Svokallaða Þjóðhátíðarlag 2011

Svokallað Þjóðhátíðarlag 2011

Jæja þá er svokallað Þjótíðarlag 2011 komið útúr skápnum hjá Páli Óskari. Og jújú ágætis EURO-techno. Sem þýðir einhæfur og margnotaður taktur sem er notaður aftur og aftur og aftur (ATH: Eurotechno er langeinfaldasta form Techno-ar og er spilað aðallega á sorpstöðvum eins og FM957 og Flass). Enda finnst mér ég vera búinn að heyra þetta lag margoft áður við fyrstu hlustun. Eina frumlega er byrjunin á laginu, sem hljómar eins og Ítölsk aría, enda heitir Þjóðhátíðarlagið Ítölsku nafni. Svo er það textinn við lagið. Hvað í andskotanum getur maður tengt lagið við Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Ekki neitt fyrir utan dalinn, sem getur verið hvaða dalur sem er. Í gömlu góðu dagana (nú tala ég eins og ég sé einhvað gamall) þá var textinn að segja manni hvað þjóðhátíð Vestmannaeyja sé, og notuð orð í textann sem maður gat tengt við hátíðina. Eins og Herjólsdalur, Fjósaklettur, brennan, varðeldurinn, tjörnin, hvítu tjöldin, lunda, brekkan, vín, ást o.s.f. Enn síðustu 10 árin eða síðan Lífið er yndislegt einhverhluta veginn gerði garðinn frægann sem Þjóðhátíðarlag 2001, þá hefur textinn gefið lítið úr sérstöðu Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Hinsvegar er textagerðinn við lagið La dolce vita mjög góð. Ætti frekar vera rappað enn sungið með euro-techno-takti. Kannski hugmynd fyrir fólk sem vil syngja lagið í tjöldunum, að rappa lagið frekar.


La Dolce Vita. 2011



Nú er ég búinn ad gera mig sætan

Sjóðheitur ég verð ad mæta og upplifa

La Dolce Vita

Nú er ég búinn að reima skóna

til ad dansa i nótt við töfratóna í

La Dolce Vita

 

Aha

Ég segi það satt

hef unnið of mikið

svo ég á það skilið

að gleyma mér aðeins

og bilast í friði

med bjútifúl liði

 

Ef röðin er löng

og dalurinn hlaðinn

eg mæti á staðinn

því þegar ég dansa

er eins og ég svífi

ég er á lífi

 

 Nú er ég búinn ad gera mig sætan

sjóðheitur eg verð að mæta og upplifa

La Dolce Vita

Nú er ég búinn að reima skóna

til ad dansa i nótt við töfratóna í

La Dolce Vita

 

 Svo hvað viltu sjá?

Og Hvað viltu heyra?

Ma bjóða þér meira?

Að standa og þegja

er ömurleg iðja

þú þarft að biðja

 

Ég veit hvað ég vil

og næ líka í það

ég nenni ekki að bíða

í dag vil ég dansa

og nú kemur bassinn

hristu á þér rassinn

 

Nú er ég búinn að gera mig sætan....

 

Trúa, treysta, bara á það besta.

Trúa, treysta, bara á það bes     Lag: Trausti Haraldsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson

Skrifað 11.7.2011 kl. 13:40 af Pálma Frey

Bein slóð á færslu


mbl.is Nýtt stuðlag frá Páli Óskari kemur þér í stemningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband