Ætli ástæðan fyrir biluninni sé sá að........

...........Veðurstofa Íslands var að breyta vefsíðuna aðeins um helgina???

Umhverfisráðherra opnar nýja útgáfu vefsins

merki, lógó
Nýtt merki Veðurstofu Íslands.
1 2 3
fyrri næsta

Nýtt merki

23.3.2009

Umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, opnaði nýja útgáfu af vef Veðurstofu Íslands í dag, á alþjóðaveðurdeginum 23. mars.

Nýja útgáfan er birtingarmynd þess að sameining Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar er um garð gengin. Er það vel við hæfi þar sem í gær var dagur vatnsins.

Stofnunin starfar samkvæmt lögum nr. 70 frá árinu 2008og hefur fengið nýtt merki (lógó) sem nú birtist í fyrsta sinn á vefsetri hennar. Merkið var hannað á Vinnustofu Atla Hilmarssonar.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á vefnum. Á vefjum stofnananna beggja var mikið efni sem nú er skipulega fram sett á einum vef.

Mestu breytingarnar eru á forsíðunni en einnig eru fjölmargar breytingar á undirsíðum, bæði á kvikum síðum og textasíðum.

Efri hluta forsíðu er skipt upp í fjóra hluta: veðurspá, veðurathuganir, jarðskjálfta og vatnafar. Hver hluti tekur yfir allan efri helminginn þegar hann er valinn. Segja má að um sé að ræða fjórar forsíður.

Á veðurspárforsíðunni er vinda-, hita- og úrkomuspánum gert hærra undir höfði á kostnað staðaspákortsins sem var á forsíðunni. Þetta er gert af öryggisástæðum en á vindaspákortum er hægt að sjá hvar og hvenær stormar verða verstir. Það er oft nánast ógerlegt á staðaspákortum.

Um viðmótshönnun og útfærslu þessarar nýju útgáfu sá Helgi Borg verkfræðingur. Um útlit og vefun sá Hugsmiðjan ehfen vefurinn byggist á Eplica vefumsjónarkerfinu. Verkefnisstjórnun annaðist Vigfús Gíslason og fjölmargir starfsmenn Veðurstofunnar komu að þessum breytingum.

Leiðbeiningar eru gefnar fyrir spáforsíðu og forsíður veðurathugana, jarðhræringa og vatnafars.


mbl.is Veðurupplýsingar á mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband