Fólk........

..............er fífl.

40380006

Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuðábyrgð á ástandinu á Íslandi, samt er til fólk sem vil fá hann aftur í stjórn. Hvers mikið heimska er það?


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn með 40,3% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Þór Kristjánsson

Það er nógu gáfað til að sjá í gegnum þessa ömurlegu vinstri stjórn.

Davíð Þór Kristjánsson, 19.3.2010 kl. 08:08

2 identicon

Hjartanlega sammála.

Bylgja Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 09:04

3 identicon

Þ.e. ég er hjartanlega sammála því að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem ber höfuðábyrgð (reyndar ásamt Framsókn) á þessu ömurlega ástandi á Íslandi, og fólk er auðvitað bara forheimskt að ætla svo að vilja fá þetta lið aftur til þess að stjórna landinu.

Bylgja Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 09:08

4 identicon

Hversu mikil heimska er að láta vinstra liðið sem er búið að reyna að stjórna hér í meira en ár telja sér trú um að Sjálfstæðisflokkurinn beri höfuðábyrgð á hruninu? Hugsaðu þig um vinur. Eru það ekki andstæðingar Sjálfstæðisflokksins sem hamra á þessu upp nær dalega í DV, Fréttablaðinu og öðrum Baugsmiðlum til að leiða athyglina frá hinum raunverulegu skuldakóngum sem skildu eftir þúsund miljarða gjaldþrotaslóð á herðum almennings. Almenningur er farinn að átta sig á málunum. Skoðanakönnunin sýnir það.

Óttar Felix Hauksson (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 09:08

5 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Það er svo furðulegt að vinstrafólk virðist taka málstað þeirra sem raunverulega komu okkur í þessa stöðu.Bæði fyrir og eftir hrun.

Ragnar Gunnlaugsson, 19.3.2010 kl. 09:49

6 Smámynd: Ráðsi

Hvernig var það þegar Davíð vildi setja á lög um eignarhald á fjölmiðlum og vinstri flokkarnir urðu vitlausir og sögðu Davíð standa í vegi fyrir stórkotlegri uppbyggingu fjármálaveldis, síðan neitaði forsetinn að skrifa undir lögin. Ég held það að ef þessi lög hefðu verið samþykkt hefði lagaumhverfi tekið breitingum er varðar eignarhald á fyrirtækjum almennt og hrunið ekki örðið jafn mikið og það varð. En þó ég sé sjálfstæðismaður get ég ekki sagt það að kreppan sé ekki sjálfstæðisflokknum að kenna en það eru svo miklu miklu fleiri sem komu að því, m.a. vinstri flokkarnir, erlend fjármálaeftirlit o. fl. Við vonandi lærum af reynslunni. mín skoðun er sú að sjálfstæðismenn séu betur til þess gerðir að takast á við efnahagsvandan en vinstri stjórnin.

Ráðsi, 19.3.2010 kl. 11:01

7 identicon

Andskotinn hafi það, fólk! Sjálfstæðisflokkurinn er vandamálið alveg eins og núverandi ríkisstjórn. Það eru flokkarnir sem eru vandamálið. Hvernig eiga þingmenn að geta kosið eftir eigin sannfæringu ef þeir eru bundnir við flokk með ákveðnar stefnur? Það vilja bara allir komast í stjórn, og þegar það loksins gerist skiptir ekki minnsta máli hverju var lofað fyrir kosningar. Þannig virkar það, þannig hefur það alltaf virkað.

Kjósum einstaklinga, ekki klíkur.

Sóley (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 12:28

8 Smámynd: Arngrímur Stefánsson

Er það ekki merkilegt hvað vinstri-menn telja sig alltaf vera hluta af gáfuðum eðal-minnihluta? 

Ég er þó reyndar sammála því að fólk hlýtur að vera fífl. 

Framsókn bætti við sig þingmönnum í seinustu kosningum og þá þurfti að minnka spillingu

Samfylking bætti miklu á sig, og vilja gera allt til að koma okkur í ESB á sama tíma og semja þarf um icesave.

Vinstri-Grænir bættu við sig á sama tíma og byggja þarf upp atvinnulíf, en við vitum að VG er helsti andstæðingur atvinnu. 

Þorgerður Katrín og fleiri einstaklingar komust í gegn í prófkjöri í sjálfstæðisflokknum

Þráinn Bertelsson komst á þing. 

Seinustu kosningar voru alger hörmung og kenni ég skrílnum um það, sem heimtaði kosningu og grenjaði berjandi á potta eins og smákrakkar, en upplausnin í samfélaginu og skelfingin var einfaldlega of mikil til að þjóðin gæti tekið meðvitaðar og réttar ákvarðanir. 

Kanski hefði bara verið ágætt að taka þær kosningar núna, en það er gert sem er gert og best að bíða bara að næstu kosningum.

Arngrímur Stefánsson, 19.3.2010 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband