Svona á ekki.............

...........umgangast villtan ránfugl samkvæmt íslenskum lögum.

 

Ef þú tekur villtan fugl heim til þín í fæði verðurðu að umgangast fuglinn sem minnst. Svo hann verður ekki gæfur við manninn, því það veldur vandræðum.

 

Mbl.is ætti að taka viðtal við forstöðumann Náttúrufræðistofnun íslands. Enn hann er örugglega ekki hrifinn að sjá fuglinn svona gæfan við hann jarl.


mbl.is Með smyril í fóstri í bílskúrnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Promotor Fidei

hvað er að því að svona fuglar verði gæfir? Er nokkur minnsti skaði með því skeður?

Promotor Fidei, 27.8.2010 kl. 08:53

2 identicon

Ég sé bara ekkert athugavert við þessa ummönnum hjá honum. Bara krúttlegt að sjá þá saman :)

Hrönn Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 10:14

3 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Halló!!!!!!! aðeins að vakna í hausnum. Þetta er villtur ránfugl og ekki gott ef hann óttast ekki mannin................

Pálmi Freyr Óskarsson, 27.8.2010 kl. 10:55

4 Smámynd: halkatla

Þetta er æðra okkar skilningi og okkar lögum, þ.e.a.s samband þessa manns við fuglinn sem hann bjargaði. Látið þá bara vera, þetta er fallegt.

halkatla, 27.8.2010 kl. 10:57

5 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Það eina sem er flott við þetta hjá Jarli er að hafa bjargað honum. Enn ekki að umgangast hann svona náið.

Þegar ég og faðir minn björgum villtum fuglum, hvað þá ránfuglum reynum við hafa sem minnst afskipti. Hvers vegna það sé nákvæmlega, þá verðið þið að spyrja fuglafræðinga að því. 

Pálmi Freyr Óskarsson, 27.8.2010 kl. 11:11

6 identicon

Veistu að þú ert engin guð og ættir ekki að reyna það, fer þér illa. Þér kemur þeirra samband ekki neitt við svo ég held að þú ættir bara að láta þetta afskiptalaust. Ef þú vilt bjarga viltum fuglum ásamt föður þínum þá getur þú gert það á þinn hátt og engum sem kæmi það við....svo framalega sem fuglinum líður vel og ég get ekki betur séð en þessi smyrill sé bara í góðum málum hjá Njarli.

Hrönn Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 13:16

7 identicon

Ég er ekki viss um að fólk átti sig á hver Pálmi er eða faðir hans Óskar. Ég held að það sé erfitt að finna reyndari og fróðari menn þegar kemur að meðferð á íslenskum viltum fulgum, þó sérstaklega sjófuglum.

Þetta fólk sem er að kommenta hérna heldur örugglega að dýrinn kunni að tala svona eins og í teiknimyndunum. Þessir fulgar eru ekkert eins og endurnar í Andabæ, ef þið haldið það.

Bjöggi (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 13:22

8 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Takk Bjöggi.

Hrönn lesa fréttina......... hann heitir Jarl enn ekki Njarl. Það þarf ekki að umgangast villtan fugl til þess að honum líður vel. Það nóg að henda matnum fyrir framan hann. Ef hann fær að borða þá líður honum vel. Það er EKKI sama heimilisdýr og villtur fugl sko.

E.s. Faðir minn er heimsmeistari í fuglamerkingum. Höfum alið hundruð lundapysja, tugi fýlsunga, snjótittlinga, rituunga, skrofuunga, branduglur, fálka, smyrla og svo framvegis þannig að maður ætti vita hvað maður er tala um. Þar sem faðir minn er í nánum tengslum Náttúrufræðistofnun Íslandsvegna merkingar hans fuglum. Þá hefur hann fengið ráðleggingar fuglafræðinga hvernig best er að umgangast villta fugla.

Pálmi Freyr Óskarsson, 27.8.2010 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband