, og þess vegna held ég að það getur verið að aðrir skjálftar hafi drukknað í sjólaginu. Enn það er örðvísi með farið með sjólagið fyrir sunnan Reykjanes, hvað þá sjóinn fyrir norðan Norðurlandið, sem er oftast betra enn hér í Vestmannaeyjum, (enn samt ekki í dag fyrir sunnan Reykjanes, enda hefur enginn skjálfti sést þar).

Þar sem sjólagið er lítið, þá held ég sé auðveldari fyrir jarðskjálfta koma fram á mælum.

Pálmi Freyr Óskarsson, 13.7.2011 kl. 22:45

7 Smámynd: Óskar

Það má vel vera rétt hjá þér að sjólagið trufli mæla, ég bara þekki það ekki.  En allavega kom þessi skjálfti fram og hann var rétt um 2 á Richter sem þýðir að kerfið ætti að nema alla mæla af þeirri stærð og stærri.  Auðvitað er full ástæða til að fylgjast vel með Vestmannaeyja svæðinu og ég efast ekki um að það sé gert enda urðu 2 gos i kerfinu ekki fyrir mjög löngu á jarðfræðilegum timaskala og það er ekki víst að þeirri hrinu sé endilega lokið.

Óskar, 14.7.2011 kl. 00:16

8 identicon

Það eru innan við 20% líkur á Þjóðhátíð í Eyjum í ár og nánar um það á heimasíðu minni undur Eyjafjallajökull 2

www.heilun.blogcentral.is

Við sem skrifum þar inn lýstum aðstæðum um gos við Hamarinn fyrir mörgum mánuðum síðan en mun verra er í farvatninu ekki bara hér heldur víða um heim,hvert eldfjallið á fætur öðru vaknar og spúir eðju og ösku yfir allt.

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband